Fréttablaðið - 09.11.2021, Blaðsíða 14
Til að birta andláts-,
útfarar- eða þakkartilkynningar
í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á
timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær dóttir okkar og barnabarn,
Erna Líf Gunnarsdóttir
lést á heimili sínu sunnudaginn
31. október. Útförin fer fram
frá Guðríðarkirkju fimmtudaginn
11. nóvember kl. 15.
Guðný Rósa Hannesdóttir
Gunnar Rúnarsson
Hannes Oddsson
Jakobína Valdís Jakobsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
Árna Marinóssonar
Lundi 3, 200 Kópavogi.
Sérstakar þakkir til Elínar Önnu,
Guðmundar Rúnarssonar og starfsfólks 11G,
einnig starfsfólks HERU og líknardeildar Landspítalans fyrir
einstaka ljúfmennsku og stuðning.
Halla Valdís Friðbertsdóttir
Berglind Árnadóttir Kristján Kristjánsson
Magnea Árnadóttir Ásgeir Örn Ásgeirsson
Marinó Einar Árnason Iwona Posiadala
og barnabörn.
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir
síðan 1996
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
arnartomas@frettabladid.is
Þegar kemur að árstíðum er haustið
með þeim umdeildari. Þótt einhverjum
líði best í steikjandi sól eru aðrir sem
finnst fátt notalegra en að finna hlýj-
una frekar í góðri peysu þegar tekur að
kólna. Tónlistarmaðurinn Borko til-
heyrir síðarnefnda hópnum en hann
lýsir tilfinningum sínum í nýútgefna
laginu Haustpeysan.
„Þetta er sígildur indíslagari sem
hefur rúllað ófá skiptin í gegnum græj-
urnar heima hjá mér,“ segir Borko um
Haustpeysuna sem er ábreiða af laginu
Autumn Sweater sem bandaríska jaðar-
rokkssveitin Yo La Tengo gaf út árið
1997. „Fyrir þessa útgáfu snaraði ég
textanum yfir á íslensku og stækkaði
aðeins útsetninguna þótt ég hafi reynt
að vera trúr upprunalega grúfinu sem
er það sem gerir lagið.“
Lagið fjallar um par á stefnumóti þar
sem ljóðmælandi er feiminn og óörugg-
ur með manneskjunni sem hann er
svo hrifin af. Manneskjan er í haust-
peysu og ljóðmælandi, sem hefur fátt
að segja, vill bara stinga af með henni.
Borko segir lagið þannig allt í senn óð
til feimninnar, ástarinnar og haust-
peysunnar.
Upptekinn haustkall
Það hefur lítið farið fyrir Borko sem
tónlistarmanni á undanförnum árum
en hann hefur haft öðrum hnöppum að
hneppa, annars vegar sem faðir þriggja
barna og hins vegar sem grunnskóla-
kennari.
„Þessi tvö verkefni taka mikinn tíma
og orku og þess vegna hefur ekki verið
mikill tími af lögu til að sinna tónlist-
inni,“ útskýrir hann. „Ég hef þó gert tón-
list fyrir leikhús og sviðsverk auk þess
sem ég söðlaði um síðasta vetur og tók
eitt ár í meistaranámi í tónsmíðum
við LHÍ. Nú eru börnin aðeins farin að
eldast (eins og ég) og verður vonandi
meira svigrúm til að grúska í stúdíóinu
á næstunni.“
Kveikjan að ábreiðunni segir Borko
að hafi verið vinur hans Svavar Pétur,
betur þekktur sem Prins Póló.
„Hann sagði mér frá því í sumar að
hann væri að fara að láta framleiða
sína fyrstu haustpeysu sem síðan yrði
framleidd árlega hér eftir,“ segir Borko.
„Svavar hefur í gegnum tíðina verið
mikill aðdáandi Yo La Tengo og ég stakk
því þess vegna að honum að það gæti
verið sniðugt að fá ólíka listamenn til
að gera sínar útgáfur af Autumn Swea-
ter fyrir útgáfu hverrar haustpeysu.
Hugmyndin þótti það góð að ég var
ráðinn á staðnum til að gera fyrstu
ábreiðuna.“
Aðspurður gengst Borko við því að
vera dálítill haustkall.
„Það er alltaf notalegt að komast
aftur í rútínu eftir rótleysi sumarsins.
Það er gaman að vera kennari á haustin
og hitta krakkana sína aftur og upp-
lifa spenninginn við að setjast aftur á
skólabekk,“ segir hann. „Tilfinning sem
við tengjum flest við á jákvæðan hátt.
Það er líka eitthvað næs við það þegar
það fer að skyggja og maður fer að hafa
ástæðu til að kveikja á kertum á kvöldin
og svo er lyktin af haustinu í sérstöku
uppáhaldi hjá mér.“ n
Óður til haustpeysunnar
Haustkallinn Borko íklæddur dæmigerðri haustpeysu. MYND/ÖRVAR SMÁRASON
Það er alltaf notalegt að
komast aftur í rútínu eftir
rótleysi sumarsins.
1799 Napóleon nær völdum í Frakklandi og útnefnir
sjálfan sig fyrsta konsúl.
1932 Gúttóslagurinn á sér stað í Reykjavík er áheyrendur
hleypa upp bæjarstjórnarfundi í Góðtemplarahús-
inu vegna ákvörðunar bæjarstjórnar um að lækka
laun í atvinnubótavinnu.
1970 Sovétmenn skjóta geimfarinu Luna 17 á loft með
tunglbílinn Lunokod 1 innanborðs.
1981 Þrælahald er afnumið í Máritaníu.
1985 Minnisvarði er afhjúpaður á Skógum í Þorskafirði
um Matthías Jochumsson skáld, sem fæddist þar
150 árum áður.
1985 Garrí Kasparov sigrar Anatólí Karpov, 22 ára gamall
og verður yngsti heimsmeistarinn í skák.
1986 Tveimur hvalbátum er sökkt í Reykjavíkurhöfn.
samtökin Sea Shepherd lýsa ábyrgð af því á hendur
sér.
1989 Fall Berlínarmúrsins: Günter Schabowski lýsir því
í sjónvarpi af misgáningi að för til Vestur-Berlínar
verði heimil strax.
1990 Ný stjórnarskrá tekur gildi í Nepal sem bindur enda
á einveldi konungs.
1993 Bosníukróatar eyðileggja gömlu brúna í Mostar,
Stari Most, með skothríð úr skriðdrekum.
2015 Katalónska þingið samþykkir að stefna að sjálf-
stæði héraðsins. Ríkisstjórn Spánar kærir sam-
þykktina til hæstaréttar.
Merkisatburðir
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 9. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGUR