Fréttablaðið - 04.12.2021, Qupperneq 44
Í dag kemur pólski
jólasveinninn
Święty Mikołaj í heim-
sókn á leið sinni frá
Norðurpólnum.
Sigrún Guðnadóttir, for-
stöðumaður bókasafns
Hafnarfjarðar, hefur í nógu
að snúast þessa dagana enda
mikill gestagangur í safninu
sem mun halda upp á eitt
hundrað ára afmæli á næsta
ári.
Sigrún segir að bókasafnið eigi
afmæli næsta haust en nokkrum
stórum og sérstökum viðburðum
verður dreift yfir árið af því tilefni.
Hlýja, ró, fræðsla og gróska, ein-
kenna um þessar mundir þennan
helsta samkomustað margra
kynslóða Hafnfirðinga og boðið
verður upp á fjölbreytta dagskrá
á aðventunni. Jóladagskrá bóka-
safnsins hófst um mánaðamótin.
Margvíslegir viðburðir hafa þegar
farið fram en á miðvikudags-
kvöldið komu rithöfundar og lásu
upp úr bókum sínum. Á meðal
þeirra voru Hallgrímur Helgason
og Kamilla Einarsdóttir, sem bæði
voru tilnefnd sama dag til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna. Arndís
Þórarinsdóttir, rithöfundur og
bókmenntafræðingur, hefur haldið
utan um dagskrána en hún var
jafnframt tilnefnd. „Það var fullt hjá
okkur í sal og margir í streymi líka.
Þetta var mjög skemmtilegt,“ segir
Sigrún.
Í dag kemur pólski jólasveinn-
inn Święty Mikołaj í heimsókn á
leið sinni frá Norðurpólnum til
Póllands og verður smiðja með
hefðbundnu pólsku jólaskrauti og
allir hjartanlega velkomnir. Mjög
Hefur þjónað mörgum kynslóðum
Sigrún Guðna-
dóttir segir að
mikil eftirspurn
sé eftir nýju
jólabókunum í
bókasafni Hafn-
arfjarðar og bið-
listi er kominn
á vinsælustu
bækurnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Ró og næði á
bókasafninu
alla daga þótt
ýmsir stórkost-
legir viðburðir
séu þar á að-
ventunni.
listardeild bókasafna. Boðið er upp
á nútímalega þjónustu enda segir
Sigrún að safnið hafi breyst með
auknum tækniframförum. Í bóka-
safninu er rafbókasafn, fundarými,
netkaffi og hlaðvarpsstúdíó. „Við
höfum þróast í nýjar áttir á undan-
förnum árum, aukið viðburði og
fjölþjóðlegt samstarf,“ segir hún.
„Undanfarið hafa pantanir
streymt inn fyrir nýju jólabækurn-
ar og það hafa myndast biðlistar
á þær vinsælustu, eins og Arnald.
Síðan eru skvísubækur, til dæmis
eftir Jenny Colgan og þess háttar
bækur alltaf mjög vinsælar. Þá er
Guðrún frá Lundi líka eftirsótt. Þótt
aðsóknin sé góð hjá okkur allt árið
eykst hún alltaf fyrir jólin. Það er
mikið um að vera hér í Hafnarfirði
fyrir jólin sem laðar fólk í bæinn og
við finnum fyrir því,“ segir Sigrún
og hlakkar mikið til næsta árs þegar
margt verður um að vera. n
Hægt er að kynna sér starfsemina
á vef bókasafnsins, bokasafn-
hafnarfjardar.is og á Facebook-
síðu safnsins.
margir Pólverjar sækja safnið og
þar er fjölbreytt úrval af pólskum
bókum, jafnt nýjum sem eldri, að
sögn Sigrúnar. Jafnframt er starf-
andi pólskumælandi starfsmaður
á safninu.
Hinn íslenski Kertasníkir kíkir
einnig í bókasafnið í dag og heilsar
upp á börnin. Sönghópurinn Á léttu
nótunum kemur síðan 7. desember
kl. 16.30 og syngur jólalög fyrir
gesti. 14. desember verður sýndar-
veruleiki fyrir alla í safninu og þann
16. desember verður jólamyndin
Die Hard sýnd.
Í bókasafni Hafnarfjarðar er elsta
barnadeild landsins og stærsta tón-
HLÝJAR JÓLAGJAFIR
HANDA ALLRI FJÖLSKYLDUNNI
Verslun | Snorrabraut 56, 105 Reykjavík | 588 0488 | Vefverslun á Feldur.is
6 kynningarblað A L LT 4. desember 2021 LAUGARDAGUR