Morgunblaðið - 31.07.2021, Side 32
32 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2021
Arnór Sigurðsson, landsliðsmaður í
knattspyrnu, leikur í ítölsku A-
deildinni á komandi keppnis-
tímabili. Rússneska félagið CSKA
Moskva, sem hann hefur leikið með
undanfarin þrjú ár, tilkynnti í gær
að samningur hans hefði verið
framlengdur til ársins 2024 en Arn-
ór jafnframt verið lánaður til Ve-
nezia í eitt ár. Venezia er nýliði í A-
deildinni en í hópi aðalliðs félagsins
eru Óttar Magnús Karlsson og
Bjarki Steinn Bjarkason og íslensk-
ir piltar leika líka með unglingaliði
Venezia.
Arnór næsta
árið í Feneyjum
Morgunblaðið/Eggert
Ítalía Arnór Sigurðsson spilar í A-
deildinni á komandi tímabili.
Handknattleikskonan reynda, Sól-
veig Lára Kjærnested, hefur ákveð-
ið að leggja skóna á hilluna eftir
tuttugu ára nær samfelldan feril
með meistaraflokki Stjörnunnar.
Hún lék í eitt ár með Weibern í
Þýskalandi en annars með Garða-
bæjarliðinu þar sem hún varð fimm
sinnum bikarmeistari, þrisvar Ís-
landsmeistari og þrisvar deild-
armeistari, og var lengi fyrirliði
liðsins. Sólveig lék 63 A-landsleiki
fyrir Íslands hönd og var um árabil
einn besti leikmaður íslensku úr-
valsdeildarinnar.
Sólveig hætt
eftir langan feril
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hætt Sólveig Lára Kjærnested lék
með Stjörnunni í 20 ár.
JÚLÍ
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Bakvörðurinn sprettharði, Kristinn
Jónsson, hefur verið drjúgur með
KR-ingum í júlí en Vesturbæingar
unnu þrjá af fjórum leikjum sínum í
mánuðinum, gegn KA, Keflavík og
Fylki, og skildu jafnir við Breiðablik.
Eftir slitrótta byrjun á Íslands-
mótinu hafa KR-ingar fært sig upp á
skaftið og eru nú ekki langt frá því
að blanda sér af alvöru í baráttuna
um Íslandsmeistaratitilinn sem þeir
misstu í hendur erkifjenda sinna í
Val á síðustu leiktíð. Kristinn er leik-
maður júlímánaðar hjá Morgun-
blaðinu.
Eftir 4:0-sigurinn á Fylki á Meist-
aravöllum í síðustu umferð, sem var
einn besti leikur Vesturbæinga á
árinu, er KR í 3. sæti úrvalsdeild-
arinnar eftir 14 leiki, með 25 stig,
fimm stigum á eftir toppliði Vals.
Reykjavíkurstórveldin mætast ein-
mitt í næsta leik, á Hlíðarenda mið-
vikudaginn 4. ágúst.
„Þetta voru bestu 90 mínúturnar
okkar í sumar, við höfum byrjað leiki
mjög vel án þess að halda það út all-
an tímann. Þannig að þetta var klár-
lega besti leikurinn okkar og sér-
staklega á heimavelli,“ sagði
Kristinn í samtali við Morgunblaðið.
KR-ingar töpuðu ekki heimaleik á
leið sinni að Íslandsmeistaratitlinum
2019 en síðan þá hafa þeir spilað 18
deildarleiki í Frostaskjóli og ekki
unnið nema sex.
„Ég held að Atli [Sigurjónsson]
hafi orðað þetta ágætlega í viðtali
um daginn: heimavöllur er enginn
heimavöllur án áhorfenda. Ég spila
betur þegar fleiri KR-ingar eru á
vellinum, það er alveg klárt mál, þeir
leika stórt hlutverk í þessu,“ út-
skýrði Kristinn en kórónuveiru-
faraldurinn hefur sett sinn svip á
áhorfendapalla um allt land síðasta
rúma árið. KR-ingar hafa í gegnum
árin oftast verið vel studdir á heima-
velli, sér í lagi þegar vel gengur. „Ég
held að það sé gegnumgangandi alls
staðar á Íslandi. Ef þú ert að spila
skemmtilegan fótbolta þá kemur
fleira fólk á völlinn.“
KR vann tvo af fyrstu sex leikjum
sínum og var um tíma átta stigum
frá toppsætinu. Júlí hefur hins vegar
gefið Vesturbæingum vel og sigur
gegn Val í næsta leik myndi hleypa
mikilli spennu í toppbaráttuna.
Kristinn segir þó ekkert róttækt
hafa gerst frá upphafi móts.
Kraftmeiri og skilvirkari
„Það hefur svo sem ekkert breyst,
við höfum bara jafnt og þétt verið að
bæta okkur eftir því sem hefur liðið
á mótið. Það er meiri kraftur í okkur
og við erum skilvirkari á vellinum,
bæði í vörn og sókn.
Leikurinn gegn Fylki er gott
dæmi um það og hvernig við erum að
finna okkar besta form. Ég held að
allir í okkar liði hafi átt toppleik, það
er mjög erfitt að taka einhvern einn
út fyrir og segja að hann hafi verið
betri en annar. Þetta var sigur liðs-
heildarinnar og gefur gott veganesti
inn í erfitt prógramm í ágúst.“
Þá segist hann bíða stórleiksins
með mikilli eftirvæntingu. „Þrjú stig
á Hlíðarenda og við erum komnir á
fullu inn í slaginn um þann stóra,
þannig að það er mikil eftirvænting
eftir þeim leik. Við erum með mjög
reynslumikið lið og Valur sömuleið-
is. Ég held að þetta verði frábær
leikur.“
Hjálpar að hafa góða liðsfélaga
Kristinn verður 31 árs í næsta
mánuði en hann gekk til liðs við KR
fyrir tímabilið 2018 eftir að hafa ver-
ið í atvinnumennsku um tíma, bæði í
Svíþjóð og Noregi. Undanfarin ár
hefur hann þótt einn besti bakvörð-
ur Íslandsmótsins og var til að
mynda valinn besti leikmaður úr-
valsdeildarinnar af Morgunblaðinu
er KR-ingar urðu Íslandsmeistarar
2019. Sjálfur segist hann ekki fylgj-
ast mikið með lofræðum fjölmiðla.
„Ég fylgist nú ekki það mikið með
þessari umfjöllun. Ég held að mín
frammistaða síðan ég kom í KR sé
búin að vera nokkuð góð og rúmlega
það í flestum leikjum. Ég er ánægð-
ur hér og spila með frábærum leik-
mönnum, það hjálpar mikið til.“
Eftir frábært sumar 2019 fór titil-
vörnin í súginn á síðustu leiktíð auk
þess sem kórónuveirufaraldurinn
herjaði ítrekað á mótið. Stöðva
þurfti keppni nokkrum sinnum og að
lokum var mótinu aflýst þegar lið
áttu ýmist fjóra eða fimm leiki eftir.
„Síðasta tímabil var bæði erfitt og
skrítið. Við fengum stuttan undir-
búning fyrir mótið sjálft og síðan var
nokkuð mikið um að stoppa og byrja
aftur, sem getur verið erfitt. Ég veit
ekki hvort það hafi spilað eitthvað
inn í að við séum með eldra lið en
mörg önnur í deildinni.
Það er svo sem kannski létt að fela
sig á bak við það og að fimm umferð-
ir voru eftir af mótinu. Eins og stað-
an var, þegar keppni var slaufað, þá
vorum við í fimmta sæti. Það var
langt frá markmiðum okkar fyrir
mót og klárlega má tala um það sem
vonbrigði,“ segir Kristinn og ítrekar
að KR-ingar ætli sér að gera betur í
sumar.
„Það eru fimm lið sem gera tilkall
til þess að vera í þessari baráttu, ég
held að þetta verði spennandi á loka-
sprettinum. Jafnt og sterkt mót er
það sem allir vilja, en við náttúrlega
viljum vinna þann stóra,“ sagði
Kristinn við Morgunblaðið.
„Við viljum
berjast um
þann stóra“
- Kristinn ánægður með þróun mála
hjá KR og bíður Valsleiksins spenntur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bestur Kristinn Jónsson er leikmaður júlímánaðar hjá Morgunblaðinu.
Hann fékk fimm M í fjórum leikjum og KR fékk tíu stig í deildinni.
Kristinn Jónsson, vinstri bakvörður KR-inga, var besti leikmaður júlí-
mánaðar í úrvalsdeild karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Kristinn
var annar tveggja leikmanna í deildinni sem fengu fimm M samtals í eink-
unn hjá blaðinu í júlímánuði en hinn var Sindri Kristinn Ólafsson mark-
vörður Keflavíkur.
KR-ingar fengu tíu stig í fjórum leikjum í deildinni í júlí og Kristinn var
mjög atkvæðamikill í stöðu vinstri bakvarðar en hann fékk tvö M í einkunn
í tveimur þeirra. Í liði mánaðarins hér til hliðar er Kristinn vinstra megin á
miðjunni í 3-4-3 leikaðferðinni, enda afar drjúgur í sóknarleik Vest-
urbæinga.
Nikolaj Hansen, sóknarmaður Víkings, er í þriðja sinn í úrvalsliði mán-
aðarins og er eini leikmaðurinn sem hefur verið valinn í byrjunarlið þess í
öll þrjú skiptin, í maí, júní og júlí. Hansen og Kristinn eru einmitt jafnir og
efstir í M-gjöf Morgunblaðsins.
Kristinn er í byrjunarliði mánaðarins í annað sinn, eins og Höskuldur
Gunnlaugsson úr Breiðabliki. Orri Hrafn Kjartansson, miðjumaður Fylkis,
hefur verið í 18 manna úrvali í öllum þremur mánuðunum, einu sinni í byrj-
unarliðinu og er nú í annað sinn meðal varamanna.
Þá hafa Joey Gibbs úr Keflavík og Sævar Atli Magnússon úr Leikni báðir
verið einu sinni í byrjunarliði og einu sinni varamaður á þremur mánuðum
og Atli Sigurjónsson er meðal varamanna í annað sinn.
KR fékk 29 M í júlí, Keflavík 25, Víkingur 23, Leiknir 19, Valur 17,
Breiðablik 15, Fylkir 15, HK 15, FH 14, KA 14, ÍA 14 en Stjarnan fékk að-
eins 7 M í júlí.
Lið júlímánaðar hjá Morgunblaðinu
í Pepsi Max-deild karla 2021
VARAMENN:
Gunnar Nielsen 4 FH
Kristall Máni Ingason 3 1 Víkingur R.
Orri Hrafn Kjartansson 3 1 Fylkir
3-4-3 Hversu oft leikmaður hefur
verið valinn í lið umferðarinnar
2
Fjöldi sem leik-
maður hefur fengið
2
Sindri Kristinn Ólafsson
Keflavík
Kristinn Jónsson
KR
Andrés Manga Escobar
Leiknir R.
Frans Elvarsson
KeflavíkHöskuldur
Gunnlaugsson
Breiðablik
Viktor Örlygur
Andrason
Víkingur R.
Nikolaj Hansen
Víkingur R.
Birkir Valur Jónsson
HK
Arnór Sveinn
Aðalsteinsson
KR
Hallgrímur Mar Steingrímsson
KA
Atli Barkarson
Víkingur R.
Atli Sigurjónsson 3 1 KR
Joey Gibbs 3 1 Keflavík
Steven Lennon 3 1 FH
SævarAtli Magnússon 3 1 Leiknir R.
5
4
3
4
3
3 4
5
3
3
4
2
2
2
1
1
1 1
1
2
Kristinn var bestur
í deildinni í júlí
Pepsi Max-deild kvenna
Fylkir – Valur ........................................... 1:5
Staðan:
Valur 13 10 2 1 38:15 32
Breiðablik 13 9 1 3 46:20 28
Stjarnan 12 6 1 5 15:17 19
Þróttur R. 12 5 3 4 26:23 18
Selfoss 13 5 3 5 18:17 18
ÍBV 12 5 1 6 20:27 16
Þór/KA 13 3 5 5 14:20 14
Tindastóll 12 3 2 7 9:18 11
Keflavík 12 2 3 7 10:21 9
Fylkir 12 2 3 7 11:29 9
Ólympíuleikarnir
8-liða úrslit kvenna:
Kanada – Brasilía ........................ (0:0) 4:3(v)
Bretland – Ástralía .......................... (frl.) 3:4
Svíþjóð – Japan......................................... 3:1
Holland – Bandaríkin.................. (2:2) 4:6(v)
_ Í undanúrslitum á mánudaginn kemur
mætast Kanada – Bandaríkin og Ástralía –
Svíþjóð.
Pólland
Górnik Zabrze – Lech Poznan ............... 1:3
- Aron Jóhannsson var ekki í leikmanna-
hópi Lech Poznan.
Danmörk
B-deild:
Jammerbugt – Lyngby ........................... 1:2
- Frederik Schram lék ekki með Lyngby
vegna meiðsla. Freyr Alexandersson þjálf-
ar liðið.
0-'**5746-'
Ólympíuleikar
Karlar, A-riðill:
Þýskaland – Noregur.......................... 28:23
- Alfreð Gíslason þjálfar Þýskaland.
Argentína – Brasilía............................. 23:25
Frakkland – Spánn............................... 36:31
_ Frakkland 8, Spánn 6, Þýskaland 4, Nor-
egur 4, Brasilía 2, Argentína 0.
Karlar, B-riðill:
Japan – Barein..................................... 30:32
- Dagur Sigurðsson þjálfar Japan.
- Aron Kristjánsson þjálfar Barein.
Svíþjóð – Egyptaland........................... 22:27
Portúgal – Danmörk ............................ 28:34
_ Danmörk 8, Egyptaland 6, Svíþjóð 6,
Portúgal 2, Barein 2, Japan 0.
_ Lokaumferð á morgun, sunnudag.
E(;R&:=/D
Ólympíuleikar
Konur, B-riðill:
Bandaríkin – Japan .............................. 86:69
Frakkland – Nígería ............................ 87:62
_ Bandaríkin 4, Frakkland 3, Japan 3, Níg-
ería 2.
Konur, C-riðill:
Belgía – Púertó Ríkó............................ 87:52
Kína – Ástralía...................................... 76:74
_ Belgía 4, Kína 4, Ástralía 2, Púertó Ríkó
2. (2 stig fyrir sigur 1 fyrir tap).
>73G,&:=/D
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Kópavogsv.: Breiðablik – Víkingur M19.15
1. deild karla, Lengjudeildin:
Hásteinsvöllur: ÍBV – Afturelding ....... L14
Í KVÖLD!