Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.07.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.07.2021, Qupperneq 12
Sigurbjörn leggur áherslu á, að sínar dyr séu alltaf opnar og að mikilvægt sé að bæði starfs- fólk skólans og nemendur upplifi sanngirni. „Það skiptir máli fyrir nemendur að á þá sé hlustað. Hér er tekið á öllum málum og nánast enginn fer ósáttur út; við vinnum okkur að lausninni. Það er algjört lykilatriði. Það er að- eins einn nemandi sem hefur ekki skilið þetta í minni tíð. Það orð fer af okkur hérna á skrif- stofunni að við vitum um allt sem gerist í skól- anum. Ég get nefnt þér gott dæmi um það. Piltur nokkur hafði gert eitthvað af sér og ég sagði honum að halda sig á mottunni, ég vissi allt um hann, meira að segja hjá hvaða stelpu hann hefði sofið um nóttina. Hafði frétt það fyrir hreina tilviljun. Hann var eins og bráðið smjer eftir þetta.“ Hann hlær. „Ég geri mér fulla grein fyrir því að ég er ekki þessi dæmigerði virðulegi skólameistari en ábyggilega týpan sem þessi skóli þurfti á að halda. Ég vil vinna með nemendum en ekki á móti þeim. Þegar ég var hérna í skólanum tók skólameistari sínar ákvarðanir án þess að ráð- færa sig við neinn og þær stóðu, sama hvað tautaði.“ – Hvernig skólameistari ert þú? „Ég er galgopi sem er léttur að eðlisfari og á auðvelt með að sjá spaugilegu hliðarnar á til- verunni. Það er svo auðvelt að leika trúðinn. En öllu gríni fylgir alvara. Stefna okkar er sú að taka mildilega á málum – en ef skrökvað er að okkur þá mætum við því af festu.“ Eitt af því sem taka þurfti á var áfengis- neysla á heimavistinni. „Hún verður ekki liðin og það tók eltingarleik og átök að koma skikki á það mál en drykkja á vistinni er ekkert vandamál í dag. Einu sinni hefur verið fiktað við dóp í skólanum á minni vakt, það var gras- neysla. Ég fékk að vita af því máli frá nem- endum og gerði viðeigandi ráðstafanir. Nem- endur kæra sig ekki um slíkt.“ Gimbur á flandri Nú hringir síminn hjá Sigurbirni og hann bið- ur mig að hafa sig afsakaðan rétt sem snöggv- ast. „Ég verð að taka þetta.“ Símtalið hverfist um gimbur sem er á einhverjum þvælingi og Sigurbjörn leggur til að henni verði ýtt sunnar og ef það dugi ekki til þá verði að fara með hana á bát út í einhverja eyju. Skilji ég þetta rétt. „Afsakaðu. Þetta var bróðir minn. Við viljum ekki að okkar fé fari upp að veginum, frekar en aðrir sómakærir bændur.“ Það kemur sumsé í ljós að Sigurbjörn er líka bóndi, ásamt eldri bróður sínum, Geir Arn- grímssyni. Þeir tóku við búskap í Álftagerði í Mývatnssveit þegar faðir þeirra, Arngrímur Geirsson, féll frá síðasta sumar. Eru þar með 90 veturfóðraðar kindur og ríflega 30 hesta. „Mamma, Gígja Sigurbjörnsdóttir, er að nafn- inu til ábúandi en við bræður sjáum um bú- skapinn fyrir hana. Mig langaði að prófa þetta og það hefur verið gaman. Afi minn og amma, Geir Kristjánsson og Freydís Sigurðardóttir, bjuggu þarna áður og ég var tíður gestur sem barn en ólst að mestu upp í Skútustaðaskóla.“ Sigurbjörn býr á Laugum sem eru í 26 km fjarlægð frá Álftagerði. „Það er svo sem ekki langt í burtu en samt nógu langt til þess að maður getur ekki skotist í verkefni eins og þetta á miðjum vinnudegi.