Fiskifréttir - 19.04.1996, Síða 3
FISKIFRÉTTIR föstudagur 19. apríl 1996
3
Rækjuveiðar
Fengu smjörþefínn afgjafmildi Dohrnbankans
— 11 skip veiddu
þokkalega í
þrjá daga
Ein 11 íslensk rækjuskip fengu
afla á Dohrnbankanum í síðustu
viku. Hægt var að stunda veiðar á
svæðinu norðaustur af bankanum í
eina þrjá daga og fengu mörg skip-
anna 15 til 20 tonn af góðri rækju
áður en veður spillti veiðum.
Skipstjórar rækjuskipanna
renna jafnan hýru auga til Dohrn-
bankans enda er rækjan þar yfir-
leitt stór og góð og utan kvóta.
Erfitt er að stunda veiðar á svæð-
inu nema hluta úr ári vegna hafíss
en ef svæðið er opið þá er jafnan
mesta veiðivonin á þessum árs-
tíma. Hins vegar stendur veiðin
jafnan stutt hverju sinni og því
skiptir miklu máli að hitta á rétta
tímann og vera fyrstur á svæðið.
Vegna þess mikla fjölda íslenskra
rækjuskipa, sem nú stundar veiðar
á Flæmingjagrunni, voru það
aðeins 11 skip sem komust á
Dohrnbankann að þessu sinni.
Þetta voru Skutull ÍS, Hersir ÍS,
Júlíus Havsteen ÞH, Blængur NK,
Björgvin EA, Framnes IS, Guð-
mundur Péturs IS, Óskar Hall-
dórsson RE, Dagrún IS, Andey IS
og Geiri Péturs ÞH og var aflinn
ísaður um borð í fimm síðast töldu
skipunum.
Að sögn Jóhanns Gunnarsson-
ar, skipstjóra á Júlíusi Havsteen
ÞH, var afli togarans um 20 tonn af
rækju á þessum þremur dögum.
Jóhann segir að 74% aflans hafi
farið í pakkningar, þar af voru 10%
í allra stærsta Japansrækjuflokk-
inn, en um fjórðungur aflans var
fryst iðnaðarrækja.
— Veðurútlitið var mjög slæmt
og aflinn var að dragast saman og
því var ekki um annað en að hætta
veiðunum eftir þessa þrjá daga. Þá
var erfitt að stunda veiðarnar
vegna hafíssins, segir Jóhann en
hann segir rækjuskipstjórana hafa
verið sammála um að óvenju hlýr
sjór hafi verið við botninn á þess-
um slóðum ef miðað er við árs-
tíma.
Samkvæmt upplýsingum Arnars
Kristinssonar, framkvæmdastjóra
Básafells hf. á ísafirði, fékk Guð-
mundur Péturs ÍS alls 15 tonn af
rækju í þessu skoti á Dohrnbank-
anum. Aflinn var ísaður um borð
og fór hann til pillunar hjá verk-
smiðju fyrirtækisins á ísafirði.
NYR AFANGASTAÐUR:
HARBOUR GRACE A
NÝFUNDNALANDI
• Samskip hafa nú hafíð áætlunarsiglingar til Harbour Grace á
Nýfundnalandi. Siglt verður á þriggja vikna fresti. Þjónusta
Samskipa í Harbour Grace er fjölbreytt, m.a. er boðið upp á
umboðs- og löndunarþjónustu fyrir fiskiskip, vöruhúsaaðstöðu,
frystigeymslur, pappírsmeðhöndlun og aðra þjónustu sem óskað er
eftir. Samskip hafa ráðið starfsmann á Nýfundnalandi sem mun sjá
um starfsemi fyrirtækisins í Harbour Grace. Helsta ástæða þess að
Samskip völdu Harbour Grace sem viðkomustað er að mörg íslensk
og erlend útgerðarfyrirtæki senda skip sín til veiða á
Flæmingjagrunn.
• Harbour Grace er staðsett nær miðunum en aðrar hafnir sem
bjóða upp á löndunarþjónustu á Nýfundnalandi. Með því að landa í
Harbour Grace má stytta siglingatíma frá miðunum verulega.
Þannig stuðla Samskip að aukinni hagkvæmni fyrir íslensk
sjávarútvegsfyrirtæki.
• Með beinum siglingum til Harbour Grace bjóða Samskip
viðskiptavinum sínum tengingu við alþjóðlegt flutningakerfi sitt.
• Með samningi við Harbour Grace Coldstore býður Samskip
meðal annars upp á fullkomna frystigeymslu, aðstöðu til sýnatöku
og löndunarþjónustu fyrir frystiskip.
• Harbour Grace er lítið bæjarfélag þar sem boðið er upp á alla
hefðbundna þjónustu fyrir útgerðir og áhafnir skipa. Þar eru einnig
hótel, verslanir, bar, heilbrigðisþjónusta og önnur félagsleg
þjónusta.
SAMSKIP