Fréttablaðið - 09.11.2021, Blaðsíða 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Nú þegar kólna tekur í veðri og
vindurinn gnauðar á gluggum
langar mann helst að skríða
snemma upp í rúm og þá er ekkert
betra en mjúk og þægileg rúmföt.
Fólk grínast líka stundum með það
þegar það kaupir sér rúmföt hjá
okkur að nú verði ómögulegt að
fara fram úr á morgnana, því þau
eru svo mjúk og yndisleg,“ segir
Hildur Þórðardóttir hjá Rúmföt.is.
„En þá er einmitt kjörið að velja sér
falleg og uppörvandi mynstur og
liti til að létta lundina í skammdeg-
inu. Það gerir gæfumuninn að það
fyrsta sem við sjáum á morgnana
sé eitthvað fallegt og sérstaklega
ef við gefum okkur tíma til að dást
að því. Þar með fyllum við okkur
af góðri orku og jákvæðni fyrir
daginn.“
Hildur segir að það sé alltaf jafn
gaman að fá fólk í búðina sem er að
kaupa sér ný sparisængurföt.
„Þá vill það oftast það fínasta,
sem er að sjálfsögðu silkidamaskið.
Fyrst ber að nefna rúmfötin frá
ítalska lúxusmerkinu Quagliotti.
Það hefur starfað frá árinu 1933
og er eitt af fáum fjölskyldufyrir-
tækjum sem eru eftir í bransan-
um,“ segir hún. „Ef sængurföt væru
konfekt þá væru þau frá súkkulaði-
meistara sem handgerir hvern ein-
asta mola og leggur sálina í verkið.
Verin eru hvert öðru fallegra og úr
dásamlegu silkidamaski. Maður
fær alveg hamingjutilfinningu í
fingurna bara við að snerta efnin
og þeir sem þekkja Quagliotti vilja
ekkert annað.
Ein af nýjungunum hjá okkur í
ár eru 1.400 þráða lúxusrúmföt frá
öðru ítölsku fyrirtæki, en bómullin
í þessum rúmfötum er sérvalið
Giza-afbrigði frá Egyptalandi,“
útskýrir Hildur. „Um er að ræða
eina sjaldgæfustu bómull í heimi
og einnig þá bestu. Ef Quagliotti-
rúmfötin eru handgerðir konfekt-
molar þá eru þessi 1.400 þráða
rúmföt heimsókn í himnaríki.
Síðan er gaman að nefna Bauer-
sængurfötin, sem væru þá eins og
framúrstefnulegir konfektmolar.
Röndótta silkidamaskið er með
breiðari röndum en venjulega, sem
gerir þau nútímalegri og meira að
segja eru til svört og dökkgrá rönd-
ótt fyrir þá sem vilja sofa með mjög
dökkt. En auðvitað eru líka til
bleik, blá, grá, hvít og drapplituð.
Þá komu líka svaka flott rúmföt
með gylltu eða silfruðu mynstri,
sem smellpassar inn í áramóta-
tískuna,“ segir Hildur.
Íslensk framleiðsla
„Ekki má síðan gleyma öllum rúm-
fötunum sem hún Margrét okkar
saumar fyrir hver jól. Þau eru
alveg æðislega flott og bara gerð úr
þessum geggjuðu ítölsku efnum
sem fólk elskar,“ segir Hildur.
Margrét Guðlaugsdóttir, eða
Magga saumakona eins og hún er
oftast kölluð, er konan á bak við
rúmfötin.
„Hún er reynslunni ríkari þegar
kemur að saumaskap og rúmfötin
sem hún saumar eru hreinlega
listaverk,“ segir Hildur. „Magga
hefur gríðarlega reynslu af því
að sauma rúmföt. Hún saumaði
meðal annars fyrir Verið á sínum
tíma en einnig fyrir búðirnar
Höfnina, Erlu við Snorrabraut og
Kristínu, en þær eru allar löngu
farnar. Síðast fór Fatabúðin og var
mikil eftirsjá að henni. Það má því
með sanni segja að ansi margir
Íslendingar hafi sofið undir rúm-
fötunum sem hún Magga saumar
af sinni einskæru list.“
Magga segir það mikla
nákvæmnisvinnu að sauma
rúmföt.
„Maður skyldi nú halda að eftir
tæplega 60 ára starfsreynslu ætti
ég að vera löngu búin að fá nóg af
þessu. En mér hefur alla tíð þótt
Rúmfötin frá ítalska lúxusmerkinu Quagliotti eru fínustu sparisængurföt sem hægt er að fá og þeir sem þekkja Quag-
liotti vilja ekkert annað. Þau eru úr dásamlegu silkidamaski og hvert öðru fallegra. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Margrét Guð-
laugsdóttir, eða
Magga sauma-
kona eins og
hún er oftast
kölluð, hefur
tæplega 60
ára reynslu og
saumar rúmföt
fyrir Rúmföt. is
fyrir hver jól.
MYND/AÐSEND
Fólk grínast stund-
um með það þegar
það kaupir sér rúmföt
hjá okkur að nú verði
ómögulegt að fara fram
úr á morgnana, því þau
eru svo mjúk og yndis-
leg.
Hildur Þórðardóttir
Rúmföt.is er líka með yndislega mjúk 300 þráða efni í alls kyns skemmti-
legum og fjölbreyttum mynstrum fyrir bæði börn og fullorðna.
Fallegir litir geta létt lundina.
Sumir vilja mjög dökk rúmföt.
Rúmföt.is selur einstakar hágæða vörur á sanngjörnu verði.
Þeir sem vilja
alvöru gæði í
sængurfötum
finna það sem
þeir vilja hjá
Rúmföt.is.
gaman að sauma og þykir það enn
þá. Þegar það kemur nýtt efni í
búðina frá Ítalíu þá renni ég hönd-
unum um það og hugsa með mér
„noh, hvað það verður gaman að
sauma úr þessu“,“ segir hún.
„Langstærsti hluti viðskipta-
vina okkar er fólk sem er komið
yfir fimmtugt og vill alvöru gæði
í sængurfötum. Flestir sem voru
viðskiptavinir Fatabúðarinnar
eða Versins í gamla daga þekkja
handbragð Möggu saumakonu
og eru alsælir með að hafa upp-
götvað okkur eftir langþráða bið
eftir nýjum arftaka,“ segir Hildur.
„Nokkrum sinnum hefur það líka
gerst að ungir foreldrar koma til
okkar og segja að amman hafi gefið
barnabörnunum svo meiriháttar
góð sængurföt, sem séu svo ótrú-
lega mjúk og góð og koma svo flott
úr þvottinum, að nú vilji þau fá eins.
Svo var einn lítill sem fékk að
gista hjá ömmu og sagði eftir þá
heimsókn að hann vildi fá eins
sængurföt og amma átti,“ segir
Hildur. „Þannig að amman kom
í búðina og keypti handa honum
hvítt silkidamask.
En yngsta kynslóðin þarf ekki
öll að fá hvítt silkidamask, því við
erum líka með 300 þráða yndislega
mjúk efni í alls kyns barnamynstr-
um. Mýs að fljúga flugvélum,
keyra traktora og kappakstursbíla
eða kanínur og bangsar í sveit. Þá
er Pokémon á appelsínugulum
bakgrunni ótrúlega vinsæll, sem
og kattarúmföt fyrir kattafólk á
öllum aldri. Við eigum svo líka
rúmföt með hundum, fiskum og
risaeðlum,“ segir Hildur. „Fyrir þau
aðeins eldri eigum við stjörnu-
merkin, stafamynstur, skeljaþema
og skíðarúmföt fyrir skíðafólkið.
Við eigum meira að segja til barna-
rúmföt í hlýjum gráleitum tónum
sem er svo mikið í tísku núna.“
Dúnsængur og silkikoddaver
„Við vorum að fá Mulberry-silki-
koddaver í nokkrum litum en þau
hafa verið mjög vinsæl og kosta
aðeins 6.900 krónur án kants,“
upplýsir Hildur. „Kostirnir við að
sofa á silkikoddaveri, fyrir utan
hvað það er dásamlegt, er að hárið
verður minna úfið á morgnana.
Dúnsængurnar okkar eru líka
virkilega flottar. Við bjóðum upp
á nokkrar gerðir, meðal annars
770 gramma gæsadúnsæng sem
er mátulega þykk án þess að vera
of heit, en auk þess er ytra byrðið
550 þráða microsatín sem skrjáfar
nánast ekkert í, en margar sængur á
markaðnum eru með gróft áklæði
sem skrjáfar í,“ segir Hildur. „Það eru
svona hlutir sem sumir kaupmenn
eru ekkert að spá í en skipta máli ef
maður vill bara það besta.“ n
Rúmföt.is á Nýbýlavegi 28 er
opin milli 12-17.30 virka daga og
11-15 laugardaga. Sími: 565 1025,
rumfot.is.
2 kynningarblað A L LT 9. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGUR