Morgunblaðið - 31.07.2021, Qupperneq 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2021
✝
Þorgeir Brimir
Hjaltason
fæddist 31. ágúst
árið 1939 í Brunn-
vör á Raufarhöfn.
Hann lést á HSN á
Húsavík þann 20.
júlí 2021.
Foreldrar hans
voru Hjalti Frið-
geirsson, f. 10.12.
1911, d. 30.5. 1981,
frá Hóli á Sléttu og
Þórhildur Kristinsdóttir, f. 29.1.
1913, d. 15.7. 1995, frá Garð-
stungu í Þistilfirði. Þorgeir
Þorgeir og Signý eignuðust
fimm börn: 1) Þórhildur Hrönn,
f. 1961, fyrrverandi maki Gunn-
ar F. Jónasson, þau eiga þrjú
börn og tvö barnabörn. 2) Fjóla
Björg, f. 1964, maki Þorbergur
Gestsson, þau eiga þrjú börn,
eitt þeirra er látið, og fimm
barnabörn. 3) Heiða Ingunn, f.
1970, fyrrverandi maki Magnús
Einarsson, þau eiga þrjú börn
og eitt barnabarn, en Magnús
átti eitt barn fyrir. 4) Hörður
Ingimar, f. 1970, maki Kristín
Þ. Pálsdóttir, þau eiga tvö börn
og eitt barnabarn, en Kristín
átti eitt barn fyrir. 5) Hugrún
Elva, f. 1977, fyrrverandi maki
Sæmundur Jóhannsson, þau
eiga eitt barn.
Útför Þorgeirs fer fram frá
Raufarhafnarkirkju í dag, 31.
júlí 2021, klukkan 14.
Brimir ólst upp í
stórum systk-
inahópi en þau
voru samtals ellefu
og var Þorgeir
elstur þeirra.
Þorgeir Brimir
kvæntist Signýju
Einarsdóttur, f.
22.4. 1940, þann
29.12. 1962.
Segja má að
Þorgeir hafi starf-
að við sjómennsku á Rauf-
arhöfn frá 10 ára aldri til 67
ára aldurs.
Ég hef ekki verið nema sjö ára
gömul þegar afi hætti á sjó. Við
sátum oft saman við eldhús-
gluggann og fylgdumst með bát-
um koma í höfn og tókum ósjald-
an rúnt niður að bryggju til þess
að athuga hve vel hafði fiskast.
Ég varði miklum tíma hjá ömmu
og afa í Akurgerði á uppvaxt-
arárum og þar leið mér einstak-
lega vel. Ég upplifði aldrei að ég
væri að ónáða afa. Hann var þol-
inmóður, umburðarlyndur og
mikill húmoristi. Honum tókst
svo vel að gefa mér hlutverk, til
dæmis þegar leið okkar lá inn í
bústað í Þverárdal. Þá bað hann
mig að láta sig vita þegar ein-
breiðar brýr væru fram undan
svo hann gæti undirbúið sig.
Auðvitað vissi hann hvenær von
væri á þeim en gekk úr skugga
um að ég upplifði að ég skipti
máli.
Afi eyddi miklum tíma í skúrn-
um þar sem hann vann hin ýmsu
verk, skapaði og smíðaði. Ég hef
stundum velt því fyrir mér hvers
vegna hann kenndi mér ekki að
smíða og nota verkfæri. Sýndi ég
því aldrei áhuga og bjóst afi ekki
við því að áhuginn gæti kviknað?
Í dag er mér þó ljóst að hann
kenndi mér eitthvað mun dýr-
mætara. Ég hef alla tíð verið
mikil tilfinningavera og trúi því
að afi vissi nákvæmlega á hverju
ég þurfti að halda. Hann kenndi
mér að yrkja ljóð. Hann gaf mér
verkfæri til að vinna úr áföllum
og komast í gegnum erfiða tíma
en sorgina hef ég bundið í ljóðum
og textum síðan ég var barn. Afi
gaf mér eina dýrmætustu gjöf
sem ég hef fengið.
Manstu það ekki afi
allt sem færðir þú mér.
Ég veit ekki hvort ég hafi
af einlægni þakkað þér.
Ég kveð þig með hlýju í hjarta,
finn í huga mér ró.
Ég man þig dagana bjarta
er umhverfið speglast í sjó.
Þorbjörg Eva Magnúsdóttir.
Þorgeir Brimir
Hjaltason
✝
Elín Bjarney
Jóhannsdóttir,
Elley, fæddist í
Vestmannaeyjum
19. september
1944. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Vestmannaeyja 13.
júlí 2021.
Foreldarar
hennar voru Sig-
ríður Júnía Júníus-
dóttir og Jóhann
Eysteinsson. Systur Elleyjar
eru Sigrún, f. 1938, d. 1983, og
Selma, f. 1942.
Eiginmaður Elleyjar er Svav-
ar Sigmundsson, fæddur í Vest-
mannaeyjum 1944. Móðir hans
var Klara Kristjánsdóttir frá
Vestmannaeyjum og faðir var
Elley ólst upp í Vest-
mannaeyjum þar sem hún unni
sér alltaf vel. Á yngri árum tók
hún virkan þátt í íþróttastarfi
Týs í handbolta. Sem ung kona
fór hún til Noregs, nánar til-
tekið til Voss þar sem hún var í
lýðháskóla á íþróttasviði í tvö
ár.
Elley og Svavar giftu sig á
jóladag 1964 og byrjuðu sinn
búskap í Hásteinsblokkinni í
Vestmannaeyjum. Þar bjuggu
þau til ársins 1967 er þau fluttu
á Heiðarveg og hafa búið þar
síðan.
Elley vann lengst af bók-
halds- og skrifstofustörf, fyrst
hjá Vinnslustöðinni og síðar hjá
sínu eigin fyrirtæki, Brimnesi,
sem hún rak ásamt eiginmanni í
33 ár. Elley var mikil hann-
yrðakona og hafði áhuga á ætt-
fræði, ferðalögum og málum
líðandi stundar.
Útför Elleyjar fór fram í
Landakirkju 22. júlí 2021, í
kyrrþey, að ósk hinnar látnu.
Sigmundur Karls-
son frá Stokkseyri.
Börn Elleyjar og
Svavars eru þrjú:
1) Héðinn, f. 1965,
eiginkona Jóna
Guðrún Guðmunds-
dóttir, f. 1967, börn
þeirra eru Guð-
mundur Þór, f.
1993, Elín Harpa, f.
1996, Tómas Árni,
f. 2000. 2) Jóhanna
Sigríður, f. 1972, eiginmaður
Stefán Guðmundsson, f. 1967.
Dætur Jóhönnu eru Rakel Ása,
f. 2001, og Katrín Svava, f.
2004. 3) Svavar Örn, f. 1976,
sambýliskona Sara María Pål-
son, f. 1981. Dóttir Svavars er
Díana Dögg, f. 2001.
Mamma mín elskuleg er fallin
frá eftir langvinna baráttu við
krabbamein. Hún barðist hetju-
lega gegn sjúkdómnum en meinið
var ólæknandi. Það er sársauka-
full staðreynd.
Ég syrgi yndislega móður sem
alltaf tók fullan þátt í lífi mínu af
heilum hug og af öllu hjarta. Með
sínu fallega og hlýja brosi, gáfum
sínum og jákvæðni var hún svo
gefandi. Hún kenndi manni að
nálgast viðfangsefni hversdags-
ins sem og flókin verkefni lífsins
af æðruleysi, kærleika og þraut-
seigju. Aldrei kom maður að tóm-
um kofunum þegar mann vantaði
upplýsingar um bara hvað sem
var. Hún var vel að sér í svo
mörgu og fylgdist vel með.
Alla tíð átti hún tíma og þol-
inmæði fyrir mig. Þetta breyttist
aldrei þótt sambandið og vináttan
þroskaðist og dýpkaði, viðfangs-
efnin og umræðurnar breyttust.
Hún studdi mig og mína í leik og
starfi af heilum hug. Velferð okk-
ar skipti hana öllu máli.
Að vera með mömmu í góðu
spjalli yfir kaffibolla, þar sem hún
sagði mér sögur af því þegar hún
var lítil stelpa í Eyjum, æskuvin-
konum sínum, handboltanum,
námsdvölinni í Noregi og þegar
þau pabbi kynntust. Ég verð æv-
inlega þakklátur fyrir allar minn-
ingarnar og góðu stundirnar sem
ég átti með mömmu.
Mamma var réttsýn og heið-
arleg. Hún var sá klettur og sú
fyrirmynd sem maður getur ein-
ungis óskað sér að eiga í móður
sinni.
Það verður erfitt að laga sig að
lífinu án mömmu. Hennar gildi og
eiginleikar munu hins vegar vera
minn vegvísir. Ég mun ávallt
sakna hennar en ég veit að hún
gætir mín og mun aldrei fara frá
mér.
Héðinn.
Elsku mamma mín
Nú er komið að leiðarlokum. Í
þetta skiptið sigraði meinið sem
þú tókst á við eins og hetja þrisv-
ar á lífsleiðinni og af miklu æðru-
leysi.
Mikið á ég eftir að sakna þín.
Sakna þess að taka spjall um
heima og geima, hringja í þig
þegar ég er að viðra Storminn og
segja þér frá því sem ég er að
gera.
Mikið á ég eftir að sakna þess
að koma á Heiðarveginn þar sem
þú tókst alltaf á móti okkur með
hlýju og fallega brosinu þínu. Það
verður skrýtið án þín en pabbi
heldur áfram að taka á móti okk-
ur með opnum örmum.
Takk fyrir allt elsku mamma.
Fyrir hvatninguna, stuðninginn
og leiðsögnina í lífinu. Fyrir að
stappa í mig stálinu þegar ég
þurfti á að halda og hafa trú á
mér í mínum verkefnum.
Góða ferð í sumarlandið sem
við töluðum oft um í veikindum
þínum og vorum sannfærðar um
að þar myndi þér líða betur. Við
hittumst á ný síðar þegar minn
tími kemur. Þangað til veit ég að
þú vakir yfir okkur öllum.
Elska þig af öllu hjarta
Og þó að í vindinum visni
á völlum og engjum hvert blóm
og haustvindar blási um heiðar
með hörðum og deyðandi róm,
og veturinn komi með kulda
og klaka og hríðar og snjó,
hún lifir í hug mér sú lilja
og líf hennar veitir mér fró.
(Þorsteinn Gíslason)
Þín
Jóhanna Sigríður
(Hanna Sigga).
Elín Bjarney
Jóhannsdóttir
Um 1970 var svo
komið á skrifstofu
Alþingis að hrúgast
höfðu upp óútgefnir
árgangar af Alþingistíðindum,
nærri heill áratugur. Af rótgró-
inni sparsemi í rekstri þingsins
hafði einungs einum manni, að
vísu óvenjuafkastamiklum, verið
ætlað að búa ræður undir prent-
un. Þingmenn og blaðamenn
þurftu því að grafa eftir handrit-
um í þinghúsinu ef þeir vildu vitna
í nýlegar ræður. Þegar skörung-
urinn Eysteinn Jónsson var kos-
inn forseti þingsins haustið 1971
réðst hann í að breyta útgáfu
Sigrún Árnadóttir
✝
Sigrún Árna-
dóttir fæddist
6. september 1927.
Hún lést 9. júlí
2021.
Útför Sigrúnar
var gerð 20. júlí
2021.
þingtíðindanna, láta
þau koma í réttri
tímaröð og prenta
þau vikulega. En
jafnframt skipulagði
Eysteinn prentun
óútgefinna árganga
og kallaði í það verk
námsmenn í hluta-
starfi og réð a.m.k.
þrjá í fullt starf.
Sneru menn sér til
Óskars Halldórs-
sonar um ráð í því sambandi. Ósk-
ar benti þá á konu sína, Sigrúnu
Árnadóttur, sem væri tilvalin til
starfans. Þetta var 1974 en síðar
komu Sigrúnu til aðstoðar Guð-
rún Stefánsdóttir og Björgvin
Kemp. Lauk þessi vaska sveit,
sem hafði aðstöðu í Vonarstræti 8,
verki sínu á nokkrum árum og tók
svo við hinni vikulegu útgáfu
þingtíðindanna í framhaldi af því.
