Morgunblaðið - 31.07.2021, Page 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2021
✝
Sigríður
Gunnarsdóttir
fæddist á Mora-
stöðum í Kjós 24.
mars 1946. Hún
lést á heimili sínu
30. júní 2021.
Foreldrar Sig-
ríðar voru Gunnar
Einarsson bóndi, f.
16.12. 1904, d.
16.12. 1987, og Að-
alheiður Ingveldur
Jónsdóttir húsfreyja, f. 5.1.
1911, d. 7.10. 1991. Systkini
Sigríðar eru Bergmann, f.
18.1. 1932, Jón Einar, f. 22.12.
1933, d. 29.12. 2013, Stella
Elsa, f. 30.6. 1935, Björg, f.
2.2. 1937, Ingibjörg, f. 7.7.
1938, Gróa, f. 19.8. 1940, Páll
Ragnar, f. 12.9. 1941, Sveinn,
f. 26.2. 1943, Guðrún, f. 6.2.
1950, og Hallbera, f. 29.6.
1952.
laugur Jón Gunnarsson, f.
5.11. 1972. Börn þeirra eru
Eva Björg, f. 1994. Sambýlis-
maður Evu Bjargar er Guð-
björn Jóhann Kjartansson.
Dóttir Evu Bjargar er Embla
Máney Aðalsteinsdóttir, f.
2016. Gunnar Steinn, f. 2000,
d. 2016, Bjarki Steinn, f. 2008.
3) Gunnar, f. 22.5. 1975. Eig-
inkona Kristín Ólafsdóttir, f.
24.8. 1979. Börn þeirra eru
Arnór Atli, f. 2004, Atli
Hrafn, f. 2009, og Elísabet, f.
2009. 4) Guðbjörg, f. 24.6.
1977. Sambýlismaður Einar
Rúnar Einarsson, f. 20.2.
1976. Börn þeirra eru Sig-
urlína María, f. 2010, og Þór-
dís Inga, f. 2013.
Sigríður bjó fyrstu árin á
Morastöðum í Kjós en fluttist
síðar til Reykjavíkur. Hún
vann lengst af sem matráður í
sameiginlegu mötuneyti
nokkurra fyrirtækja, svo sem
Iðnlánasjóðs, Fjárfesting-
arbanka atvinnulífsins hf. og
Kaupþings hf., í Ármúla 13.
Útför Sigríðar fór fram í
kyrrþey frá Lindakirkju 15.
júlí 2021.
Sigríður giftist
hinn 22.8. 1970
Þorsteini Gísla-
syni, Reykjavík, f.
11.1. 1943. For-
eldrar Þorsteins
voru Gísli Guð-
mundsson, f. 6.7.
1899, d. 20.1. 1971,
og Guðbjörg Jóns-
dóttir, f. 28.9.
1903, d. 23.3. 1996.
Börn Sigríðar
og Þorsteins eru: 1) Gísli, f.
27.1. 1971. Eiginkona Gísla er
Vala D. Jóhannsdóttir, f. 8.8.
1973. Sonur þeirra er Þor-
steinn, f. 2010. Stjúpsonur
Gísla er Jóhann Ágúst, f.
2001. Fyrri eiginkona Gísla er
Þuríður Hjartardóttir, f. 16.4.
1974. Dætur þeirra eru Selma
Kristín, f. 1999, og Sunna Sig-
ríður, f. 2003. 2) Aðalheiður,
f. 16.6. 1974. Eiginmaður Guð-
Elsku mamma, ekki hefði
mig grunað að tíminn þinn hér
hjá okkur væri senn á enda. Þú
gerðir allt fyrir alla en þáðir
sjaldan aðstoðina sjálf. Það var
ekkert sem þú gast ekki gert,
brettir upp ermar og óðst í
verkin, sannkölluð súper-
mamma.
Síðastliðin ár fór heilsu þinni
að hraka en alltaf varstu til í
smá flakk, kíkja í búðir og
njóta. Ég er viss um að þú sért
m.a. byrjuð að veiða, tína ber
og horfa á fótboltann í sum-
arlandinu með elsku Gunnari
syni mínum.
Það er sárt að kveðja, en
með óendanlegu þakklæti og
hlýju kveð ég þig að sinni,
mamma mín, þín dóttir Heiða.
Þótt móðir mín
sé nú aðeins minningin ein
mun ég ávallt minnast hennar
með glöðu geði
og dýpstu virðingu,
hugheilu þakklæti
og hjartans hlýju,
fyrir allt og allt.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Aðalheiður
Þorsteinsdóttir.
Fimmtudaginn 15. júlí fylgdi
ég móður minni hin hinstu
skref. Síðustu vikur frá því að
þú kvaddir hef ég verið að
hugsa um allar okkar samveru-
stundir. Þú varst með mér í öll-
um mínum stærstu ákvarðana-
tökum þegar ég var að koma
mér út í lífið, fyrsti bíllinn,
fyrsta íbúðin og framtíðarstarf-
ið. Þú hvattir mig alltaf áfram í
öllu því sem ég tók mér fyrir
hendur.
Eftir sitja margar góðar
minningar og samverustundir.
Það var svo gott að leita til þín,
hvort sem það var undirbún-
ingur fyrir tjaldútileiguna,
barnauppeldi, matreiðsla eða
eitthvað annað.
Við systkinin ólumst upp í
Vesturberginu, fjögur börn á
sex árum. Ég spurði þig oft
hvernig þú hefðir komist í
gegnum þessi ár en þú sagðir
alltaf að það hefði ekki verið
mikið mál því við hefðum verið
svo stillt og góð. Ég á góðar
minningar um grillaðan kjúk-
ling á sunnudögum og pönnu-
kökurnar þínar frægu. Við ferð-
uðumst mikið saman, bæði
innanlands og utan. Þökk sé
starfi þínu hjá Flugleiðum feng-
um við tækifæri til að ferðast til
Bretlands, Bandaríkjanna og
Þýskalands þegar það var ekki
svo algengt. Ég á einnig góðar
minningar um tjaldútilegur, bú-
staðar- og skíðaferðir okkar
saman.
Ég hef líka verið að hugsa
um æskuna og uppeldið. Þú
varst ótrúlega skapgóð og þol-
inmóð. Þú nappaðir mig þegar
ég var að reykja sem táningur.
Í stað þess að brjálast hvattir
þú mig bara til að hætta að
reykja og skelltir í mig nálast-
ungum til að hjálpa mér með
það. Þurfti nú ekki meira til hjá
mér.
Þú varst flakkari eins og ég,
ég gat alltaf hringt í þig og beð-
ið þig að koma á flakk og þú
sagðir alltaf já. Alveg sama
hvað það var ómerkilegt. Á
okkar litla flakki náðum við allt-
af góðu spjalli um allt og ekk-
ert. Eitthvað svo hversdags en
dýrmætt núna. Það er svo oft
núna síðustu daga sem ég hef
hugsað til þín og hugsað með
mér: ég hefði viljað hringja í
mömmu og segja henni frá hinu
eða þessu.
Ég er óendanlega þakklát
fyrir kvöldstundina okkar
Heiðu og Evu með þér á sunnu-
daginn áður en þú kvaddir. Við
fórum fínt út að borða, þú sýnd-
ir okkur fínu fötin sem þú hafð-
ir keypt þér fyrr í vikunni. Við
spjölluðum svo um hitt og þetta
eins og svo oft áður. Aldrei
hefði ég trúað að þetta væri síð-
asta sinn sem ég hitti þig.
Elsku mamma, ég verð þér
eilíflega þakklát fyrir trú þína á
mér, fyrir hjálpfýsi þína og fyr-
ir að vera alltaf til staðar.
Minning þín lifir.
Guðbjörg
og fjölskylda.
Það er sagt að ljósmyndir
fangi minningar. Það er nokkuð
til í því. Þegar móðir mín féll
frá nokkuð skyndilega nýverið
fékk ég í hendur fjölmargar
myndir og myndaalbúm úr lífi
fjölskyldunnar sem við nánari
skoðun veittu mér nýja sýn á líf
mömmu minnar. Það er ein-
hvern veginn þannig að þó að
hlutirnir blasi við manni á mað-
ur það til að veita þeim ekki
eftirtekt og taka þeim sem
sjálfsögðum hlut. En þegar ég
var að blaða í öllum þessum
gömlu myndum eftir fráfall
mömmu áttaði ég mig loksins
betur á því fyrir hvað hún hafði
staðið. Fyrir utan að hafa staðið
sig afskaplega vel í uppeldi okk-
ar systkina og hamhleypa til
vinnu alla tíð blasti við hversu
mikill náttúruunnandi hún var.
Mamma ólst upp á sveitabæ í
Kjósinni og bernskan þar hefur
mótað persónu hennar afar
sterkt. Tækninýjungar þess
tíma voru á margan hátt víðs
fjarri og því þurfti að hafa
meira fyrir hlutunum hvort sem
það var við vinnu eða leik. Ég
hugsa að tengingin við sveit og
náttúru hafi ætið verið sterk
upp frá því. Það má því segja
að hún hafi notið sín vel fyrstu
búskaparárin sín og uppvaxt-
arár okkar systkina í Búrfelli
og á hálendinu við Sigöldu, þar
sem pabbi vann sem vélfræð-
ingur við virkjanir. Þar var
náttúran alltumlykjandi. Að-
stæður í Sigöldu voru á margan
hátt fremur ýktar; þarna var
lítil sem engin byggð nema
starfsfólk virkjunarinnar. Veð-
ur gat orðið allsvakalegt yfir
vetrartímann, snjóþyngsli mikil
og einangrunin eftir því. Að
sama skapi gat staðurinn skart-
að sínu fegursta yfir sumartím-
ann og í minningunni er Sigalda
nokkurs konar ævintýraheimur
sem seint rennur úr minni. Það-
an á ég margar góðar minn-
ingar um mömmu, sem stýrði
ört vaxandi heimili af mynd-
arskap.
Þegar fjölskyldan flutti í bæ-
inn tóku við ófáar útilegur með
mömmu og pabba sem gott er
að minnast. Þau voru einkar
dugleg að kynna okkur landið,
sem ég held að sé gríðarlega
mikilvægt í uppvexti barna og
unglinga. Mér er einkum minn-
isstæð ferð sem við fórum um
Vestfirði 1980, ferð sem ég man
nú ekki í smáatriðum en þessar
glefsur lifa svo sannarlega með
mér og munu gera um alla tíð.
Þráin eftir sveitasælunni hélt
svo áfram hjá mömmu eftir að
við börnin vorum vaxin úr
grasi. Lengi vel létu þau pabbi
einfalt tjald duga en svo þegar
hagur vænkaðist hjá þeim festu
þau kaup á tjaldvögnum, hjól-
hýsi og húsbíl. Á honum fóru
þau landshorna á milli og létu
vel af. Er mér það minnisstætt
að þurfa að bóka tíma hjá þeim
með góðum fyrirvara á sumrin
ef mig vantaði aðstoð með börn-
in mín því annars voru þau þot-
in út á land á húsbílnum, svo
mikil var útþráin.
Mamma sat ekki auðum
höndum þegar hún ferðaðist um
landið. Hún var afar slyng
veiðikló og veiddi í ófáum vötn-
um og ám í gegnum árin og á
tímabili fannst mér hún vart
hugsa um annað en að komast í
veiði. Þá tók hún oft með sér
golfsettið og var orðin vel lið-
tæk í þeirri íþrótt á tímabili.
Elsku mamma, takk fyrir all-
ar góðu stundirnar, ég þykist
vita að þú sért farin að leggja
drög að næstu útilegu á nýjum
stað.
Þinn sonur,
Gísli.
Elsku amma mín, þessi sorg
minnir mig á þegar Gunnar
bróðir kvaddi þennan heim.
Þegar ég óð í burtu og faldi mig
fyrir öllum þá leitaðir þú að
mér, þrýstir tárunum mínum
burt með lófanum þínum og
varst hjá mér. Þótt þú hafir
verið í þinni sorg varstu sterk
fyrir mig. Þetta lýsir þér svo
mikið elsku amma, þú varst
alltaf til staðar fyrir aðra og
settir alla í fyrsta sæti.
Þú varst alltaf til staðar fyrir
alla og vildir öllum svo vel. Þú
varst sterk og hafðir alltaf verið
mikill dugnaðarforkur. Þú lést
verkin tala, það skipti ekki máli
hvernig verk, þú óðst í öll verk
og gerðir þau vel. Þú kenndir
mér að vera sjálfstæð, sönn
sjálfri mér og standa á minni
skoðun.
Ég er elsta barnabarnið þitt
og afa og fékk góðan tíma með
ykkur. Ég á yndislega minn-
ingar með þér og afa á flakki
um landið og minningar af þér í
vöðlunum að veiða. Flestir tína
blóm handa ömmum sínum en
ég kepptist við að tína orma
handa þér í ormaboxið fyrir
veiðina. Það var svo mikið æv-
intýri að koma í pössun til þín
og afa. Ég var drottningin á
heimilinu og þið gerðuð allt fyr-
ir mig. Ég og afi fórum í hjólat-
úr eða göngutúr á meðan þú
galdraðir fram þínar frægu
pönnukökur. Ég fékk líka rab-
arbara úr garðinum og dýfði
honum vel í sykurinn.
Þú og afi voruð dugleg að
ferðast um allan heim og send-
uð mér alltaf póstkort með fal-
legum myndum og sögum. En
nú ert þú farin í ferðalag til
elsku Gunnars og ég veit þú
knúsar hann frá okkur.
Ég mun varðveita minningar
okkar saman. Þú átt stóran sess
í hjartanu mínu. Þangað til
næst elsku amma.
Eva Björg
Guðlaugsdóttir.
Elsku systir. Ekki átti ég von
á að skrifa minningabrot um
þig núna, kallið kom allt of
fljótt og enginn var fyrirvarinn.
Takk fyrir alla hjálpina í gegn-
um árin, alltaf varstu tilbúin að
rétta hjálparhönd við afmælis-
og veisluundirbúning, og að
passa börnin okkar þótt nóg
væri af börnum á heimilinu fyr-
ir hjá ykkur. Það var ekkert
vandamál, bara sjálfsagt. Takk
fyrir allt.
Góða ferð í sumarlandið
kæra systir. Elsku Steini, Gísli,
Heiða, Gunnar, Guðbjörg og
fjölskyldur, innilegar samúðar-
kveðjur til ykkar, megi góðar
minningar ylja ykkur á erfiðum
tímum.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin, sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni
(Bubbi Morthens)
Hallbera (Haddý), Kristinn
(Diddi) og fjölskylda.
Sigríður
Gunnarsdóttir
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar
okkar ástkæra
HÓLMSTEINS T. HÓLMSTEINSSONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks krabba-
meins- og líknardeildar Landspítalans.
Einnig þökkum við starfsfólki heimahlynningar Heru fyrir alúð
og góða umönnun.
Rut Ófeigsdóttir
Ófeigur Tómas Hólmsteinss. Kristín Hrund Clausen
Egill Orri Hólmsteinsson Svava Kristín Sigurðardóttir
Einar Már Hólmsteinsson Sólveig Jónasdóttir
og barnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa, langafa og langalangafa,
FLOSA GUNNARS VALDIMARSSONAR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
krabbameinsdeildar Landspítalans fyrir alúð og umhyggju.
Anna Gísladóttir
Mjöll Flosadóttir Þórir Haraldsson
Kjartan Flosason Kristín Eggertsdóttir
Eybjörg Drífa Flosadóttir Svanur Þór Karlsson
Nanna Sjöfn Pétursdóttir
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn
Óli Pétur
Útfararstjóri
s. 892 8947
Hinrik Valsson
Útfararstjóri
s. 760 2300
Dalsbyggð 15, Garðabæ
Sími 551 3485
osvaldutfor@gmail.com
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
MAGNÚS THEODÓR MAGNÚSSON,
Teddi,
myndhöggvari
og fyrrv. brunavörður,
andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði 20. júlí.
Útförin fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn 5. ágúst klukkan 13.
Gestir velkomnir innan gildandi samkomutakmarkana.
Ársæll Magnússon
Analisa Monticello
Dóra Magnúsdóttir Guðmundur Jón Guðjónsson
Andri, Atli, Kári, Daði, Lilja, Lára Guðbjörg,
Theodór og Hjalti
Okkar kæri vinur,
MÁR INGVASON,
Goðaborgum 8,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
mánudaginn 19. júlí. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hins látna.
Læknum og hjúkrunarfólki á deildum 13E, A4 og líknardeild
er þakkað fyrir yndislega framkomu og góða umönnun í
veikindum Más.
Skorradalsfjölskyldan
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
HELGU SKÚLADÓTTUR
frá Urðarteigi.
Innilegt þakklæti til starfsfólks Landspítalans og Sjúkrahússins í
Neskaupstað fyrir hlýja og góða umönnun.
Þorsteinn Ársælsson
og fjölskylda
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ELÍN ÞORVARÐARDÓTTIR,
Hringbraut 2b, Hafnarfirði,
lést á Sólvangi 18. júlí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Jón Elíasson
Steinunn Jónsdóttir
Þorvarður Sigurður Jónsson Tinna Rut Njálsdóttir
og ömmubörn