Morgunblaðið - 31.07.2021, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 31.07.2021, Qupperneq 31
DÆGRADVÖL 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2021 Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG KAUPI VENJULEGA EKKI SKORDÝRAEITUR AF FARANDSÖLUMÖNNUM, EN MITT VIRKAR GREINILEGA EKKI.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að útbúa kakó handa henni. MÁNUDAGUR… NÚLL STJÖRNUR MYNDI EKKI MÆLA MEÐ ÞEIM. VALSKAFFIHVERNIG GENGUR, VALUR? EKKI NÓGU VEL! ÉG VAR KÆRÐUR AF VIÐSKIPTAVINI! OG ER ÞAÐ MIKIÐ HITAMÁL? SORRÍ, ÉG STÓÐST EKKI MÁTIÐ! „MJÓLKIN VAR FARIN AÐ SÚRNA – EN EKKI JAFNMIKIÐ OG STEMNINGIN Á HEIMILINU.“ unum. „Við erum einnig með fjórar hænur sem gefa af sér afar góð egg og koma í veg fyrir matarsóun á heimilinu. Fyrir tveimur árum bætt- ist svo hefðarkötturinn Lena við á heimilið.“ Fjölskylda Eiginkona Bernhards er Hugrún Björk Hauksdóttir, húsmóðir og handverkskona, f. 26.11. 1953. For- eldrar hennar voru Garðar Haukur Georgsson, sjómaður og bóndi, f. 8.2. 1927, d. 12.6. 1927, og Eyrún Sigurð- ardóttir, veitingamaður í Reykjavík, f. 26.5. 1928, d. 14.2. 1969. Börn Bern- hards og Hugrúnar Bjarkar eru: 1) Bernhard Þór, viðskiptafræðingur í Reykjavík, f. 14.11. 1972. Maki hans er Jónína Laufey Jóhannsdóttir, f. 20.6. 1973, kennari. Þeirra börn eru: Baldur Freyr, f. 26.1. 1999; Hugrún Björk, f. 1.2. 2001, og Björn Haukur, f. 8.9. 2006. 2) Magni Már, kíróprakt- or í Kópavogi, f. 15.7. 1974. Maki hans er Hrafnhildur Gísladóttir viðskipta- fræðingur, f. 26.1. 1976. Börn þeirra eru: Viktoría, f. 5.5. 2002; Lúkas Magni, f. 18.2. 2005, og Jökull Gísli, f. 10.8. 2008. Fyrir átti Magni Andra Má, f. 30.5. 1997. 3) Heiðar Örn, tölv- unarfræðingur og forritari í London, f. 24.8. 1986. Sambýliskona hans er Clara Cheung, lyfjafræðingur og for- ritari, f. 27.7. 1991. Bróðir Bernhards er Jón Jakob, bakari í Reykjavík, f.10.9. 1947, og hálfbróðir hans er Valtýr Ómar Guðjónsson Mýrdal, f. 20.11. 1938 í Reykjavík. Foreldrar Bernhards voru hjónin Jan Adríanus Jansen síðar Jóhannes Jónsson, garðyrkjubóndi í Dalbæ, Kleppjárnsreykjum Borgarfirði, f. 30.8. 1912, d. 22.12. 1984, og Þuríður Jónsdóttir, húsmóðir í Dalbæ, f. 19.9. 1910, d. 2.9. 1971. Bernhard Jóhannesson Þorlákur Bjarnason bóndi í Minna-Knarrarnesi í Kálfatjarnarsókn, Gull. Þuríður Benediktsdóttir húsfreyja í Minna-Knarrarnesi í Kálfatjarnarsókn, Gull. Ingibjörg Þorláksdóttir húsfreyja og verkakona í Hafnarfirði Jón Bjarnason verkamaður í Hafnarfirði Þuríður Jónsdóttir húsfreyja, Dalbæ Margrét „eldri“ Magnúsdóttir húsfreyja á Álfgeirsvöllum, Reykjasókn, Skag. Bjarni Pálsson bóndi í Gilkoti á Neðribyggð og víðar í Skagafirði María Ruijgrok Cornelis Johennes Nooyen Sophia María Nooyen húsfreyja í Hilversum í Hollandi Jacobus Gerardus Jansen verðbréfasali í Hilversum í Hollandi Anna María Aelen húsfreyja í Hilversum í Hollandi Johannes Jansen bankamaður í Hilversum í Hollandi Úr frændgarði Bernhards Jóhannessonar Johannes Adrianus Jansen (Jóhannes Jónsson) garðyrkjumaður, Dalbæ, þekktur sem Jan í Dalbæ Gátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Ég er ljósgjafi og lýsi upp veginn. Ég er leiður í dag, segir peyinn. Ég talinn er mannfýla mesta. Ég er Móri og segi til gesta. Guðrún B. leysir gátuna þannig: Sá bjálfi greip hund, mitt handljós. Ég, hundleið, fyrir mér velti, hvort hundinginn kæmist í Kjósfjós og kjarkmikill hundur þá gelti. „Nú eru hundadagar,“ svarar Ey- steinn Pétursson: Gott er að hafa hund að lýsa sér. Hundleiður er ég á sjálfum mér. Hundur er í mér hvar sem ég staddur er. Hundarnir gelta ef mann sjá koma hér. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Ljós veitir hundur í húmi. Það er hundur í mér, segir Númi. Ég er hrakmenni og hundur mesti, Ég er hundur, sem tilkynnir gesti. Þá er limra: „Ég af því hef endalaust gaman og engist af hlátri“ kvað daman, „þegar hundurinn minn tekur hringsnúninginn, til að hann nái endunum saman“. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Ég sit við að gera gátur í góðu skapi og kátur, þrautreyndur í því fagi, en þær eru fæstar í lagi: x Í geimnum er sífellt á sveimi. Svolítill dreytill í máli. Af fjölmörgum dáð hér í heimi. Hryssa í vísu frá Páli. Hjálmar Jónsson sendi mér vísu eftir Egil Jónasson áttræðan: Þróttur dvínar, það er mjög við hæfi. Þó er ég í anda hress og glaður. Ég hef beðið alla mína ævi eftir því að verða gamall maður. Andrés Björnsson orti: Arkipela- yfir –gus öðling sigla náði, fjöllum Káka- fram í –sus fólkorrustu háði. Gömul visa í lokin: Syfjaður og votur var vildi ei lengur flakka, af tók hnakk og áði þar undir moldarbakka. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Þar liggur hundurinn grafinn Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.