Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.11.2021, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 30.11.2021, Qupperneq 4
Þrátt fyrir að markmið um 55 prósenta sam- drátt sé ekki á pari við markmið hinna Norð- urlandanna er það mikilvægt skref í rétta átt. Tinna Hallgrímsdóttir, formaður Ungra umhverfissinna 100% RAFMÖGNUÐ ÍTÖLSK HÖNNUN FIAT 500e ER FYRSTI FALLEGI RAFMAGNSSMÁBÍLLINN. SJÓN ER SÖGU RÍKARI UMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • FIAT.IS • ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16 TÍMALAUS ÍTÖLSK HÖNNUN MEÐ ALLT AÐ 460 KM DRÆGNI. urduryrr@frettabladid.is STJÓRNMÁL Guðlaugur Þór Þórð- arson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins sem áður var innanríkis- ráðherra, tók í gær við lyklum að ráðuneyti umhverfis-, orku- og loftslagsmála. „Það er heiður að fá traustið til að gera það,“ segir Guð- laugur Þór. „Það þarf ekki að fara mörgum orðum um mikilvægi þessa málaflokks.“ Guðlaugur segist vera meðvit- aður um að verkefnið sem hann fær í hendurnar sé mjög krefjandi og mikilvægt sé að um það náist góð sátt meðal allra sem tengjast því. „Það spannar næstum alla þjóðina,“ segir hann. Einhverjir ráku upp stór augu þegar í ljós kom að Guðlaugur fengi þetta ráðuneyti en ekki þingmaður Vinstri grænna, sem hafa verið þekktari fyrir að beita sér fyrir loftslagsmálum. Guðlaugur segist ekki átta sig á því hvers vegna það sé. „Ef við skoðum sögu Sjálfstæðis- f lokksins þá höfum við alltaf verið framarlega þegar kemur að umhverfismálum,“ segir Guðlaugur Þór. Hann bendir einnig á að hann hafi sjálfur beitt sér fyrir mála- f lokknum sem utanríkisráðherra auk þess að hafa tekið þátt í gras- rótinni og ungliðahreyfingunni. Það vakti einnig athygli að það sem áður var umhverfis- og auð- lindaráðuneytið sé nú umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Guð- laugur segir það mikilvægt að sam- ráð sé á milli þessara málaflokka. „Við erum að fara í græna bylt- ingu, við erum að fara í orkuskipti. Við erum að fara úr jarðefnaelds- neyti og í enn auknum mæli í græna orku þannig að við þurfum alltaf að ræða þessi mál í sam- hengi,“ segir Guðlaugur. Tinna Hallgrímsdóttir, formaður Ungra umhverfissinna, segir það miður að í stjórnarsáttmálanum sé ekki minnst á samráð við almenn- ing, hagsmuna- eða félagasamtök þegar kemur að ákvörðunartöku í loftslags- og umhverfismálum. „Þetta er áhyggjuefni þar sem uppbyggilegt samráð er lykill- inn að betri lausnum við stórum vandamálum svo sem loftslags- vánni sem og að mynda sátt um þær ákvarðanir sem eru teknar til að sporna við loftslagsbreytingum og annarri umhverfisvá,“ segir Tinna. Hreyfingin vonast til að sjá átak hvað það varðar á kjörtímabilinu. „Enda er þetta eitt af þeim mál- efnum sem ríkisstjórnarflokkarnir þrír fengu allir stig fyrir í Sólinni – einkunnagjöf Ungra umhverfis- sinna fyrir kosningarnar í lok sept- ember,“ segir hún. Tinna segir það jákvætt að Ísland sé búið að setja sér sjálfstætt mark- mið um samdrátt í losun á beina ábyrgð stjórnvalda fyrir árið 2030 miðað við árið 2005. „Þrátt fyrir að markmið um 55 prósenta samdrátt sé ekki á pari við markmið hinna Norðurlandanna er það mikilvægt skref í rétta átt. Nauðsynlegt er að lögfesta markmiðið og uppfæra aðgerðaáætlun í samræmi við það til að tryggja að það raungerist.