Heilsuvernd - 01.06.1967, Síða 22
Á víð og' dreif
Hvíldarhlé í sjónvarpsdagskrám
Læknar hafa vakið athygli á því, og
lagt á það mikla áherzlu, að nauðsyn-
legt sé að skjóta nokkrum hléum inn
í dagskrá sjónvarps, sem er í gangi
klukkustundum saman. Þeim sem sitji
lon og don yfir sjónvarpi heilu kvöldin
eða síðdegin, sé hætta búin af langvar-
andi hreyfingarleysi; auk þess reynir
þetta mjög á augun, og því fylgir einn-
ig andleg áreynsla. Þeir leggja til, að á
eins til tveggja tíma fresti verði höfð
svo sem þriggja mínútna hlé.
(Úr Kneipp-Blátter, jan. 1967).
Getur kofíein valdið vanskapnaði?
Rannsóknir með koffein hafa sýnt, að
það getur haft í för með sér breytingar
á litningum (krómósómum) fruma við
vefjaræktun í tilraunaglasi. Erfðafræð-
ingar hafa bent á, að neyzla koffeins í
kaffi, kóladrykkjum, lyfjum eða á ann-
an hátt kunni að geta valdið vanskapn-
aði og fósturláti.
(Úr International Medical Digest,
des. 1966).
Drengur eða stúlka?
Hversvegna fæðast aðeins drengir í
sumum hjónaböndum, en stúlkur í öðr-
um? Þýzkur læknir, Melzner að nafni,
þykist geta svarað þessari spumingu,
sem svo margir hafa frá fornu fari brot-
ið heilann um. Konur, sem eignast ð-
eins drengi, segir læknirinn að standi
mönnum sínum yfirleitt ofar að and-
legum hæfileikum. Þegar aðeins eða
oftast fæðast stúlkur, er eiginmaðurinn
sterkari aðilinn.
(Reform-Rundschau, des. 1966).
Matarsalt og bensósýra
álíka „eitruð"
Tilraunir á músum með matarsalt
hafa sýnt, að til þess að valda dauða
þarf af því álíka stóran skammt og af
bensósýru, sem löngum hefir verið not-
uð til varnar gegn skemmdum í niður-
soðin matvæli. I stað hennar nota nú
margir sorbinsýru, sem er ekki eins
skaðleg.
(Hippokrates).
Menn nenna ekki lengur að tyggja
Sumir næringarfræðingar óttast, að
tygging sé að leggjast niður. Athuganir
hafa leitt í Ijós, að fólk tyggur mat
sinn minna nú en fyrir 25 árum. Megin-
orsökin er talin vera vaxandi velmegun
og hóglífi og breytt matargerð, sem geri
tyggingu óþarfa. Af öllu þessu leiðir, að
menn hætta að vilja leggja það erfiði
á sig að tyggja. Þetta er heilsuspillandi
fyrir magann, torveldar meltingarstarfið
allt, og næringarefnin úr fæðunni koma
líkamanum ekki að fuUum notum.
(Reform-Rundschau).
86
HEILSUVERND