Morgunblaðið - 31.07.2021, Síða 37

Morgunblaðið - 31.07.2021, Síða 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2021 Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.is „Þetta er blanda af viljanum til að berjast en svo er ákveðið vonleysi líka. Við þurfum að vinna statt og stöðugt og það má ekki gleyma þessu viðfangsefni. Við þurfum að halda áfram að fjalla um þetta,“ seg- ir Tumi Árnason saxófónleikari en hann sendi nýverið frá sér djassplöt- una Hlýnun þar sem hann tekst á við eitt stærsta vandamál sem mann- kynið stendur nú frammi fyrir, lofts- lagsbreytingar. Platan er í sex þáttum og er út- færð líkt og villt og ótamið vistkerfi sem fer hnignandi með hverju verki og deyr svo að lokum. Að sögn Tuma er verkið brotið niður með petaltónum og ráðandi tónum sem toga og taka yfirhöndina þangað til voða lítið stendur eftir, „bara eitt- hvert suð“. Sem lagrænan efnivið nýtir Tumi 40 ára gamla upptöku af fuglasöng frá tegundinni kaua’i ’o ’o sem er nú útdauð og er upptakan sú seinasta sem vitað er um. Skrifaði Tumi nót- ur upp úr söngnum og vinnur hann með þær á mismunandi hátt í gegn- um plötuna. Lítur hann þannig á að ákveðinn draugur sé að syngja í gegnum hljómsveitina. Vinnsla plötunnar hófst ekki af krafti fyrr en snemma árið 2019 og inniheldur hún bæði spunatónlist og ósungna tónlist. Varði Tumi miklum tíma í vangaveltur um hvernig væri ákjósanlegast að útfæra verkið enda ekki auðvelt verkefni að vekja at- hygli á alvarleika hlýnunar jarðar með skýrum og skilvirkum hætti á abstrakt formi djasstónlistar. Segir hann lokaafurðina byggjast meira á tilfinningu en skýrri yfirlýsingu. „Ástæðan fyrir því að ég byrjaði á þessu verkefni var að ég er búinn að lesa svo mikið um loftslagsbreyt- ingar og hamfarahlýnun og fannst ég verða að gera eitthvað. Verandi tónlistarmaður upplifir maður sig ekki í neinni kjörstöðu til þess að hafa einhver áhrif. Mér fannst samt eins og ég þyrfti að vinna eitthvað um efnið í mínum miðli og fór þá leið að gera þessa plötu,“ segir hann. Afrakstur mikillar samvinnu Tumi samdi plötuna fyrir kvartett og fékk hann með sér í lið Magnús Jóhann Ragnarsson á hljómborð, Skúla Sverrisson á rafbassa og Magnús Trygvason Eliassen á trommur. Að sögn Tuma er loka- útkoma plötunnar afrakstur mikillar samvinnu þeirra félaga og hælir hann samstarfsfélögum sínum fyrir aðkomu þeirra. Segist hann jafn- framt hafa samið verkið með þá í huga, en hann hefur áður leikið með öllum þeirra í ýmsum útgáfum. „Ég er með alveg frábæra hljóð- færaleikara með mér sem taka þennan upphafspunkt og svo vinnum við saman með þetta til að skapa lokaafurðina. Þeir eru á margan hátt miklu klárari en ég, sérstaklega á sínum sviðum. Það var eiginlega það skemmtilegasta við ferlið fyrir mig. Maður er búinn að burðast með þessar vangaveltur í höfðinu og svo fer þetta að lifna við fyrir tilstilli samstarfsfélaga minna.“ Plata úr plasti mótsögn Aðspurður segist Tumi standa í þeirri trú að tónlistarbransinn sé al- mennt farinn að huga meira að um- hverfismálum, hvað varðar tónleika- ferðalög og einnig útgáfu tónlistar. Segir hann róttækar breytingar hafa átt sér stað undanfarin ár, sér- staklega hvað varðar útgáfu tónlist- ar. Efnislegir hlutir á borð við geisladiskinn og vínilplötuna lúta nú í lægra haldi fyrir stafrænni útgáfu. Auk þess hefur lítið borið á tónleika- ferðalögum nú þegar heimsfaraldur stendur yfir og hvorki vinsælt né leyfilegt að halda stórar samkomur. Þrátt fyrir að vera ánægður með minnkaða kolefnissporið sem þessar breytingar kunna að hafa í för með sér segir Tumi þó stöðuna varhuga- verða fyrir tónlistarfólk. Á sama tíma og færri ferðalög minnka út- blástur skaðlegra lofttegunda þá eru listamenn einnig í erfiðri stöðu og hefur heimsfaraldurinn, með til- heyrandi aflýsingum, óneitanlega skapað mikla óvissu hjá tónlistar- fólki. Er honum einnig umhugað um tekjutapið sem tónlistarmenn þurfa nú að sæta í kjölfar þess að útgáfa fer að mestu fram með stafrænum hætti en stóru streymisveiturnar eru ekki þekktar fyrir að gefa lista- mönnum mikið fyrir snúð sinn. Á þetta sérstaklega við um tónlist sem fellur ekki innan marka vinsællar dægurmenningar, og tekur Tumi plötuna sína sem dæmi. Segir hann það geta reynst flókið verk fyrir um- hverfissinnaða listamenn að fóta sig í hinum kapítalíska heimi tónlistar- bransans. „Verkið er tapað stríð. Maður er með einhverja andkapítalíska plötu en samt með einhvers konar vöru og ekki nóg með það heldur er vínil- platan úr plasti. Þannig að maður er að gera verk um umhverfisvernd á plastformati. Þetta er samt sem áð- ur veruleikinn sem við búum í og í rauninni er hann ekki mótaður af mér eða einhverju tónlistarfólki heldur af markaðnum.“ Tumi tekur þó fram að hann hafi lagt mikið upp úr því að hafa útgáfu plötunnar eins umhverfisvæna og mögulegt var. Var platan meðal ann- ars framleidd úr endurunnum vínil og eru bæði plötumiðjurnar og innri umslögin úr endurunnum pappír. Tók Tumi einnig ákvörðun um að gefa Hlýnun ekki út á stærstu streymisveitunum enda hefur það skilað honum litlu í gegnum tíðina. Verður því stafræn útgáfa plötunnar einungis á miðlinum Bandcamp. Þar getur fólk hlustað á lögin gjaldfrjálst eða hlaðið verkinu niður í heild sinni gegn lágmarksupphæð. Er það svo í höndum hvers og eins hvort hann vilji styrkja listamanninn umfram það eður ei. Spurður hvort hann hyggist halda áfram með viðlíka nálgun í næstu verkum segist Tumi þurfa að taka sér smá hlé, enda hlýnun jarðar þungur efniviður til að vinna með. „Ég held náttúrlega áfram að reyna að leggja mitt af mörkum. Þessi plata er líka liður í því að reyna að auðvelda mér að glíma við þessar áhyggjur og til- finningar sem spretta upp.“ Kveðst hann vonast eftir því að verkið muni hafa einhver áhrif á samfélagið og hvetji fólk áfram í þessari sameiginlegu baráttu. Telur hann þá mikilvægast að knýja fram breytingar hjá þeim sem bera mestu ábyrgðina á ástandinu, ríkisstjórn- inni og stórfyrirtækjum. „Þetta er náttúrlega bara barátta fyrir öllu lífi og framtíðinni okkar. Tónlistarfólk ætti algjörlega að láta sig það varða, og gerir það.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Hugsjónaverk Tumi segir flókið fyrir umhverfissinnaða listamenn að fóta sig í hinum kapítalíska heimi bransans. Andkapítalísk tónlist á vínilplötu - Tumi Árnason saxófónleikari sendir frá sér djassplötuna Hlýnun - Loftslagsbreytingar, tegunda- dauði og hnignun vistkerfa koma við sögu - Erfitt fyrir listamenn að gefa út andkapítalískt efni „Endurómur“ er heiti sýningar með verkum fimm listamanna sem verð- ur opnuð í Verksmiðjunni á Hjalt- eyri í dag, laugardag, klukkan 14. Listamennirnir sem sýna eru Ang- ela Dufresne, Olga Bergmann, Anna Hallin, Vesa-Pekka Rannikko og Simon Rouby. Olga og Anna eru skipuleggjendur sýningarinnar sem er fylgt úr hlaði með texta eftir Þór- dísi Aðalsteinsdóttur. „Endurómur“ er í röð árlegra og áhugaverðra sumarsýninga Verk- smiðjunnar sem hefur hreppt Eyrarrósina, fyrir framúrskarandi verkefni á landsbyggðinni. Nýtt tímahylki Um sýninguna „Endurómur“ seg- ir í texta Þórdísar: „Gullplata Voyagers var send út í geim 1977, tímahylki með sneið- mynd af raunveruleika okkar hér á jörðinni. Myndir og hljóðdæmi, fuglasöngur, hlátur, vindur, öldunið- ur. Ljósmyndir af nöktum líkömum þóttu of ósiðlegar þannig að geim- verurnar verða að gefa ímyndunar- aflinu lausan tauminn. En þær geta notið þess að skoða ljósmynd af konu í matvöruverslun og heyrt kveðjur á 55 tungumálum. Við vor- um að dansa, sópa, reisa tjald, hlaða vegg, skera nöfnin okkar í fjár- húsagrindur meðan við biðum eftir lambi. Við murkuðum lífið úr millj- ónum, fluttum björg, þurrkuðum land og veittum vatni á land, hækk- uðum í ofnunum, settum loftkæl- inguna á fullt, horfðum á stjörn- urnar þartil við sofnuðum í húsagarðinum. Listamennirnir á sýningunni Endurómur munu senda okkur tóninn af engu minni bjart- sýni en starfsfólk NASA. Þau senda kveðju út í tómið, rómantíska, ljóð- ræna, symbólíska. Tæknin staðsetur skilaboðin í vertigó tímans. Ég nem boðin, en þekki ekki tungumál skila- boðanna eða landslagið í verkunum – skil ekki markmið athafna – það er sama tilfinning og ég fæ þegar ég horfi út um gluggann eða hlusta á fréttirnar. Ég hlakka til að verða vitni að raunveruleika listamann- anna á Hjalteyri í sumar; efast um jörðina undir fótunum á mér, láta náttúruafl tækninnar hellast yfir mig, sjá Angelu nakta og verða þar með mun heppnari geimvera en þær sem finna gullnu plötu Voyagers.“ Vegna sóttvarna er tekið fram að hámarksfjöldi gesta í húsinu við opnunina er 200. Listamenn senda okkur tóninn - „Endurómur“ á sýningu á Hjalteyri Töfraheimur Sena úr ævintýralegu vídeóverki Olgu Bergmann og Önnu Hallin á sýningunni í Verksmiðjunni. Nekt Stilla úr verki eftir Angelu Dufresne, einn sýnendanna.Landslag Verkið Pangea eftir Simon Rouby.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.