Morgunblaðið - 31.07.2021, Side 30
30 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2021
30 ÁRA Þórey Ebba fæddist í
Reykjavík á Landspítalanum við
Hringbraut en ólst upp í vesturbæ
Kópavogs þar sem hún gekk í Kárs-
nesskóla. Árið 2011 varð hún stúd-
ent í Fjölbrautaskólanum Garðabæ.
„Ég er mikil fjölskyldumann-
eskja og finnst best að eyða frítím-
anum með stráknum mínum, hon-
um Viktori Inga, og manninum
mínum, Sigga. Svo veit ég ekkert
betra en að fara í göngutúr eða
hjóla úti í náttúrunni og það er eig-
inlega mitt helsta áhugamál í dag.“
Þórey Ebba starfar á Landspít-
alanum á göngudeild þvagfæra og
er í sjúkraliðanámi samhliða því.
„Áhuginn á sjúkraliðanum kviknaði
þegar ég vann við aðhlynningu á
hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð árið
2016 en það var eitt mest gefandi
starf sem ég hef verið í.“
FJÖLSKYLDA Þórey Ebba er í sambúð með Sigurði Má Eggertssyni, lög-
fræðingi og persónuverndarfulltrúa, f. 6.8. 1989. Sonur þeirra heitir Viktor
Ingi Sigurðssons og er fæddur 16.10. 2017.
Foreldrar Þóreyjar Ebbu eru hjónin Ingi Þór Edvardsson bókari, f. 20.11.
1958, og Eybjörg Guðmundsdóttir skurðhjúkrunarfræðingur, f. 29.5. 1960.
Þau eru búsett í Reykjavík.
Þórey Ebba Ingadóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Láttu engan þvinga þig til sam-
komulags í dag heldur láttu í þér heyra.
Varastu að taka að þér fleiri verkefni en
þú ræður við.
20. apríl - 20. maí +
Naut Samstarfsfólk þitt er sérstaklega
samvinnuþýtt þessa dagana. Láttu eftir í
litlu málunum og haltu þínu striki í þeim
stóru.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Enda þótt þú virðist sigla lygnan
sjó máttu ekki sofna á verðinum því óðar
en varir rís alda sem getur hvolft bátnum.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þótt þér þyki lofið gott skaltu var-
ast að leggja of mikið upp úr því - dramb
er falli næst. Ekki er gott að taka ákvarð-
anir í dag.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þig langar til að flytja eða gera
breytingar á heimilinu. Vitleysa eða hug-
rekki? Vertu óhrædd/ur.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Það er margt spjallað í kringum
þig og það virðist valda þér einhverjum
áhyggjum. Biddu fólk um að sýna þér
skilning.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Vertu skjótur til að hrinda hug-
myndum þínum í framkvæmd áður en
einhverjir aðrir verða fyrri til og stela hug-
myndum þínum.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Frábært! Verkefni sem þú
vinnur að fær meiriháttar undirtektir. Not-
aðu tækifærið og skrifaðu undir samninga
eða samkomulag í dag.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú öðlast ekki aga með því
neyða þig til að gera eitthvað sem þig
langar ekki til að gera. Fólk heldur oft að
það viti hvað öðrum er fyrir bestu.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Ekki einblína á það sem geng-
ur illa, heldur það sem gengur vel og
byggðu á því. Annars getur allt farið á
versta veg.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þar sem þú hefur lagt hart að
þér að undanförnu er nú kominn tími til
að þú dekrir svolítið við sjálfan þig og
þína nánustu.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Það getur verið ósköp leiðinlegt
þegar aðrir dragast aftur úr í samstarfinu.
Ertu skrefi á undan eða eftir? Vertu á
sama hraða og njóttu umhyggjunnar.
ar. Mér er sérstaklega minnisstætt
að sjá hofin sem reist voru til dýrðar
Búdda og Gullna hofið. Það var
magnað.“
Bernhard hefur lengi starfað innan
Kiwanis-hreyfingarinnar og hefur
verið virkur meðlimur í þremur
klúbbum og forseti í þeim öllum
ásamt því að vera svæðisstjóri. „Það
er virkilega gefandi að vinna innan
þessarar hreyfingar, eflandi og eykur
ég á frændfólk en einnig hef ég farið
bæði vegna vinnu og félagsstarfa.“
Honum er minnisstæð ferð þeirra
hjóna með hluta af fjölskyldunni þeg-
ar þau heimsóttu yngsta son sinn í
Hong Kong. „Sú borg er ákaflega
ólík því sem við þekkjum með mikl-
um háhýsum og mikilli gróðursæld
þegar borginni sleppir. Í þeirri ferð
fórum við einnig til Japan, þar er
menningin einnig allt önnur en okk-
B
ernhard Jóhannesson
fæddist að Laugalandi í
Stafholtstungum í
Borgarfirði 31. júlí 1951.
