Fréttablaðið - 04.12.2021, Síða 12
Á einum sólarhring
fannst Omíkron í
fimm fylkjum Banda
ríkjanna víðs vegar um
landið.
Smitsjúkdómastofnun Suður-
Afríku telur fyrri sýkingar
Covid-19 ekki veita jafn góða
vörn fyrir Omíkron og fyrri
afbrigðum. Afbrigðið upp-
götvast nú í hverju landinu á
fætur öðru.
gar@frettabladid.is
kristinnhaukur@frettabladid.is
COVID-19 Hættan á því að fá endur-
tekið Covid-smit er þrefalt meiri
þegar hið nýja Omíkron á í hlut
heldur en af fyrri afbrigðum. Þetta
kemur fram í frétt á vef sænska ríkis-
sjónvarpsins, svt.se.
Í frétt svt.se er vitnað til stöðunn-
ar í Suður-Afríku þar sem Omíkron
leikur nú lausum hala og dagleg
Covid-19 smit hafa margfaldast á
fáeinum vikum. Um miðjan nóv-
ember voru smitin 300 talsins á
hverjum degi en eru nú komin upp í
11.500 á dag. Og spár eru sagðar gera
ráð fyrir enn meiri fjölgun smita.
„Við teljum ekki að fyrri smit gefi
vörn gegn Omíkron,“ vitnar sænska
sjónvarpið í Önnu von Gottberg,
sem er prófessor í Suður-Afríku og
lét þessi orð falla á rafrænni ráð-
stefnu.
Þrátt fyrir að vísindamenn eigi
enn sem komið er margt ólært
um Omíkron bendir sænska sjón-
varpið á að menn hafi þegar komist
að þeirri niðurstöðu að af brigðið
sé meira smitandi en þau fyrri og
myndi nú fjórðu bylgju veirunnar.
Smitsjúkadómastofnun Suður-
Afríku les það úr sínum athugunum
að hættan á að þeir sem áður hafi
fengið Covid smitist aftur sé þrefalt
meiri með Omíkron og að jafnvel
þeir sem séu fullbólusettir smitist
af af brigðinu. „En við teljum að
bóluefnin verndi gegn alvarlegum
veikindum,“ tekur Anne von Gott-
berg hins vegar fram.
Omíkron heldur áfram að breið-
ast hratt út. Frá því í gær hafa Finn-
land, Grikkland, Srí Lanka, Malasía
og Singapúr bæst við þau rúmlega 30
lönd sem þegar hafa tilkynnt tilfelli
Omíkron, þrátt fyrir að af brigðið
hafi aðeins verið uppgötvað fyrir
rúmri viku.
Í Bandaríkjunum greindist fyrsta
tilfellið í borginni San Francisco í
Kaliforníufylki í gærmorgun. Sólar-
hring síðar höfðu níu tilfelli greinst
í fjórum öðrum fylkjum, sem ekki
liggja að Kaliforníu. Það er New
York á austur ströndinni, Minnesota
í norðri, Colorado í Klettafjöllum og
Hawaii í Kyrrahafi.
„Höfum það á hreinu að þetta er
ekki ástæða til þess að fara á taug-
um. Við vissum að þetta af brigði
væri á leiðinni og við höfum tólin
til þess að stöðva útbreiðsluna. Látið
bólusetja ykkur, fáið ykkur örvunar-
skammt. Berið grímu,“ tísti Kathy
Hochul, fylkisstjóri New York.
Joe Biden Bandaríkjaforseti
hefur þegar brugðist við Omíkron-
af brigðinu með því að herða eftir-
lit á landamærunum. Frá og með
næstu viku þurfa bæði útlendingar
og Bandaríkjamenn, bólusettir sem
óbólusettir, að fara í sýnatöku dag-
inn fyrir f lug eða sýna vottorð um
nýlega sýkingu.
Utan Suður-Afríku virðist Omík-
ron hafa náð mestri fótfestu í Vestur-
Evrópu og hefur nú fundist þar í
öllum ríkjum með milljón eða fleiri
íbúa. Í Osló smituðust 60 af 125 gest-
um í jólaboði af Covid-19 og líklega
er um Omíkron-smit að ræða, því
eitt hefur verið raðgreint sem slíkt.
Unnið er að smitrakningu en
sérstakt áhyggjuefni er að starfs-
mennirnir búa ekki allir í Osló
heldur nágrannasveitarfélögum.
„Við búumst við f leiri tilfellum og
við gerum það eina sem við getum
gert, að rekja og staðfesta,“ sagði
Caroline Bremer, upplýsingafull-
trúi heilbrigðisstofnunar Osló-
borgar, við bandarísku fréttastof-
una CNN. n
Þrefalt meiri líkur á endursmiti af Omíkron
Joe Biden hefur þegar ákveðið að herða landamæraeftirlit vegna útbreiðslu Omíkron. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
12 Fréttir 4. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