Heilsuvernd - 01.06.1967, Blaðsíða 7
HúnzamaSur á sjötugsaldri.
Húnzabúar eru hvítir inenn, en um uppruna þeirra veit enginn með
vissu. Sagnir herma, að þeir séu afkomendur grískra liðhlaupa úr her
Alexanders mikla og persneskra eiginkvenna þeirra. En þeir tala mál,
sem virðist ekki líkjast neinni þekktri tungu. I byrjun aldarinnar voru
þeir aðeins um 6 þúsundir, en nú hefir þeim fjölgaö upp í 25 þúsundir.
Land þeirra hefir verið lokað útlendingum, og er svo enn, að sérstakt
leyfi þarf til að ferðast inn í landið eða gegnum það, og eru slík leyfi
mjög torfengin. Húnzamenn hafa farið til útlanda, til mennta eða sem
hermenn. Þá veikjast þeir oft af ýmsum menningarkvillum, þannig að
bersýnilega eiga þeir sjúkdómaleysi sitt heima fyrir ekki meðfæddu
ónæmi að þakka, heldur lifnaðarháttunum.
HEILSUVERND
71