Fréttablaðið - 30.11.2021, Qupperneq 14
25. september var kosið til Alþingis
hér. 26. september kusu Þjóðverjar
til síns sambandsþings, Bundestag.
Í báðum löndum hafa nú þriggja
flokka stjórnir verið myndaðar.
Í Þýzkalandi eru Sósíaldemó-
kratar, Græningjar og Frjálsir demó-
kratar á ferð.
Fyrirsögnin á við nýjan þýzkan
stjórnarsáttmála. Fyrir undirrituð-
um er hann stórkostlegur, og vænti
ég þess, að hann mun ekki aðeins
tryggja framfarir og betra mannlíf
í Þýzkalandi, heldur líka hafa góð
og uppbyggileg áhrif í Evrópu allri.
Jafnvel á Íslandi.
Því miður, get ég ekki heimfært
þessa fyrirsögn á nýja íslenzka
ríkisstjórn og stjórnarsáttmála, þó
að auðvitað sé hér líka góður vilji og
ýmsir góðir menn kallaðir til verka.
Ánægju- eða gleðiskorturinn
með nýja íslenzka stefnuskrá og
ríkisstjórn stafar af því, að hér
virðist mest vera á ferðinni gamalt
vín á nýjum belgjum. Hvar er neisti
góðra breytinga og framfara!? Nýrra
lausna!? Hvar er frjó hugsun og
dirfska til nýrra taka!?
Tilfæringar innan ráðuneyta og
ný heiti þjóna kannske einhverjum
praktískum tilgangi, en þessi vinna
á að vera samstarf ráðherra, og því
eru þessar tilfæringar meira yfir-
borðsmál, sem litlu breyta um inni-
hald eða efni. Sjónhverfingar?
Þýzkur stjórnarsáttmáli liggur
fyrir, og skýrir hann kannske betur,
en mörg orð, mína hrifningu af
honum:
Loftslagsvernd:
Þessi nýja ríkisstjórn tekur þetta
grundvallarmál framtíðar manna
á jörðinni engum vettlingatökum.
Fyrri ríkisstjórn hafði ákveðið, að
hætta kolavinnslu og framleiðslu
rafmagns úr kolum 2038.
Nýja ríkisstjórnin setur aðra for-
gangsröð: Heill komandi kynslóða
skuli ganga fyrir. Kolavinnslu og
orkuframleiðslu úr kolum skal hætt
2030. Á sama hátt skal kolvetnis-
hlutleysi nú náð mun fyrr, en áður
stóð til: 2045.
25% hækkun á lægstu laun:
Þeir launamenn, sem fá lægst laun,
eru þeir, sem þiggja tímalaun.
Lægstu tímalaun hafa verið 9,60
evrur. Með einu slagi hækka lægstu
tímalaun nú í 12,00 evrur. Um 25%.
Það verða allir að komast af!
Innleiðing „Bürgergeld“
eða borgaralauna:
Afkomutrygging hinna verst settu.
Sama sjónarmið. Atvinnulausir,
fatlaðir, veikir, eldri borgarar og
aðrir, sem minna mega sín, verða
líka að geta lifað mannsæmandi lífi.
Borgaralaun eiga að leysa flókið og
margþætt tryggingar- og styrkja-
kerfi af hólmi. Borgaralaunin eiga
að tryggja grunnafkomu allra.
Stórfellt átak í húsbyggingum:
Þetta gengur líka út á meiri jöfnuð
og meira réttlæti í þjóðfélaginu.
Byggja á f leiri íbúðir en nokkru
sinni fyrr, skv. föstu og skilgreindu
plani, til að tryggja hagstætt íbúðar-
verð og viðráðanlegt leigugjald
leigjenda.
Stórátak í þróun
staf rænna lausna/kerfa:
Ný þýzk ríkisstjórn skilur, að for-
senda fyrir velfarnaði og hagsæld,
forsenda þess, að ríkið geti tekið á
sig ný útgjöld til jöfnunar lífskjara
og staðið fyrir öflugri þróun þjóð-
félagsins, er framsækið atvinnulíf,
öf lugur hagvöxtur, góða af koma
fyrirtækja og auknar skattatekjur.
Þess vegna vill ný ríkisstjórn gera
Þýzkaland að leiðandi ríki heims í
fjórðu iðnbyltingunni – innleiðingu
stafrænna lausna við hvers konar
þróun, framleiðslu og rekstur, líka
á sviði samskipta og samgangna,
í raun á f lestum sviðum mann- og
atvinnulífs – en þessi iðnbylting
mun stórauka hagkvæmni, hraða,
nákvæmni, virkni, afköst – fram-
leiðni – á nánast öllum sviðum.
Aukin mannúð:
Flóttamenn eiga líka rétt:
Ný ríkisstjórn vill stórauka mann-
úð, móttökumöguleika og aðbúnað
þeirra, sem flýja stríð, ofbeldi, órétt-
læti, atvinnuleysi og örbirgð, og
bæta aðstöðu þeirri og tækifæri í
Þýzkalandi.
Friday for Future
– Réttur unga fólksins:
Ný ríkisstjórn virðir rétt unga fólks-
ins, þeirra, sem taka eiga við og erfa
skulu landið, og færir kosningarétt
niður í sextán ár, þannig, að unga
fólkið fái betri aðgang að áhrifum
og völdum.
Kannabis lögleitt:
Á grundvelli þess, að vísindamenn
telja kannabis hættuminna en
áfengi og tóbak, og, einkum, af því
að kannabis býr yfir viðurkenndum
og áhrifamiklum lækningamætti,
einkum á sviða verkja- og kvala-
stillingar, verður kannabis lögleitt.
Þá komum við að því, sem þýzka
ríkisstjórnin nýja ákvað, að ekki
yrði gert:
n Skattar verða ekki hækkaðir.
n Skuldabremsa verður sett á ríkis-
sjóð frá 2023 (eftir Covid?), þann-
ig, að þýzka ríkið má ekki auka
skuldir sínar.
n Hraðatakmarkanir verða ekki
settar á þýzkar hraðbrautir, en
þar verða – þrátt fyrir frjálsan
hraða víða – ekki f leiri slys, en
þar sem hraðatakmarkanir gilda.
Það er mat undirritaðs, að f lest
það bezta í stefnumálum þessara
þriggja f lokka hafi náð fram að
ganga í þessum stjórnarsáttmála.
Ráðherrar, eða ígildi ráðherra,
virðast verða sautján. Átta ganga til
Sósíaldemókrata, fimm til Græn-
ingja og fjórir til Frjálsra demókrata.
Þetta er í fyrsta sinn, sem Græningj-
ar koma að sambandsstjórninni.
Olaf Scholz, Sósíaldemókrati,
verður kanslari. Sléttur maður og
felldur, að sjá, en þar fer klár og öfl-
ugur innri maður.
Robert Habeck, annar formanna
Græningja, fær súperráðuneyti;
loftslagsverndar- og viðskiptaráðu-
neyti.
Engin lagasetning mun geta tekið
gildi, nema hún hafi fyrst fengið
grænt ljós í loftslagsráðuneytinu.
Loftslags- og umhverfisvernd mun
verða rauður þráður í allri lagasetn-
ingu og stjórnsýslu.
Christian Lindner, formaður
Frjálsra demókrata, verður fjár-
málaráðherra.
Annalena Baerbock, hinn for-
maður Græningja, verður utanrík-
isráðherra. Verkefni hennar verður
m.a. að vinna að og tryggja fram-
gang grænna mála víða um lönd.
Umhverfisráðuneyti og næringar-
og landbúnaðarráðuneyti verða í
höndum ráðherra Græningja.
Þetta er mikið gleðiefni fyrir und-
irritaðan, því þessi ráðstöfun mun
leiða til stórfelldra frekari umbóta í
umhverfis-, náttúru- og dýravernd.
Menn geta nú borið saman ofan-
greint prógramm nýrrar þýzkrar
ríkisstjórnar, og það, sem hér er á
dagskrá.
Fyrir mér vantar því miður þann
neista hér, til frelsis frá gamalli og
lúinni aðferðafræði, í nýjar, frum-
legar og framfarasinnaðar lausnir,
sem setja mark sitt á þá þýzku. n
Nýr stórkostlegur stjórnarsáttmáli …
Ole Anton
Bieltvedt
alþjóðlegur kaup-
sýslumaður og
stjórnmálarýnir
Hvar er neisti góðra
breytinga og framfara!?
Nýrra lausna!? Hvar er
frjó hugsun og dirfska
til nýrra taka!?
Dómur Landsréttar 12. nóvember 2021 í máli nr. 266/2020
Dómsorð: Aðaláfrýjendur Familían ehf., Hrefna Bachmann, Margrét Þorsteinsdóttir og Þorsteinn
Bachmann eru sýkn af kröfum gagnáfrýjenda, Guðbjargar Jónsdóttur, Gunnars Rafns Jónssonar,
Katrínar Jónsdóttur, Kristins Jónssonar, Kristjönu Jónsdóttur, Sigrúnar Jónsdóttur, Sveinbjörns
Jónssonar, Þórhildar Jónsdóttur og Þorsteins Jónssonar, um afhendingu á frumgerðum eða eftir-
gerðum þeirra myndverka sem dómkröfur gagnáfrýjenda taka til. Aðaláfrýjendum Familíunni ehf.,
Hrefnu Bachmann, Margréti Þorsteinsdóttur og Þorsteini Bachmann er sameiginlega gert að greiða
gagnáfrýjendum óskipt 2.685.000 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti
og verðtryggingu frá 1. desember 2013 til 20. október 2015 en með dráttarvöxtum samkvæmt 1.
mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Aðaláfrýjandi Fabrik ehf. greiði gagnáfrýjendum
óskipt 655.000 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá
1. desember 2013 til 20. október 2015 en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga
frá þeim degi til greiðsludags. Öllum aðaláfrýjendum er sameiginlega gert að greiða gagnáfrýjend-
um óskipt 370.000 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtrygg-
ingu frá 1. desember 2013 til 20. október 2015 en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr.
sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Aðaláfrýjendur Familían ehf., Hrefna Bachmann, Margrét
Þorsteinsdóttir og Þorsteinn Bachmann skulu sameiginlega fá dómsorð dóms þessa birt í prentaðri
útgáfu Morgunblaðsins og Fréttablaðsins. Ákvæði héraðsdóms um málskostnað skal vera óraskað.
Málskostnaður fyrir Landsrétti fellur niður.
Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
www.DORMA.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
JÓLIN ERU Í DORMA
Komdu og kíktu
á jólatilboðin
LICATA
hornsófi
Hornsófi. Nettur og fallegur. Koníaksbrúnt bonded leður.
Hægri eða vinstri tunga. Svartir nettir járnfætur.
Stærð: 262 x 226 x 82 cm. Verð: 269.900 kr. Nú 215.920 kr.
20%
AF LICATA
JÓLA-
AFSLÁTTUR
DORMA LUXE heit dúnsæng
140×200 cm. 800 g. 90% hreinn
andadúnn. 10% smáfiður. 29.900 kr.
NÚ 23.920 kr.
STÓRI BJÖRN koddi
50x70 cm. 700 g. 50% dúnn og
50% smáfiður. 7.900 kr. NÚ 6.320 kr.
DORMA LUXE
Heit sæng
DORMA ullarsæng 140×200 cm.
Vistvæn sæng með Oekotex vottun.
21.900 kr. NÚ 17.520 kr.
DORMA CLASSIC koddi
50x70 cm. Hollow fiber. 800g.
4.900 kr. NÚ 3.920 kr.
Verðdæmi: 180x200 cm. með Classic botni og fótum.
289.900 kr. NÚ 238.420 kr.
DORMA ullarkoddi
50x70 cm. Vistvænn koddi með
Oekotex vottun. 9.900 kr. NÚ 7.920 kr.
DORMA CLASSIC sæng
140x200 cm. Hollow fiber. 1.345g.
13.900 kr. NÚ 11.120 kr.
Sealy HYATT
heilsurúm með classic botni
Sex mismunandi svamplög í Sealy Hyatt
heilsudýnunni og þau ásamt náttúrulegum
trefjum og þykkum toppi gera það að
verkum að þú hvílist fullkomlega og
snýrð þér mun minna en í venjulegri
gormadýnu .Dýnan er með Oek-Tex
vottun um að engin skaðleg efni
eru í dýnunni.
20%
AFSLÁTTUR
af dýnu og 10%
af botni.
JÓL
14 Skoðun 30. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