Morgunblaðið - 31.07.2021, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 31.07.2021, Blaðsíða 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2021 Hægindastóll model 7227 Leður – Stærðir XS-XL Verð frá 389.000,- NJÓTTU ÞESS AÐ SLAKA Á Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (með Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. Ein kunnasta og fegursta höll endurreisnartímans í Rómaborg er Palazzo Farnese sem reist var snemma á 16. öld og að hönnuninni komu nokkrir þekktustu arkitektar og listamenn þess tíma. Sjálfur Michelangelo hannaði til að mynda efstu hæðina og gluggana á henni, auk brúar sem átti að ganga yfir Tíberfljót bak við höllina en var aldrei byggð. Höllin er í eigu ítalska ríkisins og árið 1936 afhenti það hana Frökkum til 99 ára fyrir sendi- ráð. Núverandi sendiherra Frakka á Ítalíu gengst um þessar mundir fyr- ir nauðsynlegum viðgerðum á höll- inni og hefur í tengslum við þær fengið til liðs við sig listamenn, landa sína, sem setja með líflegum hætti mark sitt á bygginguna og umhverfi hennar meðan á viðgerðum stendur. Á dögunum sveif í loftbelgjum uppi fyrir aftan höllina, yfir Tíber, verk listamannsins Oliviers Gros- setetes „Farnese-brúin“. Hafði hann gert eftirmynd af brú Michelangelos úr pappa og sveif hún þar sem meistarinn hafði ætlað henni stað. Og nú í vikunni var sett utan á höll- ina flennistórt verk listamannsins vinsæla sem kallar sig JR. Er þar að sjá sem hluta framhliðarinnar hafi verið flett af höllinni svo sést inn í súlnasali og á hinar kunnu freskur og listaverk sem eru inni í höllinni. Þyrpist fólk að til að skoða verkið. AFP Flughopp Franski listamaðurinn sem kallar sig JR tekur einkennisstökk sitt fyrir framan sköpunarverk sitt á endurreisnarhöllinni fögru, Palazzo Farnese. AFP Loftbrú „Farnese-brúin“, verk úr pappa eftir Olivier Grossetete, sveif yfir Tíberfljóti í Róm, þar sem Michelangelo hannaði brú sem aldrei var byggð. Listamenn takast á við Farnese-höllina Tónlistarhópurinn Umbra kemur fram í sumartónleikaröð Hall- grímskirkju í Saurbæ í Hvalfirði á morgun, sunnudag, kl. 16. Á efnis- skrá tónleikanna eru íslensk þjóð- lög og evrópsk miðaldatónlist. Umbra var stofnuð haustið 2014 og hana skipa fjórar atvinnutónlist- arkonur, Alexandra Kjeld, sem leikur á kontrabassa og syngur, Arngerður María Árnadóttir, sem leikur á keltneska hörpu, orgel og syngur, Guðbjörg Hlín Guðmunds- dóttir, sem leikur á barokkfiðlu, langspil og syngur, og Lilja Dögg Gunnarsdóttir, sem syngur og leik- ur á slagverk og flautur. Tónlistar- hópurinn hefur komið víða fram, innanlands sem utan og hlotið viðurkenningar fyrir verk sín og hljómplötur. Umbra Á efnisskránni eru íslensk þjóðlög, sagnadansar og evrópsk miðaldatónlist. Umbra kemur fram í Saurbæ Fágætt eintak úr fyrsta inn- bundna upplagi fyrstu bókar rit- höfundarins J.K. Rowling um galdrastrákinn Harry Potter var slegið hæst- bjóðanda á upp- boði í Bretlandi fyrir 80 þúsund pund, nærri 14 milljónir króna. Harry Potter and the Philo- sopher’s Stone kom upphaflega út í aðeins 500 eintökum árið 1997 og þar af fóru um 300 á bókasöfn þar sem þau létu mjög á sjá. Þetta eintak var hins vegar nánast ósnert og þá er í þessum fyrstu eintökum höfundarrétturin merkt- ur „Joanne Rowling“, ekki J.K. Rowling. Galdraverð á bók um Harry Potter Eintakið dýra. Tónlistarhátíðin Seigla hefst á þriðjudaginn í næstu viku, 3. ágúst, og stendur fram á helgi, til 7. ágúst. Stofnað er til hátíðarinar af Ernu Völu Arnardóttur píanóleikara í samstarfi við Íslenska Schumann- félagið. Sjö tónleikar verða haldnir, í Hörpu og Listasafni Sigurjóns Ólafssonar, og koma að þeim 24 tónlistarmenn. Að sögn Ernu Völu er á hátíðinni lögð áhersla á „hið bjarta og jákvæða“ og er efnis- skráin sögð sumarleg. Opnunartónleikar hátíðarinnar, „Ævintýri síðsumars“ verða í Kaldalóni Hörpu á þriðjudag kl. 20. Fram koma Ásta Dóra Finnsdóttir píanóleikari, Grímur Helgason klarínettuleikari, Þórarinn Már Baldursson víóluleikari og Guðrún Dalía Salómonsdóttir píanóleikari. Ásta Dóra er einungis 14 ára gömul en hefur unnið til verðlauna í mörg- um píanókeppnum. Hún hefur þeg- ar leikið einleik með hljómsveitum og stundað bæði nám við MÍT í Reykjavík og Barratt Due Institute í Noregi. Ásta mun byrja tón- leikana með rómönsum eftir Clöru Schumann og Corelli-tilbrigðum Rakhmanínoffs. Þá tekur við tríó Gríms, Þórarins og Guðrúnar Dalíu en þau hafa komið víða við í ís- lensku tónlistarlífi síðustu ár. Nú munu þau flytja Kegelstatt-tríó Mozarts og Märchenerzählungen eftir Robert Schumann. Dagskrá hátíðarinnar má sjá í heild á vefsíð- unni seiglafestival.is. Erna Vala (f. 1995), listrænn stjórnandi Seiglu, hefur komið fram víða í Evrópu og Bandaríkj- unum síðustu ár og unnið til fjölda verðlauna fyrir píanóleik sinn. Hún hefur til að mynda leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna. Sjö tónleikar í næstu viku á hátíðinni Seiglu - Fyrstu tónleikar í Hörpu á þriðjudag Stjórnandinn Erna Vala Arnar- dóttir heldur hátíðina í samstarfi við Íslenska Schumannfélagið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.