Fréttablaðið - 04.12.2021, Page 32

Fréttablaðið - 04.12.2021, Page 32
Eftir margra mánaða heimil­ isleysi vegna úrræðaleysis sveitarfélaga og ríkis, fékk Margrét Sigríður Guðmunds­ dóttir, 59 ára, loksins fram tíðar heimili – á hjúkr­ unarheimili. Hún segist hafa þakkað fyrir að komast í varanlegt húsnæði, en óskar engum ungum einstaklingi að búa á hjúkrunarheimili. Margrét Sigríður Guð­ mundsdóttir er eins og fyrr segir 59 ára og hefur búið á hjúkrunarheimili í ár, gegn sínum vilja. Hún greindist með taugasjúkdóminn MS árið 2012 og þarf nú að reiða sig á umönnun annarra í daglegu lífi. „Ég hefði kosið að vera heima hjá mér eða í úrræði úti í bæ, ekki á svona stofnun,“ segir Margrét og telur mjög ólíklegt að einstaklingar í svipuðum sporum velji sjálfir að búa á hjúkrunarheimili. Þurfi framtíðarlausn Fréttablaðið greindi frá því í gær að vaxandi fjöldi ungra fatlaðra ein­ staklinga byggi á hjúkrunarheim­ ilum, sumir, eins og Margrét, gegn vilja sínum. Ríki og sveitarfélög benda hvert á annað þegar kemur að þjónustu þessa hóps. Á höf uðborga r svæðinu og landsbyggðinni búa nú 144 fatl­ aðir einstaklingar, undir 67 ára, á hjúkrunarheimilum. María Fjóla Harðardóttir, varaformaður Sam­ taka fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) og forstjóri Hrafnistu, segir stjórnendur hjúkrunarheimila margoft hafa rætt þessi mál við heilbrigðisráðuneytið og alvarlegar athugasemdir hafi verið gerðar. Hún bendir á að þjónusta hjúkr­ unarheimila sé sniðin að öldruðum og að hjúkrun ungra einstaklinga sé oft f lóknari, bæði líkamlega og andlega, það geti reynt á starfs­ mannahóp hjúkrunarheimila sem sé að stórum hluta ekki með faglega menntun. María Fjóla segir meðaldvalar­ tíma eldri einstaklinga í hjúkrunar­ rými um tvö til þrjú ár. Yngri ein­ staklingar séu líklegri til að dvelja um áratugaskeið. Þá virki kerfið þannig að við komuna á hjúkrunarheimili greiði ríkið daggjöld þangað en hætti að borga allt annað fyrir einstakling­ ana eins og ýmis hjálpartæki, næga sjúkraþjálfun, liðveislu og fleira. Að sögn Maríu Fjólu duga daggjöldin skammt fyrir öllum þeim sérþörf­ um sem yngra fólkið kunni að hafa. Hún telur mikilvægt að unga fólkið fái að halda í ákveðin réttindi, þó það fari á hjúkrunarheimili. María Fjóla segir að ef hjúkrunar­ heimili eigi að vera framtíðarlausn fyrir ungt fólk þurfi að búa til sér úrræði fyrir þann hóp, deildir eða búsetukjarna. Áratugum of snemma Á meðan Margrét lá á spítala í janúar í fyrra tóku Kópavogsbær, þáverandi eiginmaður Margrétar og spítalinn þá ákvörðun að hún færi á hjúkr­ unarheimili. Hún segist sjálf ekki hafa haft neitt um málið að segja. Á meðan Margrét beið eftir plássi dvaldi hún á spítala í sjö mánuði og í hvíldarinnlögn á Droplaugarstöð­ um þess á milli í rúma fjóra mánuði. Í tæpt ár átti hún ekkert heimili og engan langtíma dvalarstað. „Ég átti hvergi heima á tímabili og ég var orðin úrkula vonar.“ Þegar Margréti bauðst loks pláss þakkaði hún fyrir að vera komin í varanlegt húsnæði eftir alla biðina og óvissuna. „Svo þegar maður er kominn þá renna á mann tvær grímur. Þá sér maður að þetta er ekki staður sem ég er til í að eyða næstu 20 til 30 árum á. Sjálfstæðið farið Á hjúkrunarheimilinu fær Mar­ grét alla nauðsy nlega grunn­ umönnun. Annari þjónustu sem er mjög mikilvæg fyrir hana, eins og sjúkraþjálfun og félagsstarfi, er mjög ábótavant. Á meðan Margrét fær ekki viðeigandi sjúkraþjálfun, fer líkamlegri heilsu hennar hratt hrakandi. Athafnir sem f lestir telja sjálf­ sagðar líkt og bað eða sturta nokkrum sinnum í viku er ekki raunveruleiki Margrétar. Hún fær bað einu sinni í viku og hárþvott tvisvar sinnum í viku, en ekki um helgar. „Ég er lærð hágreiðslukona og mín reisn í lífinu er að vera með almennilegt hár en það er ekki hlustað á það.“ Frá árinu 2013 hafði Margrét farið í sjúkraþjálfun þrisvar í viku og sund einu sinni í viku. Þá var hún á dagdeild í MS­setrinu, umvafin félagsskap einstaklinga í svipuðum sporum og hún. Við komuna á hjúkrunarheimili missti hún hins vegar öll þessi réttindi og f leiri. Svörin eru skýr, ríkið borgar ekki fyrir einstaklinga á tveimur stöðum, segir Margrét. Þá sé hún ekki lengur skráð öryrki og fái ekki lengur við­ eigandi hjálpartæki frá ríkinu, þar sem hjúkrunarheimilið á að standa straum af þeim kostnaði. „En þau eru ekki með neitt fjármagn til þess. Þetta eru svo dýr hjálpartæki fyrir fólk í minni stöðu,“ segir Margrét. „Þó að maður þurfi umönnun og alls konar þá þarf ekki að taka af manni sjálfstæðið, maður er gjör­ samlega negldur niður,“ segir Mar­ grét. Skelfist tilhugsunina Margrét er ein í ágætu herbergi á hjúkrunarheimilinu. „Ég er náttúr­ lega þannig að ég er búin að gera þetta mjög huggulegt hjá mér, þótt Áratugum of snemma á hjúkrunarheimili Margrét Sig- ríður er 59 ára og hefur búið á hjúkrunarheim- ili í eitt ár. Fréttablaðið/ Ernir EyjólFsson Bergþóra berst einnig við MS-sjúkdóminn og óttast að enda á hjúkrunarheimili. Fréttablaðið/sigtryggur ari Helena Rós Sturludóttir helenaros @frettabladid.is Það er ekkert skrýtið að makinn gefist upp. Ég hef alveg fullan skilning á því. Margrét Sigríður 32 Helgin 4. desember 2021 LAUGARDAGURFréttablaðið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.