„Faðir minn var
hollenskur og hafði komið hingað
fyrst 1939 til að aðstoða íslenska
garðyrkjubændur að stíga sín fyrstu
skref í ylrækt, þá á Suðurlandi. Eftir
stríð kom hann upp í Borgarfjörð þar
sem hann svo kynntist móður minni
1945. Árið 1953 keyptu foreldrar
mínir hlut úr garðyrkjustöð á Klepp-
járnsreykjum í Reykholtsdal og
nefndu nýbýli sitt Dalbæ.“ Á Klepp-
járnsreykjum var hann í barnaskóla,
fór síðan í Héraðsskólann í Reykholti
og ári síðar að Núpi í Dýrafirði og
lauk þaðan gagnfræðiprófi 1970.
Árið eftir keypti Bernhard garð-
yrkjubýlið Sólbyrgi þar sem hann hóf
búskap með Hugrúnu Björk, konu
sinni, sem hann kynntist á Núpi.
Seinna stækkuðu þau við sig og
keyptu Dalbæ af föður Bernhards.
Þar bjuggu þau næstu 27 árin eða til
ársins 1998 þegar þau fluttust til
Reykjavíkur. Þá höfðu þau stækkað
stöðina upp í tæpa 6.000 m2 og var
hún þá ein stærsta garðyrkjustöð á
landinu. Einnig byggðu þau nýtt
íbúðarhús. Á upphafsárum þeirra var
þröngt í búi eins og gerist og gengur
og var Bernhard þá á sjó á veturna á
togaranum Neptúnusi RE sem var
síðasti gufutogarinn sem gerður var
út frá Reykjavík. „Þetta voru margir
úthaldsdagar, ég man að einu sinni
var ég 54 daga án þess að koma
heim.“
Á yngri árum í Borgarfirðinum átti
Bernhard hlut í flugvél, TF-LUX,
með nokkrum vinum sínum og hafði
mikla ánægu af því að skoða landið
ofan frá ef svo má segja. Eftir að
hann flutti suður eignaðist hann hlut í
bát, Færeyingi sem nefndur er
Böddi. „Á honum er gaman að sigla
um og skoða landið frá öðru sjónar-
horni og sækja aðeins í soðið.“ Bern-
hard hefur gaman af því að fara um
fallega landið okkar og var nokkur
sumur bílstjóri á rútu og keyrði all-
nokkra hringi um landið með fjölda
skemmtilegs fólks. „Einnig höfum við
hjónin farið í ýmsar ferðir þó oftast
höfum við farið til Hollands þar sem
víðsýni og hefur fært mér dýrmæta
vini.“
Bernhard var fréttaritari Morgun-
blaðsins í tíu ár í Borgarfirði og þekk-
ir því marga. Síðan tók hann við sem
slökkviliðsstjóri í uppsveitum Borg-
arfjarðar á svæðinu frá Seleyri og
fram í Húsafell. Eftir að garð-
yrkjustöðin var seld lá leiðin til
Brunamálastofnunar en þar vann
Bernhard næstu 18 árin sem sér-
fræðingur á slökkviliðasviði og hafði
það verkefni að annast kennslu við
Brunamálaskólann og hafa með
höndum úttektir og eftirlit með
slökkviliðum landsins. „Verkefnið var
mjög fjölþætt og gaf mikla ánægju.“
Eftir starfslok hjá Mannvirkja-
stofnun var næsti vinnustaður Viking
Life Saving Equipment á Íslandi, var
Bernhard þar næstu tvö árin sem
ráðgjafi. Um þetta leyti var Bern-
hard orðinn formaður Skógrækt-
arfélags Kópavogs og tók fljótlega
við sem framkvæmdastjóri.
„Við hjónin höfum gaman af rækt-
un grænmetis og blóma, einnig erum
við með ávaxtatré í garðinum. Það
eru nú ekki allir sem trúa því, en
veðrið er ansi gott í Kópavoginum, ef
ekki bara best á Íslandi.“ Eftir að
Bernhard hætti að vinna hefur hann
meiri tíma til að sinna áhugamál-
Bernhard Jóhannesson garðyrkjubóndi og eftirlitsmaður – 70 ára
Fjölskyldan Frá vinstri: Bernhard Þór, Bernhard, Hugrún Björk, Magni Már og Heiðar Örn.
Veðrið best í Kópavoginum
Afkomendur Fjölskyldan með öll-
um barnabörnum á góðri stund.
Hjónin Bernhard og Hugrún við
Buddha á Lantau Island Hong Kong.
Til hamingju með daginn
Þau leiðu mistök urðu í afmælis-
grein um Arnór Guðjohnsen í gær
að innsláttarvilla var í dánarári
móður hans, Arnrúnar Sigríðar
Sigfúsdóttur, og stóð árið 1914 í
stað ársins 2014. Mistök af sama
toga voru í afmælisgrein um Gunn-
ar Valgarðsson, 27. júlí sl., þar sem
dánarár föður hans, Valgarðs Birk-
is Guðmundssonar, var sagt 1916, í
stað 2016. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
Leiðrétting