Fréttablaðið - 04.12.2021, Side 20
20 Íþróttir 4. desember 2021 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 4. desember 2021 LAUGARDAGUR
KR-ingar kvöddu sinn dygg-
asta þjón, Óskar Örn Hauks-
son, í nóvember síðastliðnum.
Einn mesti skemmtikraftur
efstu deildar á Íslandi ætlar að
gleðja stuðningsmenn Stjörn-
unnar með tilþrifum sínum
langt fram á fertugsaldurinn.
FÓTBOLTI Það var í byrjun nóvem-
ber árið 2006 sem Njarðvíkingurinn
Óskar Örn Hauksson gekk til liðs við
KR. Þessi snaggaralegi kantmaður
lék svo sinn fyrsta deildarleik með
KR-ingum sumarið 2007.
Nú, rúmum 14 árum og 18 titlum
síðar, hefur Óskar Örn kvatt Vest-
urbæinn og ætlar að taka slaginn
með Stjörnunni.
Á þessum 14 árum hefur þessi
magnaði fótboltamaður oft fengið
boð frá öðrum félögum og næst var
hann líklegast að venda kvæði sínu
í kross árið 2014 en Bjarni Eggerts
Guðjónsson náði að sannfæra hann
um að fara ekki í FH á þeim tíma.
Árið 2012 lék hann sem lánsmaður
hjá norska liðinu Sandnes Ulf og 2015
hjá Edmonton í Kanada. Þess utan
hefur þessi 37 ára leikmaður haldið
tryggð við Vesturbæjarfélagið.
Í síðasta leik sínum í KR-búningn-
um, í bili hið minnsta, skoraði hann
eitt mark og lagði upp annað í 2-0
sigri á sínum nýja heimavelli í Garða-
bænum, en með þeim sigri tryggði
KR sér sæti í Sambandsdeildinni á
næsta keppnistímabili.
Sumarið 2020, sem fer í sögubæk-
urnar vegna blessaðrar kórónaveir-
unnar, verður þegar fram í sækir
eftirminnilegt fyrir Óskar Örn þar
sem hann skákaði tveimur meist-
urum í sögubók KR-inga.
Þar skaut hann Ellerti B. Schram
ref fyrir rass á listanum yfir marka-
hæstu leikmenn í sögu félagsins og
sameiningartákninu Þormóði Egils-
syni á listanum yfir þá leikjahæstu.
Lætur verkin tala á vellinum
Í takt við hans karakter var Óskar
Örn hógværðin uppmáluð þegar
fjölmiðlamenn freistuðu þess að
hefja hann upp til skýjanna í tilefni
þessara áfanga. Sagði einatt að þetta
væri eitthvað sem væri vert að hugsa
um þegar fótboltaferlinum lyki. Nú
væri bara næsta mál að hala inn stig
með liði sínu.
Óskar Örn er eitt besta dæmi
þess að aldur er bara tala og það
sem skiptir mestu máli er hvernig
leikmenn hugsa um sig. Það hefur
hann sannað með því að standast
mönnum snúning og vel það, orðinn
37 ára gamall.
Næsta áskorun hans er að gera
það áfram til þess er hann verður
39 ára gamall, en hann samdi til
tveggja ára í Garðabænum.
Verður ávallt hlýtt til KR
Óskar Örn sagði í viðtölum við fjöl-
miðla þegar hann var spurður um
viðskilnaðinn við KR, að félagið
myndi ávallt eiga stóran hluta af
hjarta sínu. Stuðningsmenn KR
munu eflaust hugsa hlýtt til Óskars
Arnar þó þeir muni bölva honum
ef hann gerir þeim grikk á nýjum
vettvangi.
Á tíma sínum hjá KR hefur Óskar
Örn þrisvar sinnum orðið Íslands-
meistari, 2011, 2013 og 2019. Þá
hefur hann einnig orðið bikar-
meistari fjórum sinnum með KR-
liðinu. n
Vesturbærinn horfir á
eftir hetju í Garðabæ
Óskar Örn
fagnar einum af
fjórum Íslands-
meistaratitlum
sem hann vann
með KR.
Óskar átti mögnuð ár í Vesturbænum en sítt og fallegt hár hans auk hæfileika sem knattspyrnumanns vöktu alltaf athygli í búningi KR. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Óskar ógnaði iðulega með hraða
sínum og krafti í KR-treyjunni.
Hjörvar
Ólafsson
hjorvaro
@frettabladid.is
14
ára lék Óskar Örn fyrsta
leik í meistaraflokki fyrir
Njarðvík.
3
Íslandsmeistaratitla vann
Óskar Örn með KR.
4
bikarmeistaratitla vann
hann í búningi KR.
348
leikir í efstu deild og
leikjahæstur.
85
mörk í efstu deild og
níundi markahæsti.
296
leikir í efstu deild með
KR og er leikjahæstur í
sögu félagsins.
73
mörk fyrir KR í efstu
deild og er markahæstur
í sögunni.
552
leikir alls fyrir KR og allt í
allt 157 mörk.
29
Evrópuleikir fyrir KR og
tvö mörk.
Hljóðlátur töframaður
Skúli Jón Friðgeirsson,
fyrrverandi leikmaður KR
Þegar Óskar Örn kom fyrst í KR sá
maður fljótlega að þar var á ferð
mjög hæfileikaríkur íþróttamaður,
enda kom það síðan í ljós að hann
var mjög fjölhæfur og í raun góður
í hvaða íþrótt sem er.
Nema þá kannski langhlaupum,
enda kom hann iðulega síðastur á margfrægum
hlaupaæfingum Teits Þórðarsonar. Óskar Örn er
mjög skemmtilegur, en er einn af þeim sem líður
ekkert vel með að þurfa að standa í sviðsljósinu.
Þess vegna fór aldrei neitt sérstaklega mikið
fyrir Óskari í klefanum en hann gaf hópnum ótrú-
lega mikið með því að setja kröfur á æfingum og
sýna fordæmi í því hvernig hann æfði og hugsaði
um sig.
Það átti ekki einungis við um hvað hann gerði
á æfingununum sjálfum heldur var hann alltaf
að og leit íbúðin hans á tímabili frekar út fyrir að
vera líkamsræktarstöð en rými þar sem hann bjó.
Þó að þetta hafi vissulega verið smá pirrandi
fyrir hálf lata leikmenn eins og sjálfan mig þá
setti þetta standard fyrir hópinn, þegar besti
leikmaður liðsins var að leggja þetta á sig fyrir
liðið.
Það eru því ekki bara óteljandi mörk og stoð-
sendingar Óskars Arnar sem hafa hjálpað KR-lið-
inu að sækja titla á tíma hans hjá félaginu, heldur
gerði metnaður hans aðra leikmenn liðsins betri.