Fiskifréttir - 19.04.1996, Síða 1
ISSN 1017-3609
\ Inyl
66*N
GLÓFINN
FRETTIR
15. tbl. 14. árg. föstudagur 19. apríl 1996
..:.-. .I
Kúffísk-
vinnsla
á
Þórshöfn?
Forráðamenn Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar hafa um nokkurt skeið
skoðað möguleika á að hefja veiðar
og vinnslu á kúfskel á Þórshöfn. Að
sögn Jóhanns A. Jónssonar fram-
kvæmdastjóra ætti það að skýrast
fljótlega hvort fyrirtækið hasli sér
völl á þessu sviði.
Niðurstöður rannsóknaleiðang-
urs sem farinn var á kúffiskveiði-
skipinu Æsu ÍS á firðina á norð-
austurhorni landsins fyrir tæpum
tveimur árum benda til þess að
mikið sé af góðri kúfskel í Axar-
firði, Þistilfirði og Bakkaflóa. Jó-
hann segir að þessi mál hafi verið
skoðuð í rólegheitum en niður-
staða liggi ekki fyrir.
— Það hefur sýnt sig að það er
víðast hvar meira en nóg af kúfskel
og veiðarnar eru ekkert vandamál.
Þetta er fyrst og fremst spurning
um markaðssetningu og verð fyrir
afurðirnar, sagði Jóhann A. Jóns-
son.
Undir eftírliti
íslensku skipin á Flæmingjagrunni voru orðin 25 tals-
ins nú um miðja vikuna. Útgerðarmenn a.m.k. 10-11
skipa til viðbótar áforma að senda skip sín þangað á
næstunni. Aflabrögð hafa verið þokkaleg að undan-
förnu. Þótt íslendingar hafi losað sig undan ákvörðun
NAFO um sóknartakmarkanir á Flæmingjagrunni eru
þeir ekki eftirlitslausir, eins og sést á þessum myndum
sem teknar voru fyrir skemmstu. Eftirlitsflugvél sveim-
ar yfir Guðbjörginni og eftirlitsskip fylgist með Hjal-
teyrinni auk þess sem eftirlitsmaður er um borð í
hverju skipi. Sjá nánar bls. 6-7. (Myndir/Fiskifréttir:
Ragnar Þór Ólason).
um borð f Heinaste:
Stærstu möskvar
256 metrar!
Um þessar mundir er verið að
prófa stærsta troll í heimi um
borð í risatogaranum Heinaste,
sem er í eigu aðstandenda Sjóla-
skipa hf. í Hafnarfirði. Um er að
ræða 70 þús. fermetra Gloríutr-
oll frá Hampiðjunni. Ummál í
strekktu neti er 3.600 metrar og
stærstu möskvar hvorki meira né
minna en 256 metrar. Höfuðlínu-
lengd er 890 metrar.
Til samanburðar má nefna að
stærsta Glorían hingað til, sem
ekki hefur þótt nein smásmíði, er
55 þús. fermetrar, 3.072 metrar
að ummáli og stærstu möskvar
128 metrar. Því má bæta við að
risatrollið um borð í Heinaste er
900 metra langt fyrir utan grand-
ara og því alls 1200 metrar að
hlerum. Páll B. Eyjólfsson skip-
stjóri á Heinaste sagði í samtali
við Fiskifréttir að veiðihæfni
trollsins væri um 25-40% meiri
en annarra Gloriutrolla í úthafs-
karfaveiðinni. Veiðarfærið virk-
aði eins og til væri ætlast og engin
stór vandamál hefðu komið upp
við notkun þess.
Túnfiskveiðar tveggja japanskra skipa:
Mega hefjast innan land-
helginnar í lok júní
— ísienskir kunnáttumenn um línuveiðar um borð
Tveir íslenskir kunnáttumenn á
sviði línuveiða munu í sumar verða
um borð í tveimur japönskum
túnfiskveiðiskipum sem stundað
hafa veiðar með línu á hafsvæðinu
djúpt suður af íslandi. Samkvæmt
viljayfirlýsingu, sem undirrituð
var af hálfu Hafrannsóknastofnun-
ar og japansks túnflskveiðifyrir-
tækis í nóvember sl., munu jap-
önsku skipin tvö fá leyfi stjórn-
valda til þess að fara inn í íslensku
landhelgina og reyna veiðar þar ef
göngumynstur túnfisksins gefur
tilefni til þess.
Þrír fulltrúar japanska túnfisk-
veiðisambandsins og japanska
sjávarútvegsráðuneytisins hafa
verið hérlendis að undanförnu og
átt viðræður við fulltrúa Hafrann-
sóknastofnunar, sjávarútvegs-
ráðuneytis og Landssambands ís-
lenskra útgerðarmanna. Að sögn
Jóhanns Sigurjónssonar aðstoðar-
forstjóra Hafrannsóknastofnunar-
innar hafa japönsku túnfiskveiði-
mennirnir áhuga á því að ná góðu
samstarfi við Islendinga um sam-
vinnu á sviði túnfiskveiða.
— í kjölfar viljayfirlýsingarinn-
ar hefur verið ákveðið að annað
japanska skipið fær leyfi til til-
raunaveiða innan íslensku land-
helginnar á tímabilinu frá 26. júní
og fram í byrjun september og hitt
skipið fær sambærilegt leyfi á tíma-
bilinu frá miðjum júlí og fram til
sama tíma. Það er gert ráð fyrir því
að túnfiskurinn leiti að einhverju
leyti inn í okkar lögsögu og ég er
viss um að við fáum þarna gott
tækifæri til þess að kynna okkur
veiðiaðferðir sem við höfum tak-
markaða reynslu af og af veiðum á
lítt kannaðri veiðislóð. Japanir
stunda veiðarnar með mjög sér-
hæfðum skipum og ég er viss um að
þetta verður lærdómsríkt fyrir
okkur, segir Jóhann Sigurjónsson.
Því er við þetta að bæta að alls
stunduðu 60 japönsk skip túnfis-
kveiðar djúpt suður að landinu sl.
sumar og þar af komu ein 10 skip til
hafnar á íslandi. Japönsku túnfisk-
útgerðirnar eru að koma sér upp
bækistöðvum vegna veiðanna á
Las Palmas á Kanaríeyjum og
munu íslensku eftirlitsmennirnir
fara þangað til móts við skipin tvö.
Marsmánuður:
28% meiri
þorskur
Tölur Fiskístofu endurspegla líf-
legar þorskveiðar í marsmánuði
síðastliðnum því í Ijós kemur að
28% meiri þorskur veiddist þá en í
sama mánuði í fyrra. Alls bárust 24
þús. tonn á land nú á móti 18.800
tonnum í fyrra. Ekki þola þessar
tölur þó samanburð við vertíðara-
flann eins og hann var og hét á
árum áður.
Mest var aflaaukningin hjá smá-
bátunum sem fengu 8.400 tonn
af þorski og tvöfölduðu þar
með marsafla sinn miðað
við síðasta ár.
Sjá nánar
um fisk-
aflann
bls. 5
SKIPAÞJONUSTA
Íssoí
Olíufélagið hf