“ Ungir umhverfissinnar fögn- uðu því einnig að tekin væri skýr afstaða gegn leyfi fyrir olíuleit í lögsögu Íslands. „Enda er ljóst að lágkolefnahagkerfi framtíðarinnar verður ekki knúið af jarðefnaelds- neyti,“ segir Tinna. n Guðlaugur Þór boðar græna byltingu Guðlaugur Þór tók við lyklunum í gær. Flokkur hans fékk 21 stig af 100 í einkunnagjöf Sólarinnar í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Loftslagsmál skipa stóran sess í nýja stjórnarsáttmálanum. Sumir ráku upp stór augu þegar tilkynnt var að Guð- laugur Þór Þórðarson fengi ráðuneyti umhverfis-, orku- og loftslagsmála en hann hefur sinnt málaflokknum á ýmsum vettvangi. bth@frettabladid.is ÞJÓÐKIRKJAN Bisk up Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, og vígslu- biskup, Sólveig Lára Guðmunds- dóttir, skipta nú með sér verkum sem almennt eru á könnu biskups. Pétur Markan biskupsritari segir það einn þátt í starfi vígslubiskupa að létta undir með biskupi. „Þær skipta með sér verkum þessa dagana, það er mjög mikið álag á Biskupsstofu,“ segir Pétur Markan. Pétur segir að ekki hafi reynt mikið á að embættinu hafi verið deilt með þessum hætti utan þeirra tilvika þegar biskup fer utan á vegum kirkjunnar eða er í leyfi. Agnes sat ekki Kirkjuþing í síð- ustu viku en var viðstödd setningu Alþingis. n Biskupar skipta með sér verkum ser@frettabladid.is DÝRAHALD Ráðherraráð Evrópu- sambandsins í Brussel hefur nú til meðferðar nýsamþykkta ályktun Evrópuþingsins í Strassborg um bann við innflutningi hrossakjöts og PMSG-hormóna úr hryssum frá þeim löndum utan sambandsins sem leyfa blóðmerahald. Ályktunin var samþykkt með 452 atkvæðum gegn 170, en 76 þing- menn sátu hjá. Aðeins fjögur lönd heiminum heimila blóðmerahald í þeim til- gangi að búa til hormón sem spraut- að er í gyltur til að auka frjósemi þeirra, en löndin eru Argentína, Kína, Ísland og Úrúgvæ. Raunar er blóðmerahald enn stundað á einum bæ í sambands- landinu Thüringen í Þýskalandi, en ágreiningur hefur verið á milli sam- bandslandsins og sambandsríkisins um hver fer með lögsögu málsins og fyrir vikið er enn stunduð blóðtaka úr merum á bænum. n Blóðmerahald bannað í Evrópu Blóðmerahald er nú til skoðunar í Brussel. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR birnadrofn@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Snemma á næsta ári stendur til að taka í gagnið Geð- heilsumiðstöð barna hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH). Með miðstöðinni verður ýmis þjónusta sem veitt er í dag sameinuð. Guðlaug Unnur Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri geðheilbrigðis- þjónustu HH, segir að breytingarnar muni stuðla að styttri biðlistum Unnið á biðlistum barna með ADHD Guðlaug Unnur Þorsteinsdóttir, framkvæmda- stjóri geðheil- brigðisþjónustu HH ásamt því að auka meðferðarúr- ræði fyrir börn og unglinga með geð- rænan vanda. „Þetta er styrking og útvíkkun í þjónustu við börn í svo- kallaðri annarrar línu þjónustu, sem er þjónusta mitt á milli þess að vera spítalaþjónusta og heilsugæsluþjón- usta,“ segir Guðlaug. Óskar Reykdalsson, forstjóri HH, segir klárlega þörf fyrir Geðheilsu- miðstöð barna innan heilsugæsl- unnar. „Við vonum að þetta verði til þess að við náum að sinna þessum börn- um betur og þar af leiðandi hafa áhrif fyrir lífstíð. Þetta er svo mikilvægur tími í lífi þessara barna,“ segir Óskar. Hann segir stærstu áskorunina núna vera að ráða fólk til starfa innan verkefnisins. Auglýst verði eftir for- stöðumanni um næstu mánaðamót en áætlað sé að um 55 starfsmenn muni starfa við Geðheilsumiðstöð- ina. n 4 Fréttir 30. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.