“ Eiginkona Sigurbjörns er Gunnhildur Hin- riksdóttir íþróttafræðingur, einnig úr Mý- vatnssveit. Þau byrjuðu saman þegar hann var fimmtán að verða sextán en hún fjórtán að verða fimmtán og hafa verið samferða gegnum lífið síðan, fyrir utan vetrarpart meðan þau voru unglingar. „Það er mesta furða hvað þetta hefur gengið en ég er ábyggilega ekkert auðveldur í sambúð. Vil gera hlutina svona og bara svona,“ segir hann og setur báðar hendur skörungslega fram á sama tíma. „Ég hef skoð- un á hlutunum og sýna þarf mér vel fram á það og með gildum rökum að betra sé að gera þá einhvern veginn öðruvísi. Blessunarlega er Gunnhildur tiltölulega þægileg í sambúð.“ Miðjubarn en samt ekki Eitthvað helgast þetta geðslag vísast af upp- eldinu. „Ég er miðjubarn en samt ekki.“ – Nú? „Ég á tvö eldri systkini, níu og ellefu árum eldri, og tvö yngri. Þau eldri fóru ung að heim- an, þannig að ég var í reynd elsta barnið á heimilinu meðan ég var að vaxa úr grasi. Það mótar mann. Sjálfur var ég farinn að heiman fimmtán ára til að búa megnið af árinu hérna á Laugum.“ Sigurbjörn gekk menntaveginn allt til enda, lauk doktorsprófi í lífeðlisfræði í Bandaríkjun- um. „Þegar ég var yngri hugsaði ég með mér að gaman yrði að gera tvennt í lífinu, að vera skólastjóri Íþróttakennaraskólans og lands- liðsþjálfari í frjálsum. 37 ára var ég búinn að gera hvort tveggja. Þá spyr maður sig óhjá- kvæmilega: Hvað svo?“ Hann brosir. Eina vegferð er hann þó feginn að hafa ekki lagt upp í. „Fyrir nokkrum árum var ég hvatt- ur til að sækja um starf forseta mennta- vísindasviðs HÍ. Ég hef ekki hugmynd um hvort ég hefði fengið starfið og það reyndi aldrei á það vegna þess að ég ákvað að vel at- huguðu máli að sækja ekki um. Auðvitað kitl- aði þessi vegtylla leikfimikennarann úr Mý- vatnssveit en þetta hefði verið botnlaus vinna í fimm ár og vígstaðan erfið út frá til dæmis kjarasamningum sem maður hefur ekkert um að segja.“ Sigurbjörn og Gunnhildur eiga þrjú börn, Guðmund Gígjar, fæddan 2003, Arneyju Dag- mar, fædda 2005, og Hinrik Frey, fæddan 2009. „Tvö þau eldri verða hérna í skólanum hjá mér næsta vetur og ætla að setja mig á hausinn með því að búa á heimavistinni.“ Hann glottir. Finnst ég ekki vera veikur Eins og fyrr segir tók líf Sigurbjörns óvænta stefnu í byrjun ársins þegar hann greindist með fjórða stigs krabbamein. Hann hefur rætt opinskátt um veikindi sín, bæði í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum, og æðruleysi hans vakið óskipta athygli. Að ekki sé talað um flug- beittan húmorinn. – Við erum búnir að sitja hérna saman í dá- góða stund og mín upplifun er ekki sú að ég sé að tala við alvarlega veikan mann. „Mér finnst ég heldur ekki vera veikur. Þessi veikindi komu alveg flatt upp á mig; ég hef verið mjög heilsuhraustur og kenndi mér einskis meins fyrr en eitthvað poppaði út úr kviðnum á mér yfir nótt fljótlega eftir áramót- in. Ég var sannfærður um að þetta væri kvið- slit en gaf mér ekki tíma til að láta líta á það fyrr en nokkrum vikum seinna, það var nóg að gera hérna í skólanum. Auðvitað hefði ég átt að fara fyrr, eins og fólk lagði að mér. Maður á aldrei að bíða með svona lagað!“ Niðurstaðan var óvæntur skellur: Fjórða stigs sortuæxli. Nokkur stór æxli fundust í vinstra lunga, á báðum nýrnahettum, milli miltans og maga og við hægra nýra. Þá voru einnig minni æxli eða hnútar á víð og dreif í líkamanum og lítið æxli í hægra heilahveli. „Sortuæxli er algjör skítadreifari þegar það fer af stað, þannig að þetta fer á leifturhraða út um allt. Merkilegast þótti mér að vera með æxli í fituvef. Það er ekki mikla fitu á mér að finna.“ Hann glottir. Eistun voru á hinn bóginn hrein sem fékk Sigurbjörn – við munum að hann er doktor í lífeðlisfræði – til að tengja veikindin við húð- krabbamein sem hann greindist með árið 2015. Hann hafði þá fundið sakleysislegan blett á vinstri upphandlegg sem hann sýndi húðlækni. Sá var honum sammála um að ábyggilega væri engin hætta á ferðum en hann skyldi eigi að síður fjarlægja blettinn. „Niðurstaðan var sortuæxli sem kom verulega á óvart en hafa ber í huga að 30% sortuæxla hafa ekki dæmi- gerð einkenni sortuæxla.“ Æxlið var skorið burt og vefir í grenndinni fjarlægðir inn að beini. Sigurbjörn sýnir mér örið á handleggnum sem minnir á stafinn G. „Ég þarf þá ekki að fá mér húðflúr til heiðurs konunni minni.“ Öflug lyf komin til sögunnar Æxlið var yfir 1 millimetri á þykkt sem þýðir að eitlar voru skoðaðir. Þeir voru hreinir og Sigurbjörn útskrifaður án frekari meðferðar. „Á þessum tíma voru engin lyf við þessari gerð krabbameins. „Við skerum bara meðan við getum og síðan er það bara líknandi meðferð,“ sögðu læknarnir sem var óneitanlega sláandi. Breytingin í millitíðinni er hins vegar sú að nú eru komin fram líftæknilyf sem öfugt við hefð- bundin krabbameinslyf virkja ónæmiskerfið. Það þýðir að ég missi ekki hárið og hef ekki verið að léttast. Sem er jákvætt. Ekki er af miklu að taka.“ Eins alvarlegt og umræðuefnið er þá kemst hvorugur okkar hjá því á þessum tímapunkti að skella upp úr. Þrátt fyrir takmarkaðar aukaverkanir af lyfjunum er þolið þó minna en það var. „Ég þreytist fyrr en ég á að venjast, sérstaklega í girðingavinnu, skítamokstri eða annarri lík- amlegri vinnu – sem er skellur, ég væri miklu frekar til í að þreytast fyrr hérna á skrifstof- unni.“ Meðferðin gengur vel og samkvæmt síðustu myndatöku hafa æxlin minnkað um 35%. „Ég fer í næstu myndatöku á föstudaginn [í gær] og fæ formlega greiningu eftir helgina. Það mun hins vegar ekki stöðva mig í að skoða myndirnar strax sjálfur, ég er ágætlega læs á þær. Vonandi halda æxlin áfram að bráðna og lyfin að virka. Það truflar mig þó aðeins að læknaranir tala um að nota lyfin þangað til þau hætta að virka. Og hvað þá? Annars er engin leið að spá fyrir um hvernig þetta kemur til með að þróast og það eina sem læknarnir fást ekki til að svara er hvað ég eigi langt eftir. Og ef þeir gætu svarað því, myndi ég þá vilja vita það? Ég held ekki. Þú gætir dáið í bílslysi á leið inn á Akureyri á eftir. Myndirðu vilja vita það núna? Ég er fæddur í ágúst 1973 og held Bóndinn. Sigurbjörn með dóttur sinni, Arneyju Dag- mar, í réttum í Mývatns- sveit fyrir nokkrum árum. ’ Vandamálið er hins vegar að ég upplifi þetta ekki eins og að ég sé að berjast við eitt- hvað. Læknarnir segja að ég sé mjög veikur með langt gengið krabbamein en fyrir mér er það óraunverulegt. Fjölskyldan. Sigurbjörn og eiginkona hans, Gunnhildur Hinriksdóttir, ásamt börnum sínum þremur, Guðmundi Gígjari, Arneyju Dagmar og Hinriki Frey. Myndin er tekin í tilefni af fermingu Guðmundar Gígjars árið 2017. VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.7. 2021

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.