Fiskifréttir - 19.04.1996, Side 4
4
FISKIFRÉTTIR föstudagur 19. apríl 1996
Fréttir
Stærsti hrognasekkur sem sögur fara af:
Sekkurinn vó tæp 15 kíló
— hrognafjöldinn nemur
tugum milljóna
Þeir ráku upp stór augu aðgerðarmenn-
irnir hjá Stakkavík hf. í Grindavík er þeir
sprettu upp vænum stórþorski á dögun-
um. Út úr þorskinum vall sá stærsti
hrognasekkur sem þeir höfðu augum litið
og við vigtun kom í ljós að sekkurinn vóg
hvorki meira né minna en 14,85 kg. í ljós
hefur komið að þetta er stærsti hrogna-
sekkur sem sérfræðingar Hafrannsókna-
stofnunar hafa augum litið en fyrra met
var rúm 10 kg.
Að sögn Hermanns Ólafssonar,
framkvæmdastjóra Stakkavíkur
hf., hafa starfsmenn fyrirtækisins
haft þann háttinn á að halda öllum
óvenjulega stórum fiskum til haga
en þorskurinn með gotuna stóru
vakti hins vegar enga sérstaka at-
hygli fyrr en farið var að gera að
honum.
— Ef við fáum 50 kg þorska eða
stærri þá setjum við þá til hliðar í
vinnslunni. Þcssi þorskur var hins
vegar ekkert sérlega langur og við
giskuðum á að hann væri e.t.v. 35-
40 kg. Hann var hins vegar gildur
og það má vel vera að hann hafi
verið þyngri en við ætluðum. Við
höfum áður fengið 9 kg gotu úr 50
kg þungum þorski og miðað við
það þá hefði þessi þorskur átt að
vera nálægt 70 kg þungur. Það var
hann örugglega ekki, segir Her-
Hrognasekkurinn mikli í höndum Gróu Pétursdóttur líf-
fræðings á Hafrannsóknastofnun.
mann en hann segir að bátur úr
Þorlákshöfn hafi fengið þennan
óvenjulega þorsk í netin.
Dr. Guðrún Marteinsdóttir hjá
Hafrannsóknastofnun segir að
hrognasekkurinn hafi vakið mikla
athygli þar á bæ en hún treystir sér
ekki til þess að áætla um hrogna-
fjöldann í sekknum.
— Stærstu hrognasekkirnir, sem
við höfum rannsakað fram að
þessu, hafa verið með 16-20 millj-
ón hrognum. Miðað við það ætti
að vera verulega meira hrogna-
magn í þessum hrognasekk. Um
það er þó ekki hægt að fullyrða án
undangenginna rannsókna, segir
Guðrún en hún segir starfsmenn
Hafró fyrst hafa fengið vitneskju
um þennan fund er starfsmenn
Stakkavíkur hf. höfðu samband
við Gróu Pétursdóttur líffræðing
hjá stofnuninni. Gróa sér um sýna-
tökur í fiskverkunarhúsum og á
fiskmörkuðunum fyrir Hafrann-
sóknastofnun og á meðfylgjandi
mynd, sem Hreinn Hreinsson tók
fyrir Fiskifréttir, er Gróa með
þennan stærsta hrognasekk sem
skráður hefur verið fram að þessu.
0LIUSKIP SKELJUNGS
ÞJÓNAR ÍSLENSKA
ÚTHAFSVEIÐIFLOTANUM
á Reykjaneshrygg og Flæmska hattinum
Fyrstir íslenskra olíufélaga
sinnum við beint þörfum íslenskra útgerðarfyrirtækja sem
senda skip sín á fjarlægð mið. Við bjóðum góða þjónustu og
samkeppnishæft verð.
Fyrsta ferðin í apríl
Leiguskip okkar lestar í Rotterdam um 20. apríl en heldur
síðan á Reykjaneshrygg og þaðan á Flæmska hattinn.
Gert er ráð fyrir að hver ferð taki um þrjár til fjórar vikur.
Eldsneyti og smurolía á miðunum
í fyrstu ferð verður seld gasolía auk smurolíu en í síðari ferðum verður
einnig svartolía í boði.
íslensk þjónusta við íslensk skip
íslenskur afgreiðslustjóri er um borð og sér um samskipti við íslensk
skip.
Varahlutaþjónusta
Oiíuskipið sækir birgðir til íslands. Við bjóðum flutning á varahlutum
héðan til viðskiptavina Skeljungs á úthafsveiðisvæðunum.
Pantið tímanlega.
Nánari upplýsingar:
Skipaþjónusta Skeljungs hf. Suðurlandsbraut 4, s: 560 3800
Skipaþjónusta Skeljungs
þar sem íslendingar eru að veiðum
Við óskum áhöfn og útgerð til
hamingju með skipið. Skipið er allt
málað með HEMPELS skipamálningu frá
Slippfélaginu Málningarverksmiðju
..—.....Slippfélagið
Málningarverksmiðja
Dugguvogi 4-104 Reykjavík • Sími: 588 8000 • Fax: 568 9255
Hólmaborg
Fyrirhugaðar skipabreytingar:
Burðargeta Hólmaborgar
eykst í2400-2500 tonn
hægt verður að flytja um 1000
tonn í sjókælitönkum
Umfangsmiklar breytingar á
nótaskipunum Hólmaborg SU og
Guðrúnu Þorkelsdóttur SU verða
boðnar út fljótlega. Fyrirhugað er
að vinna við breytingarnar geti
hafist í haust og að henni verði lok-
ið fyrir áramótin. Eftir breyting-
arnar verður Hólmaborgin með
langmesta burðargetu íslenskra
nótaskipa og á skipið alls að geta
rúmað 2400-2500 tonn af loðnu eða
síld, þar af um 1000 tonn í sjókæli-
tönkum.
Magnús Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss
Eskifjarðar hf., tjáði Fiskifréttum
að Hólmaborgin, sem er 59 metrar
að lengd og alls tæpar 940 brúttó-
rúmlestir, verði lengd um 14
metra. Burðargeta skipsins nú er
tæp 1500 tonn og hefur Hólma-
borgin um árabil verið stærsta ís-
lenska nótaskipið. Breytingarnar á
Guðrúnu Þorkelsdóttur SU eru
annars eðlis. Skipið verður að vísu
lengt um 8 metra og verður því um
55 metra langt eftir breytingarnar
en að auki verður sett ný brú og
hvalbakur á skipið.
Bæði skipin munu stunda síld-
og loðnuveiðar nú í sumar og þau
fara til síldveiða úr norsk-íslenska
síldarstofninum um leið og veið-
arnar mega hefjast 10. maí nk.