Fréttablaðið - 30.11.2021, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 30.11.2021, Blaðsíða 36
Gucci er í dag slangur yfir það sem þykir flott. odduraevar@frettabladid.is For maðu r Chelsea-k lúbbsins á Íslandi viðurkennir að það sé ansi gott að vera stuðningsmaður klúbbsins þessa dagana, enda Chel- sea á toppi deildarinnar og einn úr þeirra röðum, Willum Þór Þórsson, orðinn heilbrigðisráðherra. Klúbburinn hefur sent frá sér sér- staka tilkynningu þar sem Willum, sem er leikrýnir klúbbsins, eru færð- ar árnaðaróskir í tilefni af skipan hans í embætti heilbrigðisráðherra. Karl Henrik Hillers, formaður klúbbsins, segir stuðningsfólk Chelsea hæstánægt með innáskipt- inguna og segir þau óska Willum vel- farnaðar í starfi, þegnum landsins til góðs. „Við treystum honum til að skila þessu hlutverki með sóma rétt eins og hlutverki sínu sem leikrýnir,“ segir Karl. Willum hefur mætt í rúm tuttugu ár á aðalfund klúbbsins þar sem horft er á Chelsea-leik í beinni. „Og fyrir leik, í leikhléi og eftir leik fer hann í gegnum liðsskipan og kerfi og rýnir í andstæðinginn og úrslitin,“ segir Karl. Hann viðurkennir að það sé ansi gott að vera Chelsea-maður þessa dagana með Chelsea á toppnum og Willum í brúnni. „Gengið er gott og svo er bara að vona að liðið haldi dampi og að við sleppum við meiðsli og þá hef ég trú á því að við löndum titli eða titlum áður en tímabilið er allt.“ n Chelsea skorar í pólitíkinni Willum Þór, leik- rýnir Chelsea- klúbbsins og nú heilbrigðis- ráðherra, við skyldustörf á klúbbfundi. MYND/CHELSEA KLÚBBURINN Halldór Auðar Svansson varaþingmaður Pírata Nafn nýjasta afbrigðis Covid- 19 er samkvæmt hefðinni sótt í gríska stafrófið en hefur einnig þann skemmtilega vinkil, ef svo má að orði komast um slíka óværu, að það má tengja við hina bráðskemmtilegu teikni- myndaþætti Futurama. „Þessi afbrigði heita náttúru- lega eftir gríska stafrófinu sem er aðferð til að reyna að gera heitin á þeim hlutlaus, frekar en að nefna þau til dæmis eftir stöðum þar sem þau finnast. Það er samt óhjákvæmilegt að það komi alls konar tengingar út frá þessu. Delta þýðir til dæmis oftast breyting á einhverju í stærðfræði og það afbrigði var heldur betur breyting á forsend- unum sem við héldum að ættu við um Covid. Svo er manni eiginlega öllum lokið þegar næsta afbrigði heitir eftir heimaplánetu eins skæðasta óvinar mannkyns í Futurama, átvaglsins Lrrr frá plánetunni Omicron Persei 8. Ekki hægt að taka því öðruvísi en skilaboðum um að þetta versni bara og versni. Reyndar er omíkron líka fimm- tándi stafur gríska stafrófsins en delta bara sá fjórði þannig að það er verið að fara frekar hratt í gegnum þetta stafróf og greini- lega mikið af afbrigðum að þróast. Bara svona til að benda á enn eitt alveg hreint „frábært“ sem þessi stafur er að segja okkur þá er pí næsti stafur á eftir og ég ætla eiginlega að vona að það afbrigði komi aldrei af því það væru alveg klárlega skilaboð um að Covid sé óendanlegt, eins og stærðfræði- fastinn pí.“ n Ógnvaldurinn Lrrr frá Omicron Hljómi Covid- afbrigðið Omíkron kunnuglega er það mögu- lega vegna Futurama og Omicron Persei 8 hvaðan skrímslið Lrrr kemur. n Sérfræðingurinn Ridley Scott fer heldur frjáls- lega með átakasögu Gucci- fjölskyldunnar, að mati sumra, í The House of Gucci. Leikstjórinn og framleiðend- ur myndarinnar standa enda í deilum við meðlimi fjöl- skyldunnar sem hið þekkta tískuhús er kennt við. ninarichter@frettabladid.is The House of Gucci verður frum- sýnd á Íslandi á föstudaginn en óhætt er að segja að hún hafi víða vakið umtal og deilur frá frumsýn- ingu í Bandaríkjunum 24. nóvember. Flestir kannast líklega við ítalska tískuhúsið Gucci. Í poppmenn- ingunni er Gucci orðið eins konar samheiti yfir glamúr og gæði, tilvís- anir í popptextum eru endalausar, rapparinn Gucci Mane kennir sig við merkið og sjálf fína-kryddpían, Victoria Beckham, hampaði tísku- húsinu í hástert á hátindi tónlistar- ferilsins og kynnti merkið fyrir nýrri kynslóð. Orðið sjálft: Gucci, er í dag slangur yfir það sem þykir flott. Þannig má segja að Gucci þurfi líklega hvorki á auglýsingunni að halda, né kæri sig um hana, líkt og komið hefur í ljós. Fyrir lesendur sem ekkert vilja vita um söguþráð myndarinnar kemur hér höskuldarviðvörun. En í myndinni er ævisaga Patriziu Reggi- ani, eiginkonu Maurizio Gucci, erf- ingja Gucci-veldisins, rakin. Hjónin lifðu hátt og bárust á, en skildu árið 1991 og Maurizio hóf samband við aðra konu og seldi hlut sinn í Gucci. Skömmu síðar var hann ráðinn af dögum og var Patrizia í kjölfarið sökuð um að hafa þar átt hlut að máli. Gucci-fjölskyldan ósátt Handritið byggir á bók bandaríska höfundarins Söru Gay Forden frá árinu 2000 en hún starfaði þá sem tískublaðamaður og var búsett í Mílanó meðan á málaferlum stóð. Hún hafði tekið viðtöl við hjónin og þekkti málið vel, en var að auki stödd í Mílanó daginn sem Maur- izio var myrtur. Við vinnslu bókar- innar ræddi Forden við rúmlega 100 manns sem þekktu hjónin, í því skyni að fá sem nákvæmasta mynd af atvikum. Forden starfaði sem handritsráðgjafi við vinnslu myndarinnar. Gucci-fjölskyldan hefur verið harðorð í garð leikstjórans og sakað hann um að notfæra sér ímynd og sögu fjölskyldunnar í gróðaskyni. Hinn 83 ára gamli Ridley Scott svaraði fyrir sig jafnharðan, sagð- ist lítið gefa fyrir þær ásakanir og bað fólk að hafa í huga að Maurizio hefði verið myrtur á meðan annar fjölskyldumeðlimur fór í fangelsi fyrir skattalagabrot, og því þýddi lítið fyrir þau að kvarta yfir gróða- braski. Að um leið og fólk fremdi slíka glæpi yrði saga þess opinber gögn. Lady Gaga eins og Gorbatsjev Leikhópur myndarinnar hefur vakið mikla athygli, en það er amer- íska söngdívan Stefani Germanotta, betur þekkt sem Lady Gaga, sem fer með aðalhlutverkið. Eins og glöggir poppunnendur vita þá er söng- konan af ítölskum ættum. Nokkuð hefur verið rætt um hreiminn sem hún notar í myndinni. Fabio Vass- allo hjá ítalska ríkisjónvarpinu fullyrðir því til stuðnings að hún hljómi eins og Sovétleiðtoginn fyrrverandi Mikhail Gorbatsjev, en í ítölskum eyrum þykir hreimurinn svipa til þess rússneska. Adam Driver og Jared Leto leika önnur aðalhlutverk, en ljósmyndir af hinum síðarnefnda í gervi Paolo Gucci hafa farið eins og eldur í sinu um netheima, en leikarinn er nán- ast óþekkjanlegur. Þá fara Salma Hayek, Al Pacino og Jeremy Irons einnig með hlutverk í myndinni. n Ásakanir um græðgi og Gaga sem Gorbatsjev Lady Gaga og Adam Driver á tökustað House of Gucci. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Patrizia Reggiani í varðhaldi vegna morðsins á Maurizio Gucci. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA CYBER MONDAY Okkar besta tilboð framlengt í 24-tíma! 10% afsláttur af dýnum og tveir Sleepy Original koddar í kaupbæti sleepy.is - Ármúli 17 - sími: 620 7200 24 Lífið 30. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 30. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.