Heilsuvernd - 01.06.1967, Blaðsíða 16
Morgun einn, er ég kom á fætur, brá svo við, að Glaður, hundurinn
minn, bærði ekki á sér í bóli sínu, var ákaflega dapurlegur á svip og
rétt aðeins dillaði skottinu, þegar ég klappaði honum. Þegar ég kallaði
til hans með nafni, leit hann á mig sorgmæddum augum, sem virtust
segja biðjandi: „Láttu mig í friði“. Og við létum hann eiga sig, nema
hvað honum var fært vatn og einhver matur, sem hann snerti ekki við
og bragðaði jafnvel varla á vatninu. Og þannig liðu níu dagar. Það var
eftirtektarvert, að þennan tíma var hundurinn mjög andfúll. Honum
var nærvera mín ekki á móti skapi, en hann kærði sig bersýnilega ekki
um, að eg léti vel að honum.
I lok hins níunda dags reis hann loks á fætur, gekk að vatnsskálinni
og lapti svolítið úr henni og rölti síðan út. Hann gekk út á grasblett og
át þar dálítið af ungum grænum blöðum, sem hann valdi með um-
hyggju. Eg tók eftir því, að andfýlan var nú horfin, og hann var farinn
að dilla skottinu eðlilega. Hann hvíldist um stund, en fór svo út aftur
og fékk sér nokkur græn blöð í viðbót og bragðaði lítið eitt á mat, er
ég setti fyrir hann. Daginn eftir reis hann á fætur í dögun, át með góðri
lyst mjólk og annan mat, sem eg færði honum, og trítlaði við hlið mér,
þegar eg fór út á göngu, en var þó sýnilega ekki búinn að ná fullum
kröftum. Síðar um daginn baðaði eg hann, og var hann því bersýnilega
feginn, sofnaði vært í bóli sínu á eftir og var orðinn fullfrískur næsta
dag.
Ein athyglisverð breyting var orðin á Glað. Aður en hann veiktist
hafði harm um skeið verið skapillur við ókunnuga, glepsaði í þá, ef
þeir ætluðu að klappa honum, og þótti grimmur. Nú var hann vingjam-
legur við alla, leyfði ókunnugum að láta vel að sér, eins og hans var
vandi áður.
Þetta minnir mig á mann, sem læknaðist af magasári með þriggja
vikna föstu. Hann hafði áður verið mjög önuglyndur, alltaf í illu skapi,
mjög óþolinmóður og gat ekki þolað börn í kringum sig. Eftir föstuna
var hann gjörbreyttur maður, barngóður og vingjarnlegur við alla, líkt
og Glaður. Slík dæmi þekki eg mörg.
Og hér lýkur sögunni um Glað.
80
HEILSUVERND