Heilsuvernd - 01.03.1993, Side 34
frískandi áhrif á húðina og gefur
henni líflegt yfirbragð.
ANDLITSVATN
Seyði úr blóðbergi og maríustakk
saman eða í hvort í sínu lagi er sér-
lega hentugt fyrir húð eldra fólks þar
sem það frískar hana og örvar.
Kamillan, vallhumallinn og morgun-
frúin eru góðar jurtir í andlitsvatn
fyrir allar húðtegundir. Kamillan
hreinsar, kælir, eyðir bólgum og er
bakteríudrepandi en morgunfrúin er
samandragandi, hreinsandi, græðandi
og frískandi. Vallhumallinn er hreins-
andi og styrkjandi.
Fjallagras er gott fyrir þurra húð því
það mýkir hana. Andlitsvatn úr
kamillu eða klóelftingu er sérlega
gott fyrir mjög feita húð. Klóelfting
hefur samandragandi áhrif á húðina.
Grunnuppskrift:
Gott er að setja 2
matskeiðar af einni eða
fleirijurtum í einn bolla
af sjóðandi vatni.
Blandan er látin standa í
15 mínútur eða þar til
hún er orðin volg.
Þegar búið er að hreinsa allan farða
af andlitinu er það skolað með
jurtaskoli og svo með volgu vatni á
eftir. Andlitsvatnið er sett í brúsa og
geymist í 4 - 8 vikur í ísskáp. Æskilegt
er að endurnýja það á 4 - 6 vikna
fresti.
LYKTEYÐANDI
Rósmarín-, blóðbergs- eða kamillute
er sótthreinsandi og eyðir lykt. Gott
er að nudda armkrikana nokkrum
sinnum á dag með klút vættum í
teinu í stað svitakrems.
í BAÐIÐ
Segja má að til séu þrjár mismunandi
aðferðir við að laga jurtabað. í fyrsta
lagi má setja 250 grömm af
þurrkuðum jurtum í fullt baðkar og
láta vatnið renna. Ef baðið á einungis
að vera milt og ilmandi er betra að
hafa aðeins 100 grömm af jurtunum.
í öðru lagi má laga seyði. Jurtirnar
eru þá settar í að minnsta kosti einn
lítra af sjóðandi vatni og látnar malla
í 15 mínútur. Jurtirnar eru látnar
trekkja. Síðan er vökvinn síaður frá
og honum hellt út í baðið.
í þriðja lagi er hægt að setja þurrkaðar
jurtir í léreftspoka og leggja pokann
í baðkarið. Heitt vatn er látið renna í
baðið og pokinn er kreistur við og
við meðan á baðinu stendur.
En hvaða jurtir á að velja í baðið?
Baldursbráin eða kamillan er til
dæmis góð i kvöldbaðið því að hún
sótthreinsar og hefur róandi áhrif.
Vallhumallinn er einnig góður í
baðvatnið því að hann hreinsar,
styrkir og opnar svitaholur. Þá er
blóðberg einnig notað í baðvatn.
í FÓTABAÐIÐ
Kamilla, rósmarín og piparmynta eru
góðar jurtir fyrir þreytta fætur.
Rósmarín og ilmreyr hafa góð áhrif á
verki í fótum en piparmyntan er best
fyrir sveitta og þrútna fætur. Rósmarín
og blóðberg draga úr táfýlu. Fótabað
með jurtum getur verið vörn gegn
ýmsum kvillum. Settur er einn hnefi
af þurrkuðum jurtum í skál og
sjóðandi vatni hellt yfir. Jurtirnar eiga
að liggja í 10 mínútur í vatninu, þá er
vökvinn síaður frá og honum hellt út
i baðið. Ekki er ráðlegt að vera
lengur en 10 mínútur í fótabaði í
senn.
FYRIR NEGLUR
Sumarblómið garðakornblóm, sem
hefur verið algengt hér á landi, er
mjög græðandi. Gott er að leggja
blómin í sjóðandi vatn, láta þau
mýkjast upp og leggja á sprungin
naglabönd eða sprungur á höndum.
Heimildir:
Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir, íslenskar
lækningajurtir, söfnun þeirra, notkun og
áhrif.
Ágúst H. Bjarnason, íslensk flóra með
litmyndum.
Áskell Löve, íslensk ferðaflóra. Jurtabók
AB.
Áskell Löve, íslenskar jurtir.
Björn L. Jónsson, Islenskar lækninga- og
drykkjarjurtir.
Kolbrún Bjömsdóttir, sendibréf til
höfundar.
Stefán Aðalsteinsson og Björn
Þorsteinsson, Blómin okkar.
Steindór Steindórsson, íslