Fiskifréttir - 19.04.1996, Qupperneq 9
FISKIFRÉTTIR föstudagur 19. apríl 1996
9
Fréttir
Samherji hf. á Akureyri fær í
næstu viku afhentan færeyska
frystitogarann Esther sem fyrir-
tækiö keypti nýverið af færeysku
útgerðarfélagi. Að sögn Þorsteins
Vilhelmssonar hjá Samherja hf. er
óvíst hvað gert verður við togar-
ann. Hann hafi fyrst og fremst
verið keyptur vegna kvótans en til
greina komi að gera skipið út á
úthafsveiðar á þorski eða rækju.
Samherji hf. kaupir færeyskan frystitogara:
Fær síldar-, kolmunna- ogmakríí
kvóta með togaranum
International
Skipamálning
Stórhöfða 44, Reykjavík. Sími 567 4400
Að sögn Þorsteins er það út-
gerðarfyrirtækið Framherji hf. í
Færeyjum, sem Samherji hf. á
stóran hlut í, sem kaupir togarann
en með í kaupunum fylgja veiði-
heimildir á síld, kolmunna og
makríl í færeyskri landhelgi og í
lögsögu Evrópusambandsins. Þá
fylgir togaranum eitt Gloríuflot-
troll auk annars búnaðar en nefna
má að ásett verð var 15 milljónir
danskra króna eða sem svarar um
165 milljónum íslenskra króna.
Frystitogarinn Esther er tæpir
88 metrar á lengd og 14 metrar á
breidd og mælist togarinn tæpar
2700 brúttórúmlestir. Togarinn
var byggður í Þýskalandi árið 1965
en endurbyggður í Danmörku árið
1987. Miklar lagfæringar og endur-
bætur hafa síðan verið gerðar á
skipinu á undanförnum árum. I því
eru tvær 2400 hestafla MAK aðal-
vélar í mjög góðu ástandi. Vindu-
kerfið er frá Rapp Hydema og var
það sett í togarann árið 1987. Aðal-
vindurnar eru hvor um sig 36
tonna. Á milliþilfari eru fullkomin
fiskvinnslutæki frá Baader. Frysti-
getan er um 60 tonn á sólarhring í
frystitækjum og lausfrysti. Þá er
togarinn ágætlega búinn siglingar-
og fiskileitartækjum og í honum
eru káetur fyrir 48 manna áhöfn.
Samkvæmt upplýsingum Þor-
steins hefur Esther m.a. verið gerð
út á búraveiðar og í fyrrasumar var
Nýtt skip Vinnslustöðvar-
innar væntanlegt í lok apríl:
Getur fíutt 1350
tonn af físki í
sjókælitönkum
— hefur verið á kolmunna við írland
Tog- og nótaskipið Gunnar
Langva, sem Vinnslustöðin hf. í
Vestmannaeyjum hefur keypt frá
Noregi, er væntanlegt til Eyja nú
undir lok mánaðarins. Að sögn
Sighvats Bjarnasonar, fram-
kvæmdastjóra Vinnslustöðvarinn-
ar hf., fer skipið í klassaskoðun og
það verður tilbúið til veiða þegar
síldveiðar íslendinga úr norsk-ís-
lenska sfldarstofninum mega hefj-
ast 10. maí nk.
Gunnar Langva er rúmlega 20
ára gamalt skip og það er tæpir 69
metrar að lengd en búið er að
lengja það tvisvar sinnum. I skip-
inu eru sjókælitankar sem eru 1500
rúmmetrar að stærð. I þeim er
hægt að flytja 1350 tonn af kældu
hráefni og alls 1500 tonn ef sjókæl-
ing er ekki viðhöfð. Þá er í skipinu
250 rúmmetra rými sem hægt er að
breyta í lestar og því væri hægt að
auka heildarburðargetuna í 1700-
1750 tonn með tiltölulega litlum
fyrirvara.
Að sögn Sighvats er Gunnar
Langva nú í síðustu veiðiferðinni
fyrir norsku útgerðina. Skipið hef-
ur verið að kolmunnaveiðum við
írland og hefur kolmunninn verið
veiddur í flottroll. Fyrir sjókældan
kolmunna hafa verið greiddar sex
ísl. kr/kg í Noregi og aflaverðmæt-
ið í hverri veiðiferð getur því num-
ið rúmum átta milljónum króna.
Guðmundur Sveinbjörnsson,
sem verið hefur skipstjóri á Sig-
hvati Bjarnasyni VE, verður skip-
stjóri á Gunnari Langva.
Leiðrétting
I grein um frystitogarann Arnar
HU í síðasta blaði var farið rangt
með umboðsaðila GMC þilfars-
krana. Hið rétta er að Rafboði -
Rafur er með umboðið. Er beðist
velvirðingar á þessu.
togarinn á úthafsveiðum m.a. í
Smugunni.
— Við vorum fyrst og fremst að
hugsa um að tryggja okkur kvóta á
uppsjávartegundum með kaupun-
um og við skoðuðum skipið ekki
mikið áður en gengið var frá samn-
ingum. Mér hefur hins vegar skilst
síðan að það sé e.t.v. meira spunn-
ið í skipið en við töldum í fyrstu og
það er því aldrei að vita nema að
við sendum það til veiða í úthaf-
inu, segir Þorsteinn Vilhelmsson.
GRASLE PPUHRO GN
Á þessari vertíð mun BAKKAVÖR
kaupa grásleppuhrogn, bæði fersk og
söltuð af öllu landinu.
Sækjum daglega til allra seljanda á SV - svæðinu
og skipuleggjum flutninga annars staðar
af landinu.
Sem fyrr bjóðum við traust og góð viðskipti.
BAKKAVOR
HROGNAVINNSLA
SÍMI 564-3200
^ÍSTISO 9002
VOTTUN HF. - VOTTAÐ GÆÐAKERFI
RAFBOÐI
1
RAFUR
■c
.■•■
'T<- T;
. «
ARNAR HU-1
Óskum útgerð og áhöfn til hamingju með nýja skipið.
Nýr þilfarskrani er frá Maritime GMC í Noregi.
Endurbætur annaðist Rodman Polyships í Vígó á Spáni.
NAÉST
SKIPAÞJÓNUSTA
Skeiöarás 3 • 210 Garðabær • Sími 565-8080 • Fax 565-2150
73
maritíme gmc a.s.