Morgunblaðið - 31.07.2021, Page 40

Morgunblaðið - 31.07.2021, Page 40
Kvartett gít- arleikarans Bjarna Más Ing- ólfssonar kemur fram á tónleikum sumarjazz- tónleikaraðar veitingahússins Jómfrúarinnar við Lækjargötu í dag, laugardag. Fara þeir fram utandyra, hefjast kl. 15 og standa til 17. Aðgangur er ókeypis. Með Bjarna Má koma fram Ari Bragi Kárason á trompet, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á bassa og Einar Scheving á trommur. Bjarni er búsettur í Svíþjóð þar sem hann nemur við Konunglega tónlistarháskólann í Stokkhólmi. Á tónleik- unum mun hljóma fjölbreytilegt úrval af eftirlætis- djassstandördum Bjarna Más. Kvartett Bjarna Más Ingólfssonar skemmtir gestum Jómfrúarinnar LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 212. DAGUR ÁRSINS 2021 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.268 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is „Þrjú stig á Hlíðarenda og við erum komnir á fullu inn í slaginn um þann stóra, þannig að það er mikil eftir- vænting eftir þeim leik. Við erum með mjög reynt lið og Valur sömuleiðis. Ég held að þetta verði frábær leikur,“ segir Kristinn Jónsson, leikmaður KR, meðal annars um viðureignina á milli Vals og KR sem er fram undan í ágúst. Rætt er við Kristin í blaðinu í dag í tilefni af því að hann er leikmaður mánaðarins í Pepsí Max-deildinni í knattspyrnu hjá Morgunblaðinu. Lið júlímánaðar er jafnframt birt í blaðinu. » 32 Kristinn Jónsson er leikmaður mánaðarins hjá Morgunblaðinu ÍÞRÓTTIR MENNING Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Magnús Kjartan Eyjólfsson, for- söngvari og gítarleikari Stuðla- bandsins frá Selfossi, mun á morg- un stýra brekkusöngnum fræga af stóra sviðinu í Herjólfsdal. Brekkusöngurinn í ár tók óvænta stefnu fyrir rúmri viku þegar til- kynnt var tvö hundruð manna samkomubann og Þjóðhátíð frestað í kjölfarið. Magnús hefur komið fram á Þjóðhátíð óslitið síðan 2016 en þetta mun vera frumraun hans í að stýra brekkusöng á þessum skala. Erfitt að lýsa tilfinningunni „Jú, ég hef verið að gera þetta síðustu 20 árin með hléum. Hef haft þetta að atvinnu allavega síð- ustu 10 árin,“ segir Magnús en hann hefur verið í Stuðlabandinu síðan 2010. Fyrir það spilaði hann bæði sem trúbador auk þess sem hann var með kántríbandinu Klaufum. Magnús segist spenntur fyrir söngnum annað kvöld, enda um að ræða stærsta „trúbadoragigg“ landsins. „Fyrir mann sem er einn með kassagítar held ég að það verði ekki mikið stærra en þetta.“ Þó sé erfitt að lýsa tilfinningunni. „Þetta er náttúrlega stórskrítið, að vera með brekkusöng fyrir framan tóma brekku. Ég er svona að spá hvort ég fái viðbrögð frá álfum og huldufólki,“ segir Magnús glettinn. Hvort það hafi verið áfall þegar samkomutakmarkanir voru boðaðar svarar hann: „Það er ekkert hægt að neita því en maður hafði svo sem búist við þessu. Maður sýnir því skilning.“ Spurður hvort hann sé opinn fyr- ir að halda áfram brekkusöngnum eftir þessa undarlegu frumraun jánkar Magnús því. „Ég er alveg opinn fyrir því. Ég hef stjórnað brekkusöng áður, þó ekki í þessari brekku,“ segir Magnús og á þar við sumarhátíðina Sumar á Selfossi en þar hefur hann verið með brekku- söng, sem þó er ekki í eiginlegri brekku. „Það er kallað sléttusöngur af því að það eru engar brekkur á Selfossi,“ segir hann og bætir við: „Ég er vanur því þannig séð en það er ekki hægt að líkja neinum öðr- um aðstæðum við þessar í Herjólfs- dal; með brekkuna og allt fyrir framan sig. Við getum sagt brekku- söngur-inn með greini um þennan í Herjólfsdalnum. Og ég væri alveg til í að fá að stýra honum með fólk fyrir framan mig. Allavega einu sinni,“ segir Magnús. Útsendingin hefst annað kvöld klukkan 20:30. Fyrst spilar Alba- tross ásamt góðum gestum. Brekkusöngurinn sjálfur hefst síð- an klukkan 23. Hægt er að fá miða á tónleikana í beinu streymi á tix.is. Brekkusöngvarinn Magnús Kjartan stýrir söngnum af stóra sviðinu í Herjólfsdal annað kvöld. Fyrsti brekkusöngur- inn með tóma brekku - Magnús Kjartan slær hljóminn - Frumleg frumraun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.