Fréttablaðið - 30.11.2021, Page 16

Fréttablaðið - 30.11.2021, Page 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Sandra Lárusdóttir hefur rekið Heilsu og útlit í sjö ár. Hún er sér- menntuð í meðferðum með heilsu- tæki frá Weyergans, sérstaklega sem snýr að sogæðameðferðum sem eru hreinsandi fyrir líkamann og draga úr bólgum. Meðal þeirra tækja sem Heilsa og útlit bjóða upp á er VacuSport en Sandra segir að hægt sé að minnka bjúgmyndum mjög hratt í tækinu. „Tæknin með VacuSport var upphaflega þróuð til að koma í veg fyrir blóðrásarvandamál hjá geimförum sem vinna í þyngdar- lausu umhverfi. Þetta er taktfast þrýstings- og lofttæmisnudd á æðakerfinu sem stóreykur blóð- flæði í æðum og vöðvum þannig að svæði, sem hafa orðið fyrir meiðslum, jafna sig mun fyrr. Með þessari meðferð fær líkaminn aukið súrefni,“ útskýrir Sandra. „Við vorum að selja okkar fyrstu Vacusport vél til sjúkraþjálfunar- miðstöðvarinnar Endurheimt sem ég veit að á eftir að slá í gegn hjá þeim,“ segir hún. „Meðferðin kemur líkamanum í betra form og bætir heilsuna með því að hraða endurhæfingu og endurnýjun þeirra svæða sem þurfa á því að halda. Meðferðin hefur sannað sig gegn langvarandi verkjum eins og gigt, liðavanda- málum og skertu blóðflæði,“ segir hún. „Fólk kemur til okkar í nokkur skipti og það er ótrúlegt að sjá áhrifin. Þetta er stundum eins og kraftaverk.“ Margvíslegar meðferðir „Við erum örugglega ein stærsta tæknistofa á landinu þegar kemur að heilsu og útliti. Við bjóðum ekki einungis sogæðameðferð heldur einnig vandaðar andlitsmeðferðir auk meðferðar fyrir appelsínuhúð. Við erum umboðsmenn snyrti- vörumerkisins Casmara sem er viðurkennt fyrir vandaðar vörur og meðferðir. Við erum í samstarfi við snyrtistofuna á Garðatorgi sem býður upp á örnálameðferð sem hentar vel yfir vetrartímann ásamt ávaxtasýrumeðferð. Þá get ég nefnt medical tattoo og ég vinn við að gera vörtubaug eftir uppbyggingu brjósta eða brjóstaminnkun og litar í ör svo þau verða minna áberandi,“ segir Sandra sem er lærður Medical tatto sérfræðingur. „Loks erum við með tann- hvíttun,“ segir hún og bætir við: „Síðan eru það vítamínin okkar, Fitline, en við veitum fólki ráð- gjöf næringarfræðings um töku á þeim,“ segir hún. „Við erum alltaf að bæta við þjónustuna og erum að fá ljósabekk til okkar en það hefur mikið verið beðið um hann svo ég ákvað að láta slag standa og tók einn bekk inn sem er væntan- legur í byrjun desember,“ segir Sandra og bætir við að það sé fólk á öllum aldri sem leiti til Heilsu og útlits. Mikil eftirspurn „Verndarhjúparnir, sogæðameð- ferðir og andlitsmeðferðirnar frá Casmara eru að slá í gegn hjá okkur og sömuleiðis tannhvítt- unin. Til okkar kemur fólk með alls kyns vandamál, íþróttamenn, sykursjúkir, fólk með vefjagigt, bjúgsöfnun og þeir sem eru með lélegt blóðflæði. Sömuleiðis kemur fólk sem nýlega hefur gengist undir aðgerðir, meðal annars þeir sem hafa verið í gifsi eftir brot eða aðgerðir á hné eða mjöðmum. Það er algengt erlendis að sjúkra- þálfarar, læknar eða aðrir þeir sem meðhöndla fólk með skert blóð- flæði nýti VacuSport tækin enda eru áhrifin ótrúleg. Verndarhjúparnir sem við erum með og hjálpa líkamanum að slaka á öllum vöðvum eru líka mjög vinsælir og við erum að bæta við okkur fleiri tækjum og eigum von á þeim fljótlega. Slíkir hjúpar ættu að vera til á öllum heilsustofn- unum, þeir veita hita, slökun og nudd, styrkja ónæmiskerfið, bæta svefn og hreinsa hugann. Infrarauður klefi Fyrir stuttu tókum við í notkun Redfit room en það er notað sem æfingaherbergi fyrir jóga, spinn- ing, lyftur og hugleiðslu. Í klefan- um er hægt að fá nudd eða hrein- lega slappa af og hreinsa hugann. Það er bæði sjónvarp og Bluetooth svo það er hægt að hlusta á tónlist, sögu eða hafa einkaþjálfarann á skjánum. Það þarf einungis að vera í 20 mínútur í klefanum til að finna áhrifin svo hann er frábær lausn fyrir þá sem eru að flýta sér. Klefinn tekur 5-8 manns sitjandi eða tvö sem liggja. Í hitaklefanum er Far Infrared, 16 litameðferðarljós, Himalayan saltsteinar og jade náttúrusteinar en þeir eru sambland af tveimur mismunandi náttúrulegum steinefnum, annars vegar jadeite (natríum, ál og kísil) og nefrít (kalsíum, magnesíum og kísil). Kristallarnir aðstoða náttúrulega getu líkamans við að draga djúpt andann og slaka á. Þegar rakastig andrúmslofts er eðlilegt dregur loftið að sér saltagnirnar sem mýkja húðina og opna öndunar- veginn. Saltið hjálpar einnig við að opna ennis- og kinnholur og stuðlar að hugarró. Notkun innrauðra geisla við að auka kjarnhitastig líkamans hefur jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan auk þess sem slík meðferð hefur reynst íþróttamönnum vel til að ná auknum árangri, svokölluð hitameðferð,“ útskýrir Sandra en klefinn veitir: ■ Róandi, vöðvaslakandi hugar- ástand ■ Brennir hitaeiningum ■ Stuðlar að þyngdarmissi og minnkun á ummáli ■ Eykur blóðrás ■ Eykur súrefnisupptöku ■ Eykur brennslu ■ Eykur hreyfigetu ■ Eykur liðleika ■ Er verkjalosandi ■ Endurmótar líkamann ■ Afeitrar ■ Endurnærir húðina ■ Framkallar afslöppun / veitir hugarró ■ Kemur jafnvægi á kortisólmagn (kortisól er hormón sem hjálpar fólki að slaka á streitu og veitir jafnvægi) ■ Stuðlar að andlegu jafnvægi og ró ■ Hjálpar við svefnleysi ■ Veitir húðinni raka ■ Hreinsar öndunarveginn ■ Hjálpar árstíðabundnu ofnæmi/ frjókornaofnæmi ■ Hefur góð áhrif sem meðferð við berkjubólgu (sjá heimasíðu Halotherapy fyrir frekari upp- lýsingar) Selur til annarra landa Í Covid höfum við selt 30 Weyer- gangs tæki og Wellness-USA til Noregs og Svíþjóðar en ég er með umboðið fyrir Norðurlöndin. Ekkert lát virðist á því þar sem ég er nú þegar bókuð á fundi á nýju ári með aðilum frá Noregi. Við verðum með sölusýningu í Bergen í febrúar 2022. Rudolf Weyergans er með yfir 35 ára reynslu en hann fann til dæmis upp okkar fræga krem, styler cream, sem við köllum sogæðakrem en það er ekkert krem sem vinnur eins og það, frá- bært eftir aðgerðir, bjúgsöfnun, bruna, ör, appelsínuhúð eða bara til að nota sem græðandi líkams- krem. Þetta er undrakrem sem allir ættu að eiga,“ segir Sandra. Tækin okkar eru á eftirtöldum stöðum: ■ Villan Spa, Sauðárkróki ■ Maríkó, Akranesi ■ Ró útlits- og heilsumeðferða- stofu, Njarðvík ■ Weyergans Studio, Siglufirði ■ Heilsuhofinu, Akureyri ■ Táin og Strata, Sauðárkróki ■ Mátturinn í Núinu, Eygló, Selfossi ■ Nuddstofu Margrétar, Borgar- nesi ■ Endurheimt, sjúkraþjálfun Heilsa og útlit býður infrarauð hitateppi sem eru heilbrigðis- vottuð frá Frakklandi. Sandra segir að teppin séu vinsæl gjöf enda henta þau vel fólki sem þjáist af verkjum. Gjafabréf í Heilsu og útlit er sömuleiðis góð gjöf en um þessar mundir er 15% afsláttur af þeim til 5. desember. Heilsa og útlit er í Hlíðasmára 17 í Kópavogi. Þeir sem vilja kynna sér frekar meðferðir hjá Heilsu og útliti geta haft samband í síma 562 6969 eða skoðað heimasíðuna, heilsaogutlit.is. Það er góður hiti í klefanum og fólki líður mjög vel í honum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Tækin sem Heilsa og útlit bjóða upp á eru öll viðurkennd heilsutæki sem hafa reynst afar vel og fólk finnur mikinn mun á sér eftir meðferðina. Vacusport var fyrst þróað fyrir geimfara. Tækið reynist vel til að auka blóðflæði og minnka bjúg. Súrefnishjálmur er notaður til afeitrunar og endurnýjunar húðarinnar. Verndar- hjúpurinn hefur slegið í gegn hjá viðskipta- vinum enda býður hann upp á áhrifaríka hita- meðferð. 2 kynningarblað A L LT 30. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.