Heilsuvernd - 01.06.1967, Qupperneq 10
saman til leikja, og brú'ðkaup eru haldin hátíðleg. En missætti, sem
upp kann að koma, er jafnað á friðsamlegan hátt. Máske verður síðar
sagt fleira frá siðum þessarar litlu en merkilegu þjóðar hér í ritinu.
Læknafnndur í Hoilsuhæli \U'Í
Laugardaginn 20. maí 1967 hélt Læknafélagið Eir í Reykjavík fund í
Heilsuhæli NLFÍ í Hveragerði. Til fundarins komu tuttugu læknar, og
tók Björn L. Jónsson yfirlæknir á móti þeim, sýndi þeim hælið inni
og úti og skýrði þeim frá starfseminni.
A fundinum, sem stóð frá kl. 17.30 til 19.00, flutti Björn L. Jónsson
erindi um náttúrulækningar og svaraði fyrirspurnum, sem fram komu.
Að fundinum loknum snæddu læknarnir kvöldverð í boði hælisins.
Aukaþing \ l.l'l
Haldið var aukaþing í Náttúrulækningafélagi íslands sunnudaginn 30.
apríl 1967 í Matstofu Náttúrulækningafélags Reykjavíkur að Hótel
Skjaldbreið. Til þingsins var boðið sömu félögum og fulltrúum og til
síðasta landsþings haustið 1965.
Þingið sóttu 15 fulltrúar frá NLFR og 1 frá félaginu á Akureyri.
Áður en þingið hófst kl. 14, snæddu fulltrúarnir hádegisverð í mat-
stofunni í boði NLFÍ.
Forseti NLFI, frú Arnheiður Jónsdóttir, setti þingið og tilnefndi sem
þingforseta Klemens Þórleifsson, en fundarritari var Njáll Þórarinsson.
Eina mál þingsins var erindi frá stjórn NLFR, þar sem farið var
fram á samvinnu eða aðstoð NLFÍ um rekstur matstofunnar. Fram-
sögu um málið höfðu Njáll Þórarinsson, formaður NLFR, og Árni
Ásbjarnarson forstjóri, sem skýrði frá því, að reksturinn hefði ekki
gengið að óskum fram að þessu, en vonir stæðu til, að úr mundi rætast.
Eftir allmiklar umræður, sem allar hnigu í þá átt, að sjálfsagt væri að
halda starfseminni áfram, var samþykkt með atkvæðum allra fulltrúa
að heimila stjórn NLFÍ að veita NLFR lán, til þess að reksturinn
þyrfti ekki að stöðvast vegna skorts á rekstrarfé.
74
HEILSUVERND