Morgunblaðið - 31.07.2021, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 31.07.2021, Qupperneq 22
22 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2021 ÁRBÆJARKIRKJA | Útisumarhelgi- stund kl. 11 á ljúfum og léttum nótum við suðurgafl kirkjunnar. Félagar úr kór Árbæjarkirkju leiða sönginn undir stjórn Krisztinu Kalló Szklanér organ- ista. Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffispjall eftir stundina. ÁSKIRKJA | Guðsþjónustur í Laugar- dalsprestakalli í sumar verða í Laug- arneskirkju kl. 11 alla sunnudaga frá 13. júní til og með 8. ágúst. Næsta guðsþjónusta í Áskirkju verður sunnu- daginn 15. ágúst 2021. Ástjarnarkirkja | Sumarmessur í Garðakirkju, alla sunnudaga klukkan 11. Ástjarnarkirkja tekur þátt í sumar- messunum. Sjá Garðakirkja hér á síð- unni. BESSASTAÐASÓKN | Sumar- messur í Garðakirkju, alla sunnudaga kl. 11. Bessastaðasókn tekur þátt í sumarmessunum. Sjá Garðakirkja hér á síðunni. DÓMKIRKJAN | Messa klukkan 11. Prestur séra Elínborg Sturludóttir og Kristján Hrannar organisti. Félagar úr Dómkórnum syngja. EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagur- inn 1. ágúst: Helgistund í kirkjunni kl. 10.30. Prestur Þorgeir Arason. Jónas Þór Jóhannsson leikur á harmoniku undir almennum söng. Meðhjálpari Auður Anna Ingólfsdóttir. Kaffisopi í kirkjunni eftir stundina. Minnum einn- ig á hádegisbænastundina í Safnað- arheimili alla þriðjudaga kl. 12. GARÐAKIRKJA | Sumarmessa um verslunarmannahelgi og söguganga með Jónatani Garðarssyni. Sr. Jónína Ólafsdóttir þjónar fyrir altari og flytur hugvekju. Organisti er Kristín Jóhannesdóttir sem jafnframt leiðir al- mennan safnaðarsöng. Sumarsunnudagaskólinn er í vinnu- stofunni á safninu Króki. Eftir messu verður boðið upp á sögu- göngu um Garðaholt. Jónatan Garðarsson fjölmiðlamaður leiðir gönguna og miðlar fróðleik um Garða- holtið sem á sér ríka sögu. Messan verður í beinu streymi á: https://facebook.com/sumarmess- ur/ GRAFARVOGSKIRKJA | Sunnudag- inn 1. ágúst verður kaffihúsamessa. Kaffihúsamessur eru sumarmessur og verða á sunnudögum kl. 11 út ágústmánuð. Messuformið er einfalt notalegt andrúmsloft. Forsöngvari, prestur, organisti og kirkjuvörður ann- ast þjónustuna. Kaffi og meðlæti. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Sum- armessur í Garðakirkju, alla sunnu- daga kl. 11 í júní, júlí og ágúst. Hafn- arfjarðarkirkja tekur þátt í sumar- messum í Garðakirkju. Streymt er frá messunum. Sjá Garðakirkja hér á síð- unni. HALLGRÍMSKIRKJA | Orgelsumar í Hallgrímskirkju. Tónleikar laugardag kl. 12. Tuuli Rähni leikur á orgelið. Guðsþjónusta sunnudag kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar að- stoða. Forsöngvarar syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti er Kjartan Jósefsson Ognibene. HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Séra Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kordíu, kór Háteigskirkju, syngja. Organisti er Arngerður María Árnadótt- ir. KÓPAVOGSKIRKJA | Helgistund verður sunnudaginn 1. ágúst nk. kl. 11 í safnaðarheimilinu Borgum (úti ef veður leyfir). Sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari og prédikar. Lára Bryndís Eggertsdóttir annast tónlistar- flutning. Að stundinni lokinni (um kl. 11.35) mun Sögufélag Kópavogs leiða göngu um nágrenni Kópavogs- kirkju. Að göngu lokinni verður boðið upp á kaffi og kleinur í safnaðarheim- ilinu Borgum. LANGHOLTSKIRKJA | Sumarmessa í Laugarneskirkju sunnudaginn 1. ágúst kl. 11. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar ásamt Magnúsi Ragnarssyni organista. Félagar úr Fíl- harmóníunni leiða sönginn. Heitt á könnunni og smá nart, í safnaðar- heimilinu að messu lokinni. LAUGARNESKIRKJA | Sumar- messa í Laugarneskirkju sunnudag- inn 1. ágúst kl. 11. Guðbjörg Jóhann- esdóttir sóknarprestur þjónar ásamt Magnúsi Ragnarssyni organista. Fé- lagar úr Fílharmóníunni leiða sönginn. Heitt á könnunni og smá nart, í safn- aðarheimilinu að messu lokinni. Messan er sameiginleg fyrir söfnuði Laugardalsprestakalls. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Allt helgihald fellur niður til 15. ágúst. NESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Helgihaldið verður í garðinum ef veður leyfir, annars í safnaðarheimili með kaffihúsasniði. Félagar úr kór Nes- kirkju leiða söng. Prestur er sr. Stein- unn Arnþrúður Björnsdóttir. REYNIVALLAKIRKJA í Kjós | Hestamessa- og útivistarguðsþjón- usta í Reynivallakirkju sunnudaginn 1. ágúst kl.14. Guðmundur Ómar Óskarsson organisti leiðir sálmasöng ásamt kirkjukór Reynivallapresta- kalls. Sr. Arna Grétarsdóttir sóknar- prestur þjónar fyrir altari. Formaður framkvæmdanefndar tekur fyrstu skóflustungu að aðstöðuhúsi milli kirkju og kirkjugarðs. Formaður sóknarnefndar kynnir lagfæringar á kirkjugarði. Kaffi og meðlæti á pallinum við prestssetrið eftir messuna. Allra sótt- varna verður gætt. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Guðs- þjónusta í Skálholtsdómkirkju kl. 11. Sr. Axel Á. Njarðvík annast prests- þjónustuna. Veitingahúsið Skálholt er opið í hádeginu, sem og alla daga. VÍDALÍNSKIRKJA | Sumarmessur í Garðakirkju, alla sunnudaga kl. 11. Vídalínskirkja tekur þátt í sumar- messunum. Sjá Garðakirkja hér í síð- unni. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Akrakirkja á Mýrum. ESB er miklu meira en sam- eiginlegur mark- aður og evran. Á hverjum einasta degi, og oft á dag, erum við með hluti – alls kyns varn- ing; matvöru, fatnað, heim- ilisbúnað, áhöld og verkfæri, líka öll rafmagnstæki, vélar, far- artæki og bílinn okkar – í höndunum, þar sem einmitt ESB hefur tryggt okkur mestu möguleg þægindi, um- hverfisvænar lausnir og um- fram allt öryggi og gæði í notkun. Allt sem við erum með í höndunum og notum, sem er CE-merkt, hefur þurft að uppfylla stífar kröfur ESB og prófanir um vænar lausnir fyrir neytendur og aðra not- endur, lágmarks orkunotkun og minnsta mögulega um- hverfisspillingu og, eins og áð- ur segir, hámarks öryggi og endingu. Þessi starfsþáttur ESB er einn af lykilþáttum sambands- ins hvað varðar okkar daglega líf; trygging hagsmuna og vel- farnaðar þegna þess. En ESB kemur víða annars staðar við sögu og hefur já- kvæð áhrif á líf okkar, um- hverfi, athafnafrelsi og ör- yggi. Baráttan fyrir „virðingu mannsins“ og sameiginleg mannréttindi okkar – frelsi til orðs og æðis – standa efst á blaði hjá ESB. Eru 1. einkunn- arorð sam- bandsins. Næst má telja jafnrétt- isbaráttuna; baráttuna fyrir jafnrétti kynjanna, hör- undsdökkra, hinsegin fólks, fatlaðra og allra annarra sem minna mega sín gagnvart þeim sem meira mega sín, en líka baráttuna fyrir sér- stökum réttindum kvenna. ESB lætur sérstaklega að sér kveða í þessum efnum í Póllandi og Ungverjalandi þessa dagana, en þar þrengja stjórnvöld að frelsi og jafn- rétti ýmissa hópa. ESB leggur líka mikla áherslu á sameiginlega heil- brigðisvelferð okkar, ekki síst á sviði hollustu, heilnæms lífs, forvarna og fyrirbyggjandi aðgerða. Forystuhlutverk ESB í því að láta þróa og útvega öllum aðildarríkjunum 27, svo og Ís- landi og Noregi, bóluefni gegn Covid er auðvitað skýrt dæmi um það, en Evrópa virðist nú vera mest og best bólusetta álfa heimsins. Við getum í raun mikið þakkað ráðstöfunum ESB þá staðreynd að við erum nú flest hér bólusett og Covid- varin, þó að veiran herji enn nokkuð á, en auðvitað með miklu mildari afleiðingum. Hluti af sömu viðleitni ESB er samstilling sjúkratrygg- inga í Evrópu, sem leiddi til útgáfu hins evrópska sjúkra- tryggingarkorts, sem veitir Íslendingum aðgang að sjúkraþjónustu og sjúkra- tryggingu í 28 öðrum evrópsk- um löndum. ESB vinnur líka hratt og skipulega að því að tryggja okkar sameiginlega neytenda- rétt og neytendavernd (það hefur knúið fram sanngjörn símakjör fyrir alla ESB- og EES-símanotendur, þar sem menn geta hringt á eigin heimagjaldi um alla álfuna, styrkt réttindi ferðamanna gagnvart flugfélögum og ann- arri ferðaþjónustu, tryggt neytendum sanngjörn þjón- ustugjöld banka o.s.frv.). Það óskoraða ferðafrelsi, dvalarfrelsi, námsfrelsi og starfsfrelsi sem við njótum um mestalla Evrópu er líka ESB að þakka. Það sama gildir þegar kem- ur að baráttunni gegn verð- samráði, einokun og markaðs- misnotkun stórfyrirtækja og alþjóðlegra auðhringa. Þar vakir ESB yfir hagsmunum okkar og velferð og bregst hart við þegar neytendur eða almenningur eru beittir órétti eða yfirgangi. ESB leggur mikla áherslu á okkar sameiginlegu evrópsku menningararfleifð svo og á viðvarandi menntun og menn- ingu íbúa álfunnar og fjár- mögnun hennar. ESB er leiðandi afl á sviði sameiginlegrar tæknilegrar framþróunar okkar, innleið- ingar stafrænna lausna og gervigreindar og fjármögn- unar slíkrar framtíðartækni. Úthlutanir og styrkir, líka til íslenskra einstaklinga og fyr- irtækja, eru ríflegir og fjöl- margir. Þegar kemur að umhverf- isvernd og minnkun meng- unar og eiturefna og barátt- unni gegn spillingu lofts, láðs og lagar, eyðingu dýra, nátt- úru og skóglendis, ekki bara í Evrópu heldur um allan heim, gegnir ESB óumdeildu for- ystuhlutverki. ESB er líka sá aðili sem annast og tryggir sameiginleg ytri landamæri Evrópu. Það er því sannarlega mik- ilvæg og margvísleg þjónusta sem ESB veitir bandalags- þjóðum sínum, svo og okkur tengdum EFTA-þjóðum, fyrir utan alls kyns viðskipta- og efnahagsmál, en á því sviði tryggir sambandið okkur öll- um frjálsan og jafnan mark- aðsaðgang og athafnafrelsi. Stundum hefur maður það á tilfinningunni að sumir hér haldi að þetta hafi allt komið af sjálfu sér, eða sé okkur sjálfum allt að þakka, en það er fjarri lagi. Það sem ESB gerir dagsdaglega fyrir okkur Eftir Ole Ant- on Bieltvedt Ole Anton Bieltvedt »ESB er miklu meira en sam- eiginlegur mark- aður og evran. Höfundur er alþjóðlegur kaupsýslumaður og stjórn- málarýnir. Messur á morgun Ég var nýkomin til Spánar er ég fékk símtal um að Ragga mín væri dá- in, mér varð um og ó. Ég kvaddi hana áður en ég fór, þetta voru sorglegar fréttir, svo var hún jörðuð síðasta fimmtu- dag og þá var ég í flugi heim til Íslands, en Ragga þráði hvíldina, hún sagði það oft við mig. Ragga var ættuð úr Gnúp- verjahreppi eins og ég og var hún fermingarsystir systur minnar heitinnar, hún fer síðust í röðinni af þeim. Þegar ég flutti á Selfoss 1974 urðum við strax Ragnheiður Zóphóníasdóttir ✝ Ragnheiður Zóphóníasdótt- ir fæddist 26. ágúst 1930. Hún lést 29. júní 2021. Útförin fór fram 15. júlí 2021. nánar vinkonur, hún tók mér opnum örmum, þessi elska, sem nú er komin til Stebba síns sem hún saknaði mikið og sagði oft við mig að hún væri ein- mana. Hér á árum áður, skömmu eftir að við hjónin fluttum heim, tókum við upp á því að spila saman vist, alltaf á föstudögum, en eftir að hún missti manninn sinn spiluðum við allt mögulegt annað. Það var allt- af fjör í kringum Röggu mína, hún var dugnaðarkona alla tíð og sakna ég hennar mikið. Ég ætla fljótlega að heimsækja hana út í kirkjugarð að tala við hana og segja henni hversu mikið ég sakna hennar. Sólrún Guðjónsdóttir. Elsku Malla, hér skilur leiðir. Myndir og minningar koma í hugann, við áttum margar ljúfar stund- ir. Börnin okkar Rafn og Sigurdís leiddu okkur saman fyrir rúmum aldafjórðungi. Með okkur tókst einlæg vinátta og kærleiksbönd sem aldrei bar skugga á. Ég kom fljótlega á fallegt heimili ykkar Bödda (Björn Líndal) og mætti mikilli hlýju. Rafn var eina barn ykkar og mikil gleði hefur verið að fá hann í faðminn, heilbrigðan lít- inn dreng. Það er svo að lífinu fylgja bæði gleði og sorgir. Þú fórst ekki varhluta af því. Að fæða þrjá drengi á þremur árum, sem allir dóu á fyrstu dögum lífsins, hefur fylgt mikil sorg og harmur. Í þá daga var ekki sálusorgun né áfallahjálp. Þá var ekki til siðs að tala um áföll og tilfinningar, en fólki ætlað að bera höfuðið hátt og harm sinn í hljóði. Það hefur verið mikil hamingja að fá Rafn og upp- skera barnalán. Þið umvöfðuð hann ást og umhyggju. Þú varst einnig kærleiksrík við allt þitt fólk. Þegar Rafn fór að heiman í menntaskóla tókuð þig Böddi skiptinema frá Frakklandi, Jean- Luc. Alla tíð hélduð þið góðum tengslum við hann og fjölskyldu, og það gagnkvæmt. Síðast kom hann með konu sína, barn og for- eldra og dvaldi hjá ykkur á Húsa- vík. Ykkur hugnaðist að sýna þeim höfuðborgina. Þá var íbúðin mín föl í nokkra daga og þið nutuð samveru sunnan heiða. Þá var Björn Líndal yngri fæddur – gló- kollur og gleðigjafi, fyrsta barna- barn Möllu. Árið 1998 fluttu Sig- urdís og Rafn til Noregs í sérnám. Þar bættust tvö börn við fjölskyld- una, Fannar Steinn og Harpa Dögg. Mál þróuðust svo að fjöl- skyldan ílengdist í Osló. Þegar litið er til baka fóru Málmfríður Pálsdóttir ✝ Málmfríður Pálsdóttir fæddist 8. febrúar 1936. Hún lést 15. júlí 2021. Útförin fór fram 26. júlí 2021. Malla og Böddi oft til Noregs og fjölskyld- an okkar kom heim. Við áttum margar góðar stundir sam- an, á ýmsum tímum árs og einnig um jól bæði í Ósló og Nönnó. Ævinlega fagnaðarfundir og Malla umvafði barnabörnin. Hún fór sem au-pair til Osló eitt vorið, til að vera með tveimur ömmustrákum. Margs er að minnast. Breyting varð þegar Böddi lést fyrir fjórum árum. Þá áttum við Karla Dögg, dóttir mín, frábæra samveru með Möllu, Rafni, Sigur- dísi og börnum á Húsavík. Eitt kvöldið spiluðu þau kubb úti og mikið fjör. Við Malla sátum hlið við hlið, sveipaðar einu teppi, glaðar með okkar fólki. Fyrir jólin 2019 komu Rafn og Sigurdís og sóttu Möllu og hún ílengdist í Osló fram á sumar 2020. Það var Covid sem raskaði ferðaáætlun en frábært að hún fékk góðan tíma og naut sam- veru með barnabörnunum og fylgdist með þeim í leik og starfi. Síðastliðið haust fór heilsa Möllu versnandi. Hún kom suður til læknis. Í apríl kom hún enn í eftirlit – við hittumst eins og fyrr, áttum frábæra dagstund og fórum yfir mörg mikilvæg mál. Þar var líka glens og gaman – en ljóst að heilsa Möllu hafði versnað. Rétt mánuði seinna var hringt frá Osló. Malla hafði fengið heilablóðfall og var komin til Akureyrar. Þá er erfitt að eiga sína nánustu í öðru landi og einnig erfitt fyrir fjöl- skylduna þar. Við Karla Dögg drifum okkur norður, það var mik- ilvægt að Malla sæi fjölskylduna sína og þau gætu talað við hana. Á slíkum stundum þakkar maður tæknina. Malla naut þess ekki síð- ur en fjölskyldan að sjá fólkið sitt á skjánum þó hún ætti erfitt með mál. Síðan kom Rafn og átti góða daga með móður sinni. Ljóst var að hverju stefndi. Að leiðarlokum þakka ég lífinu fyrir Möllu. Minn- ingarnar lifa. Ástvinum votta ég dýpstu samúð. Harpa Njáls. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.