Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.07.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.07.2021, Blaðsíða 22
Elsku Krabbinn minn, þetta er svo spennandi og afdrifaríkt tímabil sem þú ert á. Þú ert búinn að sveiflast frá því að líða ekki alveg nógu vel yfir í þá tilfinningu að líða eins og þú eigir allan heiminn. Þú ert kominn í þá tilfinningu eða hringiðu að þú laðar að þér sterkt og gott fólk. Og þú færð nýjar hugmyndir, eða gamlar hugmyndir eru komnar til að rætast. Þó að lífið hafi verið mikil vinna, þá er ekkert betra en að uppskera eftir mikla vinnu og allskyns ferðalög að takmarkinu. Þú þarft að láta af þrjósku þinni gagnvart persónu eða per- sónum, sem vilja ekki leika við þig þann leik sem þig langar að leika. Því þú losnar um leið og þú sleppir frá þér óraunhæfum hugmyndum sem gætu tengst meðal annars ást eða persónum sem misnota hugarbreytandi efni, en þannig persónur eru ekki að gera þér gott. Hinsvegar eru ástin og fjölskyldan svo sterk á þessum tíma sem þú ert að rölta inn í. Slepptu bara tökunum, gerðu þitt besta og sýndu auðmýkt. Að vera hreinn, beinn og heiðar- legur skilar þér ávísuninni að hverju því sem þú ert að keppa að eða óskar eftir. Það er svo algengt að við höldum að við höfum alltaf rétt fyrir okkur. Og hvort sem þú hef- ur það eða ekki, er best fyrir þig að dreifa jákvæðum skilaboðum, hughreysta fólk og elska það. Því þetta dásamlega spennandi sumar sem þú dansar inn í gefur þér áhugaverða og nýja dansfélaga. Einnig færir það þér verkefni og tækifæri sem engin takmörk virðast vera fyrir. En ef þér finnst þú vera latur eða þreyttur, er það ekki vegna vinnu eða álags sem tengist starfi þínu, nema þér leiðist vinnan. Heldur eru það áhyggjur, vonbrigði og gremja, sem eru í rauninni bara hugsanir þínar, sem geta dempað hjarta þitt. En þú munt fá það besta, hjartað mitt, og það besta getur aldrei verið of gott. Spennandi tímabil KRABBINN | 21. JÚNÍ 22. JÚLÍ Elsku Ljónið mitt, það skiptir kannski ekki öllu þó efnisleg fullnægja sé í kring- um þig og veraldleg gæði virðist dragast að þér. Því þú þarft að sjá það skýrt í sálu þinni að nota peningana til þess að fá þau lífsgæði sem þú óskar eða þig vantar. Ef þér finnst þú ekki geta komið til leiðar ýmsu sem þurfi að gerast í kringum þig, fáðu þá bara einhvern í verkið, þannig finnurðu hvað þú getur best sjálfur. Í hvert skipti sem þú lagar eitthvað eða gengur frá einhverju sem er að plaga þig, þá stígurðu hærra í tröppuna sem leiðir þig að ham- ingjunni. Þegar þú finnur fyrir ójafnvægi þarftu að gera allt til þess að koma þér á beinu brautina. Því þú færð ekki það jafnvægi sem þú óskar þér nema að faðma að þér gamanið, setja þér markmið og klára þau. Fáðu dómgreind að láni ef þú veist ekki alveg hvernig þú átt að fara að hlutunum og með því finnurðu fyrir meiri velgengni hratt og örugglega. Og þú öðlast meiri skilning á sjálfum þér og skilur betur hversu margslungin vera þú ert. Góð stjórnun, skipulag og jafnvægi eru einkunn- arorð þín núna og innifalið í öllu þessu, þá veistu að það er sælla að gefa en þiggja. Tækifærin finnur þú í þeim aðstæðum sem þú ert í, því þau eru hreinlega fyrir framan nefið á þér. Gættu þín á því að klóra ekki neinn, því þú ert svo sterkur karakter að þú getur leyft þér að fara yfir strikið, en þú vinnur þér enga punkta inn með því. Það er hugrekki og heppni í orðum með þeim jafnvægistón sem þú tekur til þín. Þú sérð að þú ert að hitta og tengjast fólki sem býður þér hjálp og vinnu. Og þó þér finnist kannski ekki verkefnið borga mikið þá er það mikilvægasta að þér líði vel og þér finnist gaman, því þá kemur hið veraldlega í kjölfarið. Þú hefur þá orku núna og risastóra áru sem hefur áhrif út um allt. Þú getur sett þig í þann gír sem þú kærir þig um, hvort sem þú vilt kveikja á sex appeal-inu þínu eða ekki, þá ertu á þeirri rás. Og næstu 70 dagar gera gæfumuninn, því þú ert skipstjórinn í þessari dásamlegu ferð. Sælla að gefa en þiggja LJÓNIÐ | 23. JÚLÍ 22. ÁGÚST 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.7. 2021 Elsku Meyjan mín, þú átt það til að finna að það streymi til þín máttur og að þú sért alls megnug. Þessi tilfinning getur hellst yfir þig á hádegi og svo finnst þér að þú getir ekki neitt þegar kvölda tekur. Núna sérðu allt í öðru ljósi og setur jafnvægi yfir þessa orku svo hún verði ekki svona sveiflukennd. Þú elskar að ná valdi á ýmsum kúnstum og keppni. Og ef þú skoðar þegar þú varst barn, þá fannst þér allt þess háttar svo skemmtilegt. Farðu og náðu í barnið í þér, því þegar þú leikur þér færðu bestu hugmyndirnar og mestu orkuna. Þú ert andlega hugsandi og ef þér finnst að þú fáir ekki skýr skilaboð með þeim hætti, skaltu slengja þér í bað sem þú hefur sett baðsalt í og hefur haft svolítið fyrir, eða bara drífa þig í sund. Og þó þér finnist þetta ekki vera merkilegt, þá eru það litlu hlutirnir sem byggja upp þá stóru. Til þess að fanga ástina og halda sambandi, þá er svo mikilvægt að elska sjálfan sig. Byggðu þess vegna upp sterkt og öruggt samband við eigið sjálf, þá eflist ástin hvort sem hún er við hliðina á þér eða er að birtast þér. Alveg sama þó þú lendir í öngstrætum vitleys- unnar og gerir eitthvað af þér sem þú hefðir betur látið ógert, þá fyrirgefum við þér öll, því þú ert búin að byggja það upp að þú ert miklu meira elskuð en þig grunaði. Það virðist eins og þú sért að bíða eftir einhverskonar atburði sem færir þér peninga og kemur þér þangað sem þig hefur dreymt um. Það er kannski þreytandi að nota þolinmæði að vopni, en nauðsynlegt, því það sem er að koma til þín kemur á síðustu stundu. Náðu í barnið í þér MEYJAN | 23. ÁGÚST 22. SEPTEMBER Elsku Sporðdrekinn minn, þó þér finnist vera armæða hér og þar er það ekkert sem á að drepa niður, hvorki huga þinn né sál. Þú ert eitthvað svo mikið að finna þinn ytri og innri glæsileika, þú berð höfuðið hátt og hendir kvíðanum. Ég er svo mikið tengd Sporðdrekum, þeir hafa svo mikil áhrif á mig, svo mig langar að segja ykkur hvernig ég hendi kvíðanum burt. Þegar hugsanir streyma í kringum mig, einhverjar ömurlegar hugsanir, þá stend ég upp og fer eitthvað annað. Og þá kemur sjálfkrafa annar kraftur til mín. Til þess að þið skiljið og tengið við það sem ég er að segja, þá er það þannig að þú situr og ætlar að gera eitthvað merkilegt. En þegar þú stendur upp manstu ekki hvað það var, svo það sem þarf að gera er að fara aftur á þann stað sem hugsunin kviknaði. Því þá kemur til þín JÁ, alveg rétt, það var þetta sem ég ætlaði að gera! Því hugsanir eyðast ekki, og þetta er vísindalega sannað. Þú ert að fyllast hárri og næmri tíðni og skynjar miklu sterkar en þú hefur gert áður, hvað fólk er að pæla, hver er þér hliðhollur og svo framvegis. Sumir segja að þetta sé spádóms- gáfa, og hana hefurðu þótt þú finnir það kannski ekki. Óttastu eigi því það verður vel séð um þig og óttinn lamar bara sálina og hugann. Þú færð orku og kraft til að snúa sögunni þér í hag, og skilur ekki hversu auðvelt það verð- ur fyrir þig að leysa þær hindranir sem stöðva þig á köflum. Byrjaðu bara á verkinu og þá sérðu lausnina. Ef þú ert tilbúinn að leika í ástinni, þá má þér ekki finnast að þú þurfir endi- lega ást, því þú hefur greinilega verið að veðja á vitlausar týpur sem henta þér ekki. Þú ert svo verðugur að kalla til þín ástina í miklu meiri gæðum en þú gerir þér grein fyrir, elsku Sporðdrekinn minn. Á hárri og næmri tíðni SPORÐDREKINN | 23. OKTÓBER 21. NÓVEMBER Elsku Vogin mín, þú ert aldeilis að púsla saman mörgum hlutum í lífinu núna og skipuleggja hluti alveg fram á haustið. Og þótt þú upplifir pínulítið að þú finnir ekki púslin, þá segi ég það við þig, elsku hjarta, að það er bara kjaftæði eins og vanalega. Þú færð svo margar hugmyndir og vilt hafa margt í gangi og kemst upp með meira en hin merkin. Og þú getur verið svo töfrandi þegar þú ætlar að sannfæra einhvern og svo ákveðin þegar þú ætlar að sigra. Þú hjálpar öðrum til að finna sína hvata og drauma og láta þá verða að veru- leika, og þegar það hefur gerst hefurðu svo mikinn tíma til að gleðja þig við. Þú ert annaðhvort nýbúin að fá rós í hnappagatið eða annað sem þú getur verið stolt af. Það getur hvarflað að þér að þú sért búin að bíða of lengi eftir því, en það er bara ímyndun. Því það að vera á réttum stað á réttum tíma, gerir þessi merkilegu augnablik sem þú getur glaðst yfir. Lífshlaup okkar hér á jörðinni er tengt Yin og Yang. Svo þakkaðu fyrir að þótt þú hafir fengið harðsperrur og hafir þurft að glíma við mikla erfiðleika, er hamingjan einungis fólgin í hugsunum þínum, svo gefðu þeim gott að borða. Ef heilsuleysi hefur stoppað þig að einhverju leyti þá skaltu sjálf fara á stúfana til að leita leiða til að gera líkamann eins góðan og hægt er. Þú skalt fjárfesta í þér, hvort sem það er til að líta betur út eða að efla sjálfstraustið og sjálfsálitið, sem er líka eina álitið sem skiptir máli. Hvort sem það tengist því að kaupa sér ný föt, eða að laga sig til eftir því hvað þér finnst að þú eigir skilið. Fjárfestu í þér VOGIN | 23. SEPTEMBER - 22. OKTÓBER Elsku Bogmaðurinn minn, það má alveg segja að þú getir bognað en að brotna er ekki hægt að segja að þú getir í sálu þinni. Þú ert eins og bambusinn sem getur bognað heilmikið, en endar alltaf teinréttur. Þú hefur verið að líta yfir hvað þú vilt og sterkt finnurðu ekki nennu yfir allt sem þú þarft að gera. Þú þarft að hlaða batteríin og leyfa huga þínum alls ekki að svífa bæði fram og aftur í einhverjar vitleysur, því núna þarftu að stoppa. Anda djúpt að þér súrefninu og að drekka einn bolla af kæruleysi. Það eru breytingar yfir þér sem þú ert ekki búinn að sjá. Þú skynjar hvað er að fara að gerast, en veist ekki alveg hvernig það verður. Og þegar þú slakar svona á líkamanum, verður hann eftir dá- litla stund hnarreistur eins og bambus. Þér finnst að þú hafir ekki fengið rétta og næga umfjöllun, eða sanngirni fyrir það sem þú hefur gefið af þér. En þú ert skipstjórinn í lífi þínu, svo gefðu þínum heila og hugsunum gott að borða, dekraðu við þig, þitt trygglyndi og trúmennska gerir töfra. Þér hættir til að setja annað fólk á stall, en svo muntu sjá að allt þetta býr í sjálfum þér sem þú til- einkar öðrum. Svo það væri gott fyrir þig að setja sjálfan þig á stall og líta upp til sjálfs þín, því þá kanntu betur að meta kostina þína. Þú hefur gríðarleg áhrif á umhverfi þitt og hefur náttúrulegan hæfileika til að umbreyta hugs- unum annarra. Og að fá fólk til að skipta um skoðun og aðhyllast það sem þér finnst spennandi, sem er einstök náðargáfa. Návist þín kallar á athygli og passaðu þig alltaf að nota vald þitt í jákvæðum tilgangi. Þetta verður svo innihaldsríkur tími sem gefur þér dásamlega hvatvísi, svo þú átt eftir að verða hissa hvernig lífið breytist um leið og þú smellir fingri! Endar alltaf teinréttur BOGMAÐURINN | 22. NÓVEMBER 21. DESEMBER Júlí

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.