Morgunblaðið - 31.07.2021, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 31.07.2021, Blaðsíða 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2021 VIÐTAL Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Fyrir Wagnersöngvara er hátíðin í Bayreuth meistaradeildin. Það er gríðarlega þýðingarmikið fyrir hvaða söngvara sem er, sem syngur í óperum Wagners, að fá þarna hlut- verk,“ segir barítóninn Ólafur Kjart- an Sigurðarson sem syngur hlutverk Biterolfs í óperunni Tannhäuser sem var frumsýnd síðastliðinn þriðjudag á þessari merku Wagner- hátíð, Bayreuther Festspiele í Þýskalandi. Hátíðina, sem fyrst var haldin árið 1876, má rekja til Richards Wagners sjálfs sem fékk þá flugu í höfuðið að stofna hátíð þar sem einungis verk hans sjálfs yrðu flutt og var þeirri hugmynd hrint í framkvæmd. Hann hafði sjálfur umsjón með hönnun og byggingu óperuhússins, þar sem há- tíðin fer fram enn þann dag í dag, sem var byggt sérstaklega til þess að hýsa þær gríðarstóru hljóm- sveitir og uppsetningar sem óperur Wagners krefjast. Bygging hússins var formlega hafin á 59 ára afmæli Wagners, 22. maí 1872, og fyrsta uppfærsla hátíðarinnar var Nifl- ungahringurinn sem sett var upp 13.-17. ágúst 1876. Opnar dyr að tækifærum Ólafur Kjartan er einungis annar Íslendingurinn sem hefur fengið tækifæri til að syngja á hátíðinni. Tómas Tómasson barítón söng hlut- verk Friedrichs von Telramund í Lohengrin árið 2011. Þess má þó geta að leikarinn Björn Thors kom fram í óperunni Parsifal, í leikstjórn Christophs Schlingensiefs, árið 2005. Þar komu ýmsir leikarar fram auk óperusöngvaranna. „Ég er búinn að stefna lengi, leynt og ljóst, að því að komast hér á pall. Svo þetta er auðvitað ákveðinn áfangastaður, en á sama tíma er þetta líka nýr og mjög spennandi byrjunarreitur. Ef allt gengur að óskum opnar þetta fyrir manni dyrnar að gríðarlega mikilvægum tækifærum, til dæmis í stórum óp- eruhúsum víða um heim, að vinna með ákveðnum hljómsveitum, hljómsveitarstjórum og leikstjórum og svo framvegis,“ segir söngvarinn. Ólafur fer einnig með stórt hlut- verk í nýrri uppsetningu hátíð- arinnar á Niflungahring Wagners sem frumsýnd verður að ári og hefur hann gert samning við hátíðina til nokkurra ára. Burðarhlutverk í Hringnum Niflungahringurinn (þ. Der Ring des Nibelungen) er samsettur úr fjórum óperum, Rínargullinu (Das Rheingold), Valkyrjunni (Die Walk- üre), Siegfried og Ragnarökum (Götterdämmerung). „Margir þekkja söguna úr seríu Tolkiens, The Lord of the Rings, og kvik- myndum Peters Jackson. Þetta er í raun og veru sama sagan, ævintýrið um hringinn sem er mótaður úr gulli úr Rínarfljótinu. Sá sem hringinn hefur fær ótakmörkuð völd en því fylgir að viðkomandi þarf að afneita sjálfri ástinni. Enginn sem býr yfir Rínargullinu og þessum miklu völd- um getur orðið hamingjusamur á meðan.“ Ólafur mun fara með hlutverk Al- berichs, sem er mikið burðar- hlutverk í Niflungahringnum. „Dvergurinn Alberich rænir gullinu af Rínarmeyjum þremur sem gæta þess og afneitar um leið ástinni. Í þessum óperum tekur við endalaus barátta um völd. Karakterinn Alber- ich er gríðarlega heillandi og skemmtilegur. Ég segi stundum að þetta séu mörg hlutverk soðin sam- an í eitt. Hann sýnir á sér margar hliðar.“ Þessi nýja uppfærsla verður frumsýnd næsta sumar og mun Ólaf- ur syngja Alberich í þeim þremur óperum sem hann kemur fram í. „Þetta mun ég endurtaka sumarið 2023 og samhliða því mun ég halda áfram að syngja hlutverk Biterolfs í Tannhäuser sem ég var að frumsýna í fyrradag. Ég er yfir mig hamingju- samur með þessa samninga og hver veit nema maður fái að halda áfram eftir 2023 ef vel gengur.“ Niflungahringur Wagners er eng- in smásmíði og það sama má segja um flestar aðrar óperur hans. „Allur Niflungahringurinn tekur fjögur kvöld í flutningi og hann slagar í 16 klukkutíma af tónlist. Þeim sem ánetjast tónlist Wagners finnst þó ekki mikið mál að sitja fjögur kvöld undir Niflungahringnum. Á Tann- häuser, sýningu sem hefst venjulega kl. 16 og lýkur kl. 21, eru tvö klukku- stundar löng hlé á einni sýningu svo mannskapurinn fær góðan tíma til að teygja úr sér. Það er ótrúlega skemmtileg stemning sem myndast í kringum óperuna í Bayreuth og það er mikill viðburður að koma hingað.“ Aldrei heyrt eins töfrandi rödd Með Ólafi syngur sannkallað stjörnulið. „Á hverjum degi fæ ég sent æfingaplan fyrir næsta dag og nafnalistinn er stundum eins og maður hafi sjálfur verið að skrifa lista yfir uppáhaldssöngvarana sína. Þetta er alveg lygilegt. Ég gæti talið upp ógnarlangan lista af fólki. Í Tannhäuser syngur til dæmis hin norska Lise Davidsen og ég er far- inn að kalla hana Lísu í Undralandi. Ég hef bara aldrei heyrt mannsrödd með svona töfra eins og hún hefur. Nú er að detta inn listi yfir þá sem verða í Niflungahringnum og maður fer næstum því hjá sér og heldur að það sé prentvilla þegar maður sér sitt eigið nafn þarna inni á milli. Þetta er alveg magnað.“ Sú viðurkenning sem felst í því að fá hlutverk á hátíðinni í Bayreuth er strax farin að hafa áhrif á dagskrá Ólafs. „Það er ekkert launungarmál að þegar málsmetandi óperuhús eru að setja upp Wagneróperur þá eru allar líkur á því að viðkomandi hús kanni hvaða söngvari söng síðast ákveðna rullu á Bayreuth,“ segir hann og bætir við að spyrja verði að leikslokum en að hann vonist til þess að þetta sé „byrjunin á restinni“ af sínum ferli. „Eftir að það var gert opinbert að ég muni syngja mikilvægt hlutverk í nýrri uppsetningu af Niflunga- hringnum á næsta ári þá er það þeg- ar farið að hafa mjög öflug og bein áhrif á mína dagbók í framtíðinni. Það eru þegar komnar bókanir sem eru bein afleiðing af því að hafa fengið þennan samning.“ Ólafur segir frá því að hann muni syngja titilhlutverkið í Hollend- ingnum fljúgandi í nóvember í óp- eruhúsinu í Leipzig í Þýskalandi, sem er annað mikilvægt Wagnerhús. Það sé dæmi um það hvað breytist þegar maður er kominn með stimpil upp á að vera orðinn Bayreuth- söngvari. Hann hafi ekki þurft að gera sér ferð til Leipzig til að taka þátt í svokölluðum fyrirsöng eða prufu. Það hafi verið nægilegt að umboðsskrifstofan semdi um þetta fyrir hans hönd. Valkyrjan í Íslensku óperunni Ólafur mun taka þátt í uppsetn- ingu Íslensku óperunnar á Valkyrj- unni í Hörpu í febrúar næstkomandi og segir hann það að ýmsu leyti vera hápunkt næsta starfsárs. Uppsetn- ingin verður hluti af Listahátíð og þar mun hann fara með hlutverk Wotans, eða Óðins, í fyrsta sinn. „Þetta hlutverk er stór og mikill biti og það er ómetanlegt að fá að syngja á heimavelli og ég hreinlega get ekki beðið. Maður kemur orðið allt of sjaldan heim svo það er ómetanlegt að fá að æfa og koma fram í Hörpu og fá að syngja þetta magnaða hlut- verk. Að auki er þetta í fyrsta sinn sem Valkyrjan er flutt í heild á Ís- landi svo þetta var tækifæri sem var ekki hægt að afþakka.“ Ýmis önnur verkefni eru á döfinni hjá Ólafi og mörg þeirra eru Wagn- ertengd. Þar má nefna nýja upp- setningu á Niflungahringnum í Þjóðaróperunni í Peking í Kína, sem verður í gangi næstu tvö eða þrjú ár- in. „Þar er ég svo heppinn að vinur minn og kollegi, Bjarni Thor Krist- insson, verður með mér, svo mér ætti ekki að leiðast. Það er mjög ánægjulegt.“ Hann mun einnig syngja Ragnarök, lokaóperu Niflungahringsins, í Gautaborg. Þeim hring hefur hann tekið þátt í síðan árið 2017 og er honum nú að ljúka. Stórkostleg tækifæri „Það eru kollegar sem syngja ekk- ert annað en Wagner. Ég hef ekki ætlað mér það, ég syng til dæmis töluvert úr óperum Verdis. Ég vil alls ekki sleppa hendinni af þessum hlutverkum en staðreyndin er sú að því betur sem gengur í Wagnerfag- inu, því meira þéttist dagbókin af verkefnum því tengdum og sumir hreinlega enda þannig að hafa ekki tíma í annað en að syngja Wagner og það er svo sem ekkert til þess að ergja sig yfir. Ég get vel hugsað mér, og geri ráð fyrir því, að Wagner verði ráðandi á mínum verkefnalista og ég tek því auðvitað fagnandi því tækifærin eru alveg stórkostleg í þessari tegund ópera. Ég bugta og mig beygi fyrir því hvernig stjórnendur Bayreuth- hátíðarinnar hafa leyst úr málum varðandi Covid-19. Hátíðinni í fyrra var aflýst en í sumar er þetta gerlegt með gríðarlegu tilstandi. Af þeim um það bil 2.000 sætum sem húsið tekur eru rétt um 900 gestir sem mega koma á hverja sýningu í ár. Svo eru allir þátttakendur hátíð- arinnar, alveg sama hvort það er fólk úr einsöngvarahópnum, kór- unum, hljómsveitum eða tæknifólk, sendir í Covid-próf á hverjum ein- asta degi. Ef ég fer ekki í test daginn áður en ég fer á æfingu eða sýningu þá hleypir tölvukerfi hátíðarinnar mér ekki inn á svæðið. Hátíðin heitir Bayreuther Festspiele og einhverjir hafa verið að gantast með að þetta sé Bayreuther „Test“-spiele í ár.“ Hátíðin dýrmæt í ljósi aðstæðna Ólafur segir það í einu orði sagt aðdáunarvert hvernig Katharina Wagner, stjórnandi hátíðarinnar, og hennar meðstjórnendur hafa tekist á við áskoranirnar. „Hér hafa allir lagst á eitt að láta þetta ganga því auðvitað vitum við öll sem tökum þátt að það má ekkert út af bregða svo það verði ekki öllu aflýst aftur. Það þarf ekkert að orðlengja hvað maður er þakklátur fyrir að hafa vinnu því síðasta ár var síður en svo gjöfult fyrir okkur farandsöngvara, ekki frekar en aðra. Þessi hátíð verður snöggtum dýrmætari í ljósi aðstæðna.“ Eins og áður sagði var óperan Tannhäuser frumsýnd síð- astliðinn þriðjudag en fimm sýn- ingar til viðbótar hafa verið skipu- lagðar; á mánudag og fimmtudag í næstu viku og 13., 16. og 23. ágúst. Ljósmynd/Jorge Rodríguez-Norton Á sviði Ólafur tekur sig vel út í hlutverki Biterolfs í Tannhäuser í óperuhúsinu í Bayreuth. Wagner lét sjálfur byggja húsið undir hátíð tileinkaða verkum sínum og hafa Bayreuther Festspiele farið þar fram frá 1876. Ljósmynd/ Isolde Stein-Leibold Barítón Ólafur Kjartan Sigurðarson hefur gert samning við Bayreuth- hátíðina til nokkurra ára og segir það bæði áfangastað og byrjunarreit. „Gríðarlega þýðingarmikið“ - Ólafur Kjartan Sigurðarson óperusöngvari kemur fram í Tannhäuser á Bayreuth-hátíðinni - Syngur mikilvægt hlutverk í Niflungahringnum næstu árin - Valkyrjan í Hörpu í febrúar Bíltúr Ólafur Kjartan þeysist um á sportbíl með óperutónskáldinu Wagner. Söngvarinn segir að Wagnerhlutverk verði líklega ráðandi á næstu árum. Fjölskylda Sigurður Rúnar Jóns- son, Ásgerður Ólafsdóttir, Sig- urbjörg Bragadóttir og Brynja Ólafsdóttir á frumsýningunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.