Fréttablaðið - 30.11.2021, Blaðsíða 1
2 3 5 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 3 0 . N Ó V E M B E R 2 0 2 1
Ætla að boxa
Skugga-Svein
Grundfirðingur
í Gautaborg
Lífið ➤ 26 Sport ➤ 14
Mitsubishi Eclipse Cross PHEV
Nýja ljósið í
skammdeginu
Tryggðu þér nýjan tengiltvinnbíl fyrir áramót á frábæru
verði frá aðeins 5.490.000 kr. til afhendingar strax.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · hekla.is/mitsubishisalur
Eitt Hjalteyrarbarnanna
segist hafa trúverðugar upp-
lýsingar um að komið hafi
verið í veg fyrir rannsókn
á sínum tíma til að vernda
opinbera persónu.
bth@frettabladid.is
SAMFÉLAG Steinar Immanúel Sörens-
son, eitt Hjalteyrarbarnanna, segir
að sér hafi borist nýjar og sláandi
upplýsingar frá lögmanni í gær, sem
kunni að skýra hvers vegna rann-
sókn á barnaheimilinu á Hjalteyri
við Eyjafjörð hafi ekki farið fram á
sínum tíma eða hún jafnvel verið
stöðvuð. Hann telur upplýsingarnar
mjög trúverðugar.
„Þetta eru upplýsingar um að
Hjalteyrarmálið hafi verið þaggað
niður þar sem um þjóðþekktan ein-
stakling hafi verið að ræða. Einstak-
ling sem að nokkru leyti bar ábyrgð
á að svo fór sem fór og að málið var
ekki upplýst á sínum tíma,“ segir
Steinar.
„Mér brá mjög illa, því mig hefur
alltaf grunað að eitthvað ósagt
stæði í veginum fyrir því að rann-
sóknin færi fram,“ segir Steinar.
„Mig hefur grunað þetta í mörg ár,
allt frá því að ég hóf baráttuna fyrir
því að réttlætið fengi framgang, en
mig óraði aldrei fyrir að mögulega
væri verið að halda hlífiskildi yfir
opinberri persónu á kostnað okkar
barnanna,“ bætir hann við.
Tímabilið sem Steinar vísar til er
þegar rannsóknir stóðu sem hæst á
öðrum barnaheimilum með vinnu
Vistheimilanefndar. Lauk þeirri
rannsókn í sumum tilvikum með
afsökunarbeiðni og sanngirnis-
bótum. Ekkert var aðhafst vegna
Hjalteyrarheimilisins.
Þá segir Steinar að bjartsýni hafi
kviknað eftir að ráðherrar töluðu
fyrir því í síðustu viku að málið
yrði tekið upp með nýrri rannsókn.
Með ráðherraskiptunum nú upplifi
Hjalt eyrarbörnin nýja óvissu.
„Við viljum fá loforð frá nýjum
dómsmálaráðherra um að málið
verði ekki aftur látið hverfa. Ótti
okkar liggur í því að málið verði
aftur látið falla milli skips og
bryggju,“ segir Steinar. n
Fékk nýjar upplýsingar um þöggun
og yfirhilmingu í Hjalteyrarmálinu
Steinar
Sörensson
STJÓRNMÁL „Ég man ekki eftir að
þetta hafi verið svona ójafnt,“ segir
Grétar Þór Eyþórsson, stjórnmála-
fræðiprófessor við Háskólann á
Akureyri, en af tólf ráðherrum eru
tíu frá Reykjavíkurkjördæmunum og
Suðvesturkjördæmi. Hinir koma frá
Akranesi og Syðra-Langholti, hvoru
tveggja í klukkutíma akstursfjarlægð
frá borginni. Í fyrsta skipti á Norð-
austurkjördæmi ekki ráðherra.
Ýmis andvana fædd mál fyrri
stjórnar hafa verið lögð á hilluna í
nýjum sáttmála, svo sem stofnun
þjóðarsjóðs, afglæpavæðing neyslu-
skammta og Miðhálendisþjóðgarð-
ur. Mikil áhersla er á loftslagsmálin
og velferðarmál en lítið um umdeild
mál á dagskrá, segir meðal annars í
ítarlegri fréttaskýringu. SJÁ SÍÐU 8
Landsbyggðinni
gefið langt nef
Annar flokkur Vals lét ekki snjómuggu gærdagsins hindra sig í að komast á fótboltaæfingu. Þeir mættu galvaskir á völl séra Friðriks og tóku til hendinni. Mokuðu hraðar en snjónum kyngdi niður og
fóru svo að sparka sín á milli, hressir og kátir með skófluna tilbúna á hliðarlínunni ef það skyldi fara aftur að snjóa. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI