Fréttablaðið - 04.12.2021, Qupperneq 18
Sif
Sigmarsdóttir
n Mín skoðun
n Gunnar
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is,
FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún
Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Þótti það
vera raun-
verlegur
pólitískur
ómögu-
leiki að
þessar
öfgar
íslenskrar
stjórnmála
myndu
nokkru
sinni
sænga
saman, og
hvað þá
í friði og
makind-
um.
Sagan um
Salómon
konung
hafði engin
áhrif á við-
horf sonar
míns til
gúmmí-
bangs-
anna.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
Um síðustu helgi stóð ég frammi fyrir sið-
ferðilegu álitamáli. Sonur minn fékk poka
af gúmmíböngsum í barnaafmæli. Í stað
þess að klára bangsana strax eins og hin
börnin stakk hann einum í vasann sem
hann hugðist njóta síðar. Þegar heim var
komið reyndist bangsinn týndur. Tjónið olli
óstöðvandi harmagráti. Ég sagðist skyldi
gefa honum nýjan gúmmíbangsa úr poka
sem vildi svo vel til að ég átti inni í skáp. Við-
brögðin urðu önnur en ég átti von á.
Í stað þess að taka gleði sína á ný spurði
sonurinn hvort systir hans, sem einnig var
í afmælinu, fengi líka gúmmíbangsa. Ég
svaraða því játandi. Sá stutti þvertók fyrir
slík málalok. Systir hans hafði borðað alla
bangsana sína. Af hverju átti hún að fá
einum fleiri bangsa en hann sem hafði sýnt
stillingu og treint sér sælgætið?
Ég hótaði því að enginn fengi gúmmí-
bangsa ef hann léti ekki af uppsteytnum. En
drengurinn gaf sig ekki. Það var aðeins eitt í
stöðunni. Að þylja yfir barninu, sem alið er
upp sem heiðingi, eina þekktustu dæmisögu
Biblíunnar.
Salómon konungur Ísraelsríkis var annál-
aður fyrir visku. Toppi ráðsnilldar hans var
náð þegar heimsóttu hann tvær portkonur.
Með sér höfðu konurnar nýfætt barn en
báðar sögðust þær móðir þess. Vildu þær að
konungurinn leysti úr ágreiningi þeirra.
„Færið mér sverð,“ skipaði Salómon. Hann
kvaðst ætla að höggva barnið í tvennt og
skipta því þannig jafnt á milli kvennanna.
Annarri konunni leist vel á lausnina. Hin
bað Salómon að leggja frá sér sverðið, sú
fyrri mætti halda barninu. Við það varð ljóst
hvor kvennanna var móðirin.
Sama dag og sonur minn fékk gefins
gúmmíbangsapoka var ný ríkisstjórn
kynnt á Kjarvalsstöðum. Stjórnmálaskýr-
endur klóruðu sér í höfðinu yfir róttækum
breytingum á ráðuneytum sem bútuð voru
niður og málaflokkum dreift eins og smælki
milli nýrra ráðherra. „Þetta eru óvenjulega
miklar breytingar við stjórnarmyndun,“
sagði Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórn-
málafræði. Ólafur var örlátur í greiningu
sinni og sagðist ekki efast um að hugsun lægi
þarna að baki þótt betri útlistanir vantaði á
hvers vegna þetta var gert.
Fleira vakti upp spurningar um hvatana
á bak við stjórnarmyndunarviðræð-
urnar. Ráðherrastólum var fjölgað um einn.
Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi for-
sætisráðherra, sagði uppátækið ganga þvert
á tillögur í rannsóknarskýrslu Alþingis um
hrunið þar sem mælst var til að ráðuneytum
yrði fækkað. Benti hún á að ríkisstjórn
hennar hefði fækkað ráðuneytum niður í
átta en nú væru þau orðin tólf.
Molar í konfektkassa
Nýr dómsmálaráðherra er Jón Gunnarsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Nú fer að
síga á seinni hlutann á ferli Jóns og líklegt er
að verið sé að verðlauna hann fyrir góðan
stuðning,“ sagði Ólafur Þ. Harðarson. Kaupin
á eyrinni eru þó flóknari en svo.
Þrátt fyrir tólf ráðherrasæti, þrátt fyrir
að ráðherraefnin veldu sér málaflokka úr
sundurtættum ráðuneytum eins og mola
úr jólakonfektkassa, virtust valdsins gæði
ekki nægja til að svala hungri frammáfólks
stjórnmálaflokkanna. Bjarni Benediktsson
brá sér því í gervi Salómons konungs og lagði
til að dómsmálaráðuneytinu yrði skipt á
milli Jóns og flokkssystur hans, Guðrúnar
Hafsteinsdóttur, sem tæki við eftir átján
mánuði. Ólíkt í tilfelli portkvennanna steig
enginn fram og lét sig hagsmuni ráðuneytis-
ins varða. Sverðið fékk að falla.
Sagan um Salómon konung hafði engin
áhrif á viðhorf sonar míns til gúmmíbangs-
anna. Hann kaus eyðileggingu frekar en eftir-
gjöf. Hann hafði þó eitt sér til málsbóta: Hann
er fimm ára. Það sama verður ekki sagt um
forystufólk stjórnmálaflokka landsins. n
Valdsins gæði
Endurnýjuð ríkisstjórn vinstri- og
hægriaflanna á Íslandi, með fulltingi
Framsóknar, máir að vissu leyti burtu
gleggstu og elstu áherslulínurnar í
íslenskri pólitík, á milli kommanna og
íhaldsins, alþýðunnar og efnafólksins, forsjár-
hyggjunnar og einkaframtaksins, ríkisvæð-
ingarinnar og frelsiskröfunnar.
Og það er raunar með hreinum ólíkindum að
þessir tveir flokkar, með fulltingi Framsóknar,
skuli aftur setja netin í sama bát og ætla sér að
sækja sömu miðin á ný, þótt ekki væri nema
sakir blótsyrðanna sem þeir hafa sent hvor
öðrum í ræðustól Alþingis um áratugaskeið
– og nægir þar að minnast rauðþrútins Stein-
gríms J. Sigfússonar á yfirsnúningi ummæla
sinna með samankrepptan Davíð Oddsson að
baki sér, en þá – og það er stutt síðan – þótti
það vera raunverulegur pólitískur ómöguleiki
að þessar öfgar íslenskrar stjórnmála myndu
nokkru sinni sænga saman, og hvað þá í friði og
makindum.
En hvað merkir þetta fyrir íslensk stjórnmál?
Átta ára hjónaband kommanna og íhaldsins,
með fulltingi Framsóknar? Jú, stjórnarand-
staðan mun abbast eitthvað upp á sviðið, af og
til, gáttuð á ráðahagnum, eilítið samstilltari
en áður eftir messufallið hjá Miðflokknum, en
allsendis óvíst er að hún geti boðið betur en
borgaralegu vinstriöflin sem tekið hafa af þeim
völdin, að því er virðist til frambúðar, af því
einfaldlega að málefnalegur styrkur þeirra er
samanlagt ekki sannfærandi.
Og því er líklegra en ekki að landsmenn sitji
uppi með langvarandi moðsuðu þessara ystu
afla íslenskra stjórnmála, með fulltingi Fram-
sóknar, sem kunna að halda völdum á fram-
taksleysinu einu saman. Og hvað þýðir það? Jú,
pólitíkin verður látin í friði. Hennar sér vissu-
lega stað í skiptingu ráðuneyta og á flutningi
verkefna innan Stjórnarráðsins, en þannig er
gert út um pirringinn um stund, en svo verður
einfaldlega sett á sjálfstýringu málamiðlan-
anna.
Og fyrir vikið fá landsmenn sitt lítið af litlu
sem engu, hvorki sterka og framsækna velferðar-
stjórn sem mun hlúa að heilbrigðis- og velferðar-
kerfinu af öllu afli og halda ríka tryggð við ríkis-
hyggjuna og eftirlitið með öllu kviku, né róttæka
hægristjórn sem mun fækka ríkisstarfsmönnum
og leggja niður ríkisfyrirtæki, ellegar gefa hluti
frjálsa sem aðrar þjóðir í kringum okkur líta á
sem sjálfsagt mál.
Við munum fá minni pólitík. Minni Steingrím.
Minni Davíð. Og við munum fá óbreytt ástand á
svo mörgum sviðum, á sjó og landi og lofti. n
Óbreytt stjórn
jackandjones.is
Skyrtur
verð frá
7.990 krPeysur
verð frá
5.990 kr
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 4. desember 2021 LAUGARDAGUR