Heilsuvernd - 01.06.1967, Side 21
Jurtafæði og aflraunir
Frá 16 ára aldri hefi eg iðkað aflraunir, m. a. þungalyftingar. Eg lifði á
blönduðu fæði til 27 ára aldurs. Þá hætti eg að borða kjöt og fisk, og
síðustu 5 árin hefi eg nærzt á hreinni jurtafæðu, án mjólkurafurða,
nema þegar eitthvað kann að vera af eggjum og mjólk í bökuðum rétt-
um. Eg er nú 36 ára gamall.
Eg get ekki fundið, að heilsu minni hafi hrakað hið minnsta, né held-
ur afli og þoli. Aður en eg hreytti um mataræði, gat eg rétt mig upp
með 1000 punda þunga 100 sinnum á einum klukkutíma, en nú get eg
lyft á þennan hátt sama þunga 106 sinnurn á 45 mínútum. Afl í vöðvum
á handleggjum, hálsi og baki hefir einnig aukizt. Áður notaði eg t .d.
350 pund við aflraunir á beygivöðva upphandleggja, en nú 500 pund.
Og þol hefir einnig vaxið til muna. Þá má geta þess, að áður kvefaðist
eg venjulega nokkrum sinnum á ári, en nú fæ eg mjög sjaldan kvef.
(Ur grein eftir Fred J. Chamberlain í „The British Vegetarian", jan. 1967).
Gróðursetningar- og grasaferð
Stjórn NLFR ákvað á fyrsta fundi sínum eftir aðalfund að fela for-
manni, í samráði við Árna Ásbjarnarson forstjóra, að athuga mögu-
leika á gróðursetningarför í Heilsuhæli NLFl í Hveragerði. Þegar
þetta var ritað, hafði förin verið ákveðin laugardaginn 10. júní.
Einnig hefir verið ákveðið að efna til grasaferðar til Hveravalla eða
Tjarnardala snemma í júlí.
ÍIEILSUVERND
85