Það var mikið happ fyrir Al-
þingi og skrifstofu þess að fá Sig-
rúnu til liðs við sig. Hún mótaði
þegar í upphafi starfið, setti
metnaðarfullan staðal sem engum
leiðst að víkja frá. Virðing hennar
fyrir verkefninu og viðhorf til
þess réð öllu um þann anda sem
ríkti í Vonarstræti 8. Hann smit-
aði frá sér og hefur verið leiðar-
mark allar götur síðan. Þar var
landsliðið í útgáfu og ritstjórn.
Sigrún var rösk, samviskusöm og
afburðavandvirk. Allur frágangur
handrita frá henni var eins og
setjarar í prentsmiðjum gátu
frekast óskað sér, enda rithöndin
skýr og fögur. Síðar tileinkaði
hún sér áreynslu- og áhyggju-
laust nýja tækni í textavinnslu.
Vonarstræti 8 varð á þessum
árum allmikil akademía og kaffi-
tímar ógleymanlegir og einatt
kostulegir. Móðir hússins var
Guðmunda Þorgeirsdóttir, sú ein-
stæða kona, en á fleti sátu bóka-
verðirnir Lárus Blöndal magister
og Eiríkur Eiríksson frá Dag-
verðargerði og Halldór Kristjáns-
son frá Kirkjubóli sem vann að út-
gáfu Alþingismannatals, allir
ólíkir að framgöngu og skapgerð.
Sigrún hafi góða kímnigáfu og
kynti stundum undir í orðasenn-
um þeirra karlanna. Gestur
Magnússon og Björg Her-
mannsdóttir, sem sátu líka við
borðið, voru á bandi friðarins.
Sigrúnu auðnaðist oft að gefa
þessum samverustundum starfs-
manna í húsinu ríkara innihald
með tali sínu um bókmenntir,
menningu og sögu. Hún var góður
hagyrðingur og naut sín vel á
árshátíðum starfsmanna þar sem
aðeins mátti fara með bundið mál.
Málhög var hún umfram nær alla
aðra.
Sigrúnu verður seint fullþakk-
að fyrir störf sín á skrifstofu Al-
þingis og holl og langæ áhrif þar.
Það var sjaldgæf unun að tala
við Sigrúnu. Góðvild einkenndi
hana í einu og öllu og þekking
hennar á mörgum sviðum með af-
brigðum góð, agi á öllu og alvara
með hæfilegum skammti af gam-
ansemi. Af hennar fundi fór eng-
inn óglaðari en hann kom, og oft-
ast með meiri göfgi í sálinni.
Blessuð veri minning hennar.
Helgi Bernódusson.
Elsku Kiddi. Við
eigum svo margar
skemmtilegar
minningar um þig.
Það var alltaf stuð og nóg að
gera í kringum þig. Stórfjöl-
skyldan var þér mikilvæg og þér
þótti alltaf vænt um það þegar
hún kom öll saman á jóladag og
á 17. júní. Þú og mamma voruð
forsprakkar skipulagningarinn-
ar á þessum dögum.
Með árunum jókst samgang-
ur okkar á milli og alltaf var
gaman að fá ykkur Dídí í heim-
sókn í boð. Sérstaklega standa
upp úr hrekkjavökupartíin og
gamlárskvöldin. Krakkarnir
biðu alltaf spennt eftir að þú
Kristinn
Kristinsson
✝
Kristinn Krist-
insson fæddist
30. nóvember 1953.
Hann lést 11. júlí
2021.
Útför Kristins
fór fram 22. júlí
2021.
kæmir eftir mið-
nætti á gamlárs-
kvöld og sprengdir
restarnar af flug-
eldunum og byggir
til brennu með
þeim. Ekki má
gleyma að minnast
á heimsóknirnar til
ykkar í Öndverðar-
nesi í páskaeggja-
leit þar sem þú
lagðir mikið upp úr
því að fela egg út um allt fyrir
krakkana. Krakkarnir okkar
voru farin að líta á þig sem einn
af öfum sínum og tala um þig
sem afa Kidda.
Þú sagðir okkur að vera dug-
legar að skapa skemmtilegar
minningar með börnunum okkar
því það væri það sem skipti máli
hjá þeim þegar þau yrðu eldri.
Við eigum eftir að sakna þess
að þú takir á móti okkur opnum
örmum og með stóra brosið þitt.
Þínar frænkur,
Hildur, Áslaug og Ragna.
Þá er nú mín
kæra systir og mín
„önnur móðir“ látin
á sínu 91. aldursári.
Á þessum tímamótum langar mig
að reyna að festa fáein orð á blað
þó ekki væri nema til að sýna
þakklæti fyrir allt það sem þau
Ragnar snerust í kringum mig
þegar ég var ungur.
Við vorum sjö systkinin í
Hjarðarholti og þar af bara ein
systir. Friðgerður var hún skírð
en alltaf kölluð Didda. Í þá daga
var ekki til þvottavél og ekki
hrærivél svo þá urðu hendur og
þvottabretti að duga. Ekki var
útivinnan auðveldari, slegið var
með hestum, þurrkað og snúið
með handafli og tekið saman og
flutt í hlöðu. Svona voru nú bú-
skaparhættirnir á þessum tím-
um. Í þessu öllu tók Didda fullan
þátt ásamt kaupakonum og
frænkum norðan úr Höfðahverfi,
Friðgerður
Þórðardóttir
✝
Friðgerður
Þórðardóttir
fæddist 11. október
1930. Hún lést 4.
júlí 2021.
Útför Frið-
gerðar var gerð 15.
júlí 2021.
að ógleymdri Jó-
hönnu Kristjóns-
dóttur rithöfundi
sem dvaldi nokkuð
mörg sumur heima
og vann alltaf í hey-
skapnum. Í þessu
stóð Didda sig til
jafns við karlpen-
inginn. Eftir vinnu-
daginn úti við rétti
hún móður okkar
oftast hjálparhönd
því heimilið var stórt.
Didda var mjög félagslynd og
söng í mörg ár í kirkjukórnum og
stundaði nám í húsmæðra- og
hússtjórnarskólum bæði á Akur-
eyri og Reykjavík. Hún var drjúg
hannyrðakona og eru til dæmis
veggteppi eftir hana á nokkrum
heimilum enn í dag. Svo liðu árin
og aðdáendahópurinn stækkaði
óðum. Henni leist vel á einn
þeirra, Ragnar Guðmundsson frá
Leiðólfsstöðum í Laxárdal. Hann
varð kennari og síðar aðstoðar-
skólastjóri til margra ára. Syn-
irnir urðu tveir, Logi tölvunar-
fræðingur og Valur
lyfjafræðingur, og svo barnabörn
og langömmubörn sem erfa
munu landið.
Eitt vil ég segja að lokum, en
eftir að þau Didda og Ragnar
stofnuðu sitt fyrsta heimili hér í
Reykjavík í Karfavogi 25 var eins
og það yrði nokkurs konar útibú
að heiman, þangað komu allir
sem erindi áttu suður og alltaf
stóð það öllum opið bæði í mat og
drykk eins og best varð á kosið.
Elsku Didda, hafðu ævarandi
þökk fyrir alla þína hjálpsemi og
umhyggju við mig og mína.
Þinn bróðir,
Andrés.
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir
og amma,
ELÍN BJARNEY JÓHANNSDÓTTIR,
Elley,
Heiðarvegi 27, Vestmannaeyjum,
lést 13. júlí á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
í Vestmannaeyjum. Starfsfólki færum við sérstakar þakkir fyrir
góða umönnun og hlýhug.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Svavar Sigmundsson
Héðinn Svavarsson Jóna Guðrún Guðmundsdóttir
Jóhanna Sigr. Svavarsdóttir Stefán Guðmundsson
Svavar Örn Svavarsson Sara Maria Pålson
og barnabörn
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is