Fréttablaðið - 09.11.2021, Blaðsíða 30
Við fyrstu sýn finnst
fólki þær skrýtnar en
verður svo stórhrifið.
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | 510 1700 | WWW.VR.IS
VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofs-
íbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsmenn sína.
Við leitum að húsnæði á landsbyggðinni fyrir
næsta sumar.
Áhugasöm sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 22. nóvember 2021.
Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir og lýsing á umhverfi fylgi með.
Öllum tilboðum verður svarað.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði:
– Lýsing á eign og því sem henni fylgir
– Ástand eignar og staðsetning
– Lýsing á möguleikum til útivistar og
afþreyingar í næsta nágrenni
Hjörtur Matthías Skúlason
sýnir verk sín í Vín. Mjúkir
saumaðir skúlptúrar og
prentverk.
Hjörtur Matthías lærði vöruhönnun
og starfar sem hönnuður en hefur
á síðustu árum sinnt myndlist í
auknum mæli. „Ég lauk fornámi við
Myndlistarskólann. Þegar ég sótti
síðan um í Listaháskólanum sótti
ég bæði um á myndlistar- og vöru-
hönnunarsviði og komst inn í báðar
deildir. Kennarar mínir úr mynd-
listarskólanum sögðu að ég væri of
skipulagður til að fara í myndlist og
ráðlögðu mér að fara í vöruhönnun.
Það var mjög praktískt, auk þess að
vera skemmtilegt og ég sé ekkert
eftir því.
Fyrir tveimur árum fór ég að
vinna að myndlist. Við Hulda Vil-
hjálmsdóttir erum góðir vinir og
sýndum saman í Gallery Port. Þá
fór boltinn að rúlla varðandi mynd-
listina,“ segir Hjörtur Matthías sem
deilir vinnustofu með Huldu vin-
konu sinni úti á Granda.
Um fyrirhugaða sýningu sína í
Vín segir hann: „Ég á góðan vin sem
er fatahönnuður í Vín. Hann rekur
verslun og er þar með listrænt rými
og þar eru gjörningar, myndlistar-
menn mæta með verk sín og vöru-
Útlimir skapa hreyfingu
Hjörtur Matthías starfar sem hönnuður en sinnir einnig myndlistinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Eitt þeirra verka sem Hjörtur
Matthías sýnir í Vín.
hönnuðir sýna. Hann bauð mér að
halda sýningu sem verður opnuð
11. nóvember og stendur í nokkra
mánuði.“
Á sýningunni í Vín sýnir hann
mjúka, saumaða skúlptúra og prent-
verk sem hann hefur gert af þeim.
„Skúlptúrarnir sýna mannslíkam-
ann þar sem útlimir skapa hreyf-
ingu sem minnir á dans. Verkin eru
ekki alltaf raunsæ, ég leyfi þeim að
vera svolítið abstrakt og set kannski
átta hendur á bolinn til að sýna
hreyfingarnar. Um leið skapast fal-
legt flæði. Í prentverkunum sem ég
geri af dúkkunum er mikil hreyfing
og dýpt.“
Hann hefur unnið við að gera
skúlptúra eins og þessa í tvö ár og
hefur sýnt þá í Gallery Port og á
Mokka. „Ég fæ frábær viðbrögð við
þessum fígúrum. Við fyrstu sýn
finnst fólki þær skrýtnar en verður
svo stórhrifið. Börn eru svo alveg
heilluð af þessum fígúrum.“ ■
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
kolbrunb@frettabladid.is
Ritlist við Háskóla Íslands í sam-
starfi við Bókmennta- og listfræða-
stofnun efnir til viðburða þar sem
höfundur og ritstjóri ræða samstarf
sitt.
Í dag, þriðjudaginn 9. nóvember,
munu rithöfundurinn Harpa Rún
Kristjánsdóttir og ritstjórinn Páll
Valsson spjalla um samstarf sitt við
bókina Kynslóð sem er nýkomin út
hjá Bjarti.
Páll er einn reyndasti ritstjóri
landsins og hefur unnið með
mörgum af þekktustu höfundum
þjóðarinnar. Har pa Rún, sem
hreppti Bókmenntaverðlaun Tóm-
asar Guðmundssonar fyrir ljóða-
bókina Eddu árið 2019, sendir nú
frá sér sína fyrstu skáldsögu. Harpa
er bókmenntafræðingur að mennt
en starfar nú sem rithöfundur og
bóndi.
Spjallið fer fram í stofu 008 í Ver-
öld klukkan 12-13. Viðburðurinn
er opinn öllum og er aðgangur
ókeypis. ■
Páll og Harpa ræða samstarf
Harpa Rún Kristjánsdóttir rithöfundur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
16 Menning 9. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 9. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGUR