Heilsuvernd - 01.03.1993, Blaðsíða 25
Vissir þú aðþegar menn brosa nota
þeir 17 andlitsvöðva og ígrettu 43?
eymanudd eða punktanudd sem
Hekla mælir með að sé gert eftir
æfingamar. Þegar klemmt er á
ákveðnum stöðum á eyranum
eykur það blóðrásina í andlitinu
og hefur hvetjandi áhrif á vöðva
í andliti og á hálsi. Eftir á er svo
gott að setja andlitið í kalt vatns-
bað. Síðan er andlitið nuddað
með léttum strokum og svo
slegið á ákveðna punkta til að
örva blóðrás og starfsemi vöðva
enn frekar.
Hekla mælir með því að notað
sé rakakrem frekar en fitukrem.
Hún segir að margar konur auki
notkun á fitukremum eftir þvi
sem þær eldist en slíkt sé á
misskilningi byggt. Of mikið af
feitum kremum þyngir húðina
og togar hana því niður. Það er
miklu betra að auka notkun á
rakakremi því að húðin þornar
upp eftir því sem maður eldist
og þarf því meira á raka en fitu
að halda.
Hekla segir að nauðsynlegt sé
að stunda andlitsleikfimina af
krafti ef maður vill að hún beri
árangur. Hér áður fyrr hafi hún
oft verið þreytt og þrútin í andliti
en með andlitsæfingunum ásamt
punktanuddi, vatnsbaði og
léttum strokum hafi hún komið
í veg fyrir allan þrota og tekist að
láta sér líða ótrúlega vel.
Með réttum kremum og góðum
æfingum er hægt að halda
andlitinu í föstu og góðu formi
rétt eins og líkamanum og eins
og af myndunum sést er Hekla
sjálf lifandi dæmi um árangur
andlitsæfinganna.
Comigator
Dilat Narú Ant.
Dilatator Naris Post.
Depressor Scpti
Orbicularis Oris
Buccinator
Mencalis
Quad. Labii Inf.
Triangularis
VÖÐVARNIR í ANDLITINU
Æfingarnar mióa að því að styrkja vöðva sem liggja upp á við frá
munni, t.d. vöóva sem ganga frá munni út aó eyrum, frá munni
upp að gagnauga og frá munni upp að augum.
Hálsæfingar eru, með aöstoö tungunnar, geróar á vöðvum sem
ganga frá hálsbotni upp á kjálka.
Til þess aó læra andlitsæfingarnar þarf aó ná sambandi við
þessa vöðva, spenna þá rétt og halda spennunni.
25