Fréttablaðið - 04.12.2021, Síða 20

Fréttablaðið - 04.12.2021, Síða 20
20 Íþróttir 4. desember 2021 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 4. desember 2021 LAUGARDAGUR KR-ingar kvöddu sinn dygg- asta þjón, Óskar Örn Hauks- son, í nóvember síðastliðnum. Einn mesti skemmtikraftur efstu deildar á Íslandi ætlar að gleðja stuðningsmenn Stjörn- unnar með tilþrifum sínum langt fram á fertugsaldurinn. FÓTBOLTI Það var í byrjun nóvem- ber árið 2006 sem Njarðvíkingurinn Óskar Örn Hauksson gekk til liðs við KR. Þessi snaggaralegi kantmaður lék svo sinn fyrsta deildarleik með KR-ingum sumarið 2007. Nú, rúmum 14 árum og 18 titlum síðar, hefur Óskar Örn kvatt Vest- urbæinn og ætlar að taka slaginn með Stjörnunni. Á þessum 14 árum hefur þessi magnaði fótboltamaður oft fengið boð frá öðrum félögum og næst var hann líklegast að venda kvæði sínu í kross árið 2014 en Bjarni Eggerts Guðjónsson náði að sannfæra hann um að fara ekki í FH á þeim tíma. Árið 2012 lék hann sem lánsmaður hjá norska liðinu Sandnes Ulf og 2015 hjá Edmonton í Kanada. Þess utan hefur þessi 37 ára leikmaður haldið tryggð við Vesturbæjarfélagið. Í síðasta leik sínum í KR-búningn- um, í bili hið minnsta, skoraði hann eitt mark og lagði upp annað í 2-0 sigri á sínum nýja heimavelli í Garða- bænum, en með þeim sigri tryggði KR sér sæti í Sambandsdeildinni á næsta keppnistímabili. Sumarið 2020, sem fer í sögubæk- urnar vegna blessaðrar kórónaveir- unnar, verður þegar fram í sækir eftirminnilegt fyrir Óskar Örn þar sem hann skákaði tveimur meist- urum í sögubók KR-inga. Þar skaut hann Ellerti B. Schram ref fyrir rass á listanum yfir marka- hæstu leikmenn í sögu félagsins og sameiningartákninu Þormóði Egils- syni á listanum yfir þá leikjahæstu. Lætur verkin tala á vellinum Í takt við hans karakter var Óskar Örn hógværðin uppmáluð þegar fjölmiðlamenn freistuðu þess að hefja hann upp til skýjanna í tilefni þessara áfanga. Sagði einatt að þetta væri eitthvað sem væri vert að hugsa um þegar fótboltaferlinum lyki. Nú væri bara næsta mál að hala inn stig með liði sínu. Óskar Örn er eitt besta dæmi þess að aldur er bara tala og það sem skiptir mestu máli er hvernig leikmenn hugsa um sig. Það hefur hann sannað með því að standast mönnum snúning og vel það, orðinn 37 ára gamall. Næsta áskorun hans er að gera það áfram til þess er hann verður 39 ára gamall, en hann samdi til tveggja ára í Garðabænum. Verður ávallt hlýtt til KR Óskar Örn sagði í viðtölum við fjöl- miðla þegar hann var spurður um viðskilnaðinn við KR, að félagið myndi ávallt eiga stóran hluta af hjarta sínu. Stuðningsmenn KR munu eflaust hugsa hlýtt til Óskars Arnar þó þeir muni bölva honum ef hann gerir þeim grikk á nýjum vettvangi. Á tíma sínum hjá KR hefur Óskar Örn þrisvar sinnum orðið Íslands- meistari, 2011, 2013 og 2019. Þá hefur hann einnig orðið bikar- meistari fjórum sinnum með KR- liðinu. n Vesturbærinn horfir á eftir hetju í Garðabæ Óskar Örn fagnar einum af fjórum Íslands- meistaratitlum sem hann vann með KR. Óskar átti mögnuð ár í Vesturbænum en sítt og fallegt hár hans auk hæfileika sem knattspyrnumanns vöktu alltaf athygli í búningi KR. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Óskar ógnaði iðulega með hraða sínum og krafti í KR-treyjunni. Hjörvar Ólafsson hjorvaro @frettabladid.is 14 ára lék Óskar Örn fyrsta leik í meistaraflokki fyrir Njarðvík. 3 Íslandsmeistaratitla vann Óskar Örn með KR. 4 bikarmeistaratitla vann hann í búningi KR. 348 leikir í efstu deild og leikjahæstur. 85 mörk í efstu deild og níundi markahæsti. 296 leikir í efstu deild með KR og er leikjahæstur í sögu félagsins. 73 mörk fyrir KR í efstu deild og er markahæstur í sögunni. 552 leikir alls fyrir KR og allt í allt 157 mörk. 29 Evrópuleikir fyrir KR og tvö mörk. Hljóðlátur töframaður Skúli Jón Friðgeirsson, fyrrverandi leikmaður KR Þegar Óskar Örn kom fyrst í KR sá maður fljótlega að þar var á ferð mjög hæfileikaríkur íþróttamaður, enda kom það síðan í ljós að hann var mjög fjölhæfur og í raun góður í hvaða íþrótt sem er. Nema þá kannski langhlaupum, enda kom hann iðulega síðastur á margfrægum hlaupaæfingum Teits Þórðarsonar. Óskar Örn er mjög skemmtilegur, en er einn af þeim sem líður ekkert vel með að þurfa að standa í sviðsljósinu. Þess vegna fór aldrei neitt sérstaklega mikið fyrir Óskari í klefanum en hann gaf hópnum ótrú- lega mikið með því að setja kröfur á æfingum og sýna fordæmi í því hvernig hann æfði og hugsaði um sig. Það átti ekki einungis við um hvað hann gerði á æfingununum sjálfum heldur var hann alltaf að og leit íbúðin hans á tímabili frekar út fyrir að vera líkamsræktarstöð en rými þar sem hann bjó. Þó að þetta hafi vissulega verið smá pirrandi fyrir hálf lata leikmenn eins og sjálfan mig þá setti þetta standard fyrir hópinn, þegar besti leikmaður liðsins var að leggja þetta á sig fyrir liðið. Það eru því ekki bara óteljandi mörk og stoð- sendingar Óskars Arnar sem hafa hjálpað KR-lið- inu að sækja titla á tíma hans hjá félaginu, heldur gerði metnaður hans aðra leikmenn liðsins betri.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.