Morgunblaðið - 31.07.2021, Side 25

Morgunblaðið - 31.07.2021, Side 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2021 ✝ Sigríður Gunnarsdóttir fæddist á Mora- stöðum í Kjós 24. mars 1946. Hún lést á heimili sínu 30. júní 2021. Foreldrar Sig- ríðar voru Gunnar Einarsson bóndi, f. 16.12. 1904, d. 16.12. 1987, og Að- alheiður Ingveldur Jónsdóttir húsfreyja, f. 5.1. 1911, d. 7.10. 1991. Systkini Sigríðar eru Bergmann, f. 18.1. 1932, Jón Einar, f. 22.12. 1933, d. 29.12. 2013, Stella Elsa, f. 30.6. 1935, Björg, f. 2.2. 1937, Ingibjörg, f. 7.7. 1938, Gróa, f. 19.8. 1940, Páll Ragnar, f. 12.9. 1941, Sveinn, f. 26.2. 1943, Guðrún, f. 6.2. 1950, og Hallbera, f. 29.6. 1952. laugur Jón Gunnarsson, f. 5.11. 1972. Börn þeirra eru Eva Björg, f. 1994. Sambýlis- maður Evu Bjargar er Guð- björn Jóhann Kjartansson. Dóttir Evu Bjargar er Embla Máney Aðalsteinsdóttir, f. 2016. Gunnar Steinn, f. 2000, d. 2016, Bjarki Steinn, f. 2008. 3) Gunnar, f. 22.5. 1975. Eig- inkona Kristín Ólafsdóttir, f. 24.8. 1979. Börn þeirra eru Arnór Atli, f. 2004, Atli Hrafn, f. 2009, og Elísabet, f. 2009. 4) Guðbjörg, f. 24.6. 1977. Sambýlismaður Einar Rúnar Einarsson, f. 20.2. 1976. Börn þeirra eru Sig- urlína María, f. 2010, og Þór- dís Inga, f. 2013. Sigríður bjó fyrstu árin á Morastöðum í Kjós en fluttist síðar til Reykjavíkur. Hún vann lengst af sem matráður í sameiginlegu mötuneyti nokkurra fyrirtækja, svo sem Iðnlánasjóðs, Fjárfesting- arbanka atvinnulífsins hf. og Kaupþings hf., í Ármúla 13. Útför Sigríðar fór fram í kyrrþey frá Lindakirkju 15. júlí 2021. Sigríður giftist hinn 22.8. 1970 Þorsteini Gísla- syni, Reykjavík, f. 11.1. 1943. For- eldrar Þorsteins voru Gísli Guð- mundsson, f. 6.7. 1899, d. 20.1. 1971, og Guðbjörg Jóns- dóttir, f. 28.9. 1903, d. 23.3. 1996. Börn Sigríðar og Þorsteins eru: 1) Gísli, f. 27.1. 1971. Eiginkona Gísla er Vala D. Jóhannsdóttir, f. 8.8. 1973. Sonur þeirra er Þor- steinn, f. 2010. Stjúpsonur Gísla er Jóhann Ágúst, f. 2001. Fyrri eiginkona Gísla er Þuríður Hjartardóttir, f. 16.4. 1974. Dætur þeirra eru Selma Kristín, f. 1999, og Sunna Sig- ríður, f. 2003. 2) Aðalheiður, f. 16.6. 1974. Eiginmaður Guð- Elsku mamma, ekki hefði mig grunað að tíminn þinn hér hjá okkur væri senn á enda. Þú gerðir allt fyrir alla en þáðir sjaldan aðstoðina sjálf. Það var ekkert sem þú gast ekki gert, brettir upp ermar og óðst í verkin, sannkölluð súper- mamma. Síðastliðin ár fór heilsu þinni að hraka en alltaf varstu til í smá flakk, kíkja í búðir og njóta. Ég er viss um að þú sért m.a. byrjuð að veiða, tína ber og horfa á fótboltann í sum- arlandinu með elsku Gunnari syni mínum. Það er sárt að kveðja, en með óendanlegu þakklæti og hlýju kveð ég þig að sinni, mamma mín, þín dóttir Heiða. Þótt móðir mín sé nú aðeins minningin ein mun ég ávallt minnast hennar með glöðu geði og dýpstu virðingu, hugheilu þakklæti og hjartans hlýju, fyrir allt og allt. (Sigurbjörn Þorkelsson) Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Fimmtudaginn 15. júlí fylgdi ég móður minni hin hinstu skref. Síðustu vikur frá því að þú kvaddir hef ég verið að hugsa um allar okkar samveru- stundir. Þú varst með mér í öll- um mínum stærstu ákvarðana- tökum þegar ég var að koma mér út í lífið, fyrsti bíllinn, fyrsta íbúðin og framtíðarstarf- ið. Þú hvattir mig alltaf áfram í öllu því sem ég tók mér fyrir hendur. Eftir sitja margar góðar minningar og samverustundir. Það var svo gott að leita til þín, hvort sem það var undirbún- ingur fyrir tjaldútileiguna, barnauppeldi, matreiðsla eða eitthvað annað. Við systkinin ólumst upp í Vesturberginu, fjögur börn á sex árum. Ég spurði þig oft hvernig þú hefðir komist í gegnum þessi ár en þú sagðir alltaf að það hefði ekki verið mikið mál því við hefðum verið svo stillt og góð. Ég á góðar minningar um grillaðan kjúk- ling á sunnudögum og pönnu- kökurnar þínar frægu. Við ferð- uðumst mikið saman, bæði innanlands og utan. Þökk sé starfi þínu hjá Flugleiðum feng- um við tækifæri til að ferðast til Bretlands, Bandaríkjanna og Þýskalands þegar það var ekki svo algengt. Ég á einnig góðar minningar um tjaldútilegur, bú- staðar- og skíðaferðir okkar saman. Ég hef líka verið að hugsa um æskuna og uppeldið. Þú varst ótrúlega skapgóð og þol- inmóð. Þú nappaðir mig þegar ég var að reykja sem táningur. Í stað þess að brjálast hvattir þú mig bara til að hætta að reykja og skelltir í mig nálast- ungum til að hjálpa mér með það. Þurfti nú ekki meira til hjá mér. Þú varst flakkari eins og ég, ég gat alltaf hringt í þig og beð- ið þig að koma á flakk og þú sagðir alltaf já. Alveg sama hvað það var ómerkilegt. Á okkar litla flakki náðum við allt- af góðu spjalli um allt og ekk- ert. Eitthvað svo hversdags en dýrmætt núna. Það er svo oft núna síðustu daga sem ég hef hugsað til þín og hugsað með mér: ég hefði viljað hringja í mömmu og segja henni frá hinu eða þessu. Ég er óendanlega þakklát fyrir kvöldstundina okkar Heiðu og Evu með þér á sunnu- daginn áður en þú kvaddir. Við fórum fínt út að borða, þú sýnd- ir okkur fínu fötin sem þú hafð- ir keypt þér fyrr í vikunni. Við spjölluðum svo um hitt og þetta eins og svo oft áður. Aldrei hefði ég trúað að þetta væri síð- asta sinn sem ég hitti þig. Elsku mamma, ég verð þér eilíflega þakklát fyrir trú þína á mér, fyrir hjálpfýsi þína og fyr- ir að vera alltaf til staðar. Minning þín lifir. Guðbjörg og fjölskylda. Það er sagt að ljósmyndir fangi minningar. Það er nokkuð til í því. Þegar móðir mín féll frá nokkuð skyndilega nýverið fékk ég í hendur fjölmargar myndir og myndaalbúm úr lífi fjölskyldunnar sem við nánari skoðun veittu mér nýja sýn á líf mömmu minnar. Það er ein- hvern veginn þannig að þó að hlutirnir blasi við manni á mað- ur það til að veita þeim ekki eftirtekt og taka þeim sem sjálfsögðum hlut. En þegar ég var að blaða í öllum þessum gömlu myndum eftir fráfall mömmu áttaði ég mig loksins betur á því fyrir hvað hún hafði staðið. Fyrir utan að hafa staðið sig afskaplega vel í uppeldi okk- ar systkina og hamhleypa til vinnu alla tíð blasti við hversu mikill náttúruunnandi hún var. Mamma ólst upp á sveitabæ í Kjósinni og bernskan þar hefur mótað persónu hennar afar sterkt. Tækninýjungar þess tíma voru á margan hátt víðs fjarri og því þurfti að hafa meira fyrir hlutunum hvort sem það var við vinnu eða leik. Ég hugsa að tengingin við sveit og náttúru hafi ætið verið sterk upp frá því. Það má því segja að hún hafi notið sín vel fyrstu búskaparárin sín og uppvaxt- arár okkar systkina í Búrfelli og á hálendinu við Sigöldu, þar sem pabbi vann sem vélfræð- ingur við virkjanir. Þar var náttúran alltumlykjandi. Að- stæður í Sigöldu voru á margan hátt fremur ýktar; þarna var lítil sem engin byggð nema starfsfólk virkjunarinnar. Veð- ur gat orðið allsvakalegt yfir vetrartímann, snjóþyngsli mikil og einangrunin eftir því. Að sama skapi gat staðurinn skart- að sínu fegursta yfir sumartím- ann og í minningunni er Sigalda nokkurs konar ævintýraheimur sem seint rennur úr minni. Það- an á ég margar góðar minn- ingar um mömmu, sem stýrði ört vaxandi heimili af mynd- arskap. Þegar fjölskyldan flutti í bæ- inn tóku við ófáar útilegur með mömmu og pabba sem gott er að minnast. Þau voru einkar dugleg að kynna okkur landið, sem ég held að sé gríðarlega mikilvægt í uppvexti barna og unglinga. Mér er einkum minn- isstæð ferð sem við fórum um Vestfirði 1980, ferð sem ég man nú ekki í smáatriðum en þessar glefsur lifa svo sannarlega með mér og munu gera um alla tíð. Þráin eftir sveitasælunni hélt svo áfram hjá mömmu eftir að við börnin vorum vaxin úr grasi. Lengi vel létu þau pabbi einfalt tjald duga en svo þegar hagur vænkaðist hjá þeim festu þau kaup á tjaldvögnum, hjól- hýsi og húsbíl. Á honum fóru þau landshorna á milli og létu vel af. Er mér það minnisstætt að þurfa að bóka tíma hjá þeim með góðum fyrirvara á sumrin ef mig vantaði aðstoð með börn- in mín því annars voru þau þot- in út á land á húsbílnum, svo mikil var útþráin. Mamma sat ekki auðum höndum þegar hún ferðaðist um landið. Hún var afar slyng veiðikló og veiddi í ófáum vötn- um og ám í gegnum árin og á tímabili fannst mér hún vart hugsa um annað en að komast í veiði. Þá tók hún oft með sér golfsettið og var orðin vel lið- tæk í þeirri íþrótt á tímabili. Elsku mamma, takk fyrir all- ar góðu stundirnar, ég þykist vita að þú sért farin að leggja drög að næstu útilegu á nýjum stað. Þinn sonur, Gísli. Elsku amma mín, þessi sorg minnir mig á þegar Gunnar bróðir kvaddi þennan heim. Þegar ég óð í burtu og faldi mig fyrir öllum þá leitaðir þú að mér, þrýstir tárunum mínum burt með lófanum þínum og varst hjá mér. Þótt þú hafir verið í þinni sorg varstu sterk fyrir mig. Þetta lýsir þér svo mikið elsku amma, þú varst alltaf til staðar fyrir aðra og settir alla í fyrsta sæti. Þú varst alltaf til staðar fyrir alla og vildir öllum svo vel. Þú varst sterk og hafðir alltaf verið mikill dugnaðarforkur. Þú lést verkin tala, það skipti ekki máli hvernig verk, þú óðst í öll verk og gerðir þau vel. Þú kenndir mér að vera sjálfstæð, sönn sjálfri mér og standa á minni skoðun. Ég er elsta barnabarnið þitt og afa og fékk góðan tíma með ykkur. Ég á yndislega minn- ingar með þér og afa á flakki um landið og minningar af þér í vöðlunum að veiða. Flestir tína blóm handa ömmum sínum en ég kepptist við að tína orma handa þér í ormaboxið fyrir veiðina. Það var svo mikið æv- intýri að koma í pössun til þín og afa. Ég var drottningin á heimilinu og þið gerðuð allt fyr- ir mig. Ég og afi fórum í hjólat- úr eða göngutúr á meðan þú galdraðir fram þínar frægu pönnukökur. Ég fékk líka rab- arbara úr garðinum og dýfði honum vel í sykurinn. Þú og afi voruð dugleg að ferðast um allan heim og send- uð mér alltaf póstkort með fal- legum myndum og sögum. En nú ert þú farin í ferðalag til elsku Gunnars og ég veit þú knúsar hann frá okkur. Ég mun varðveita minningar okkar saman. Þú átt stóran sess í hjartanu mínu. Þangað til næst elsku amma. Eva Björg Guðlaugsdóttir. Elsku systir. Ekki átti ég von á að skrifa minningabrot um þig núna, kallið kom allt of fljótt og enginn var fyrirvarinn. Takk fyrir alla hjálpina í gegn- um árin, alltaf varstu tilbúin að rétta hjálparhönd við afmælis- og veisluundirbúning, og að passa börnin okkar þótt nóg væri af börnum á heimilinu fyr- ir hjá ykkur. Það var ekkert vandamál, bara sjálfsagt. Takk fyrir allt. Góða ferð í sumarlandið kæra systir. Elsku Steini, Gísli, Heiða, Gunnar, Guðbjörg og fjölskyldur, innilegar samúðar- kveðjur til ykkar, megi góðar minningar ylja ykkur á erfiðum tímum. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin, sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni (Bubbi Morthens) Hallbera (Haddý), Kristinn (Diddi) og fjölskylda. Sigríður Gunnarsdóttir Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra HÓLMSTEINS T. HÓLMSTEINSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks krabba- meins- og líknardeildar Landspítalans. Einnig þökkum við starfsfólki heimahlynningar Heru fyrir alúð og góða umönnun. Rut Ófeigsdóttir Ófeigur Tómas Hólmsteinss. Kristín Hrund Clausen Egill Orri Hólmsteinsson Svava Kristín Sigurðardóttir Einar Már Hólmsteinsson Sólveig Jónasdóttir og barnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, FLOSA GUNNARS VALDIMARSSONAR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki krabbameinsdeildar Landspítalans fyrir alúð og umhyggju. Anna Gísladóttir Mjöll Flosadóttir Þórir Haraldsson Kjartan Flosason Kristín Eggertsdóttir Eybjörg Drífa Flosadóttir Svanur Þór Karlsson Nanna Sjöfn Pétursdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Óli Pétur Útfararstjóri s. 892 8947 Hinrik Valsson Útfararstjóri s. 760 2300 Dalsbyggð 15, Garðabæ Sími 551 3485 osvaldutfor@gmail.com Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚS THEODÓR MAGNÚSSON, Teddi, myndhöggvari og fyrrv. brunavörður, andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði 20. júlí. Útförin fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn 5. ágúst klukkan 13. Gestir velkomnir innan gildandi samkomutakmarkana. Ársæll Magnússon Analisa Monticello Dóra Magnúsdóttir Guðmundur Jón Guðjónsson Andri, Atli, Kári, Daði, Lilja, Lára Guðbjörg, Theodór og Hjalti Okkar kæri vinur, MÁR INGVASON, Goðaborgum 8, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 19. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Læknum og hjúkrunarfólki á deildum 13E, A4 og líknardeild er þakkað fyrir yndislega framkomu og góða umönnun í veikindum Más. Skorradalsfjölskyldan Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HELGU SKÚLADÓTTUR frá Urðarteigi. Innilegt þakklæti til starfsfólks Landspítalans og Sjúkrahússins í Neskaupstað fyrir hlýja og góða umönnun. Þorsteinn Ársælsson og fjölskylda Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN ÞORVARÐARDÓTTIR, Hringbraut 2b, Hafnarfirði, lést á Sólvangi 18. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Jón Elíasson Steinunn Jónsdóttir Þorvarður Sigurður Jónsson Tinna Rut Njálsdóttir og ömmubörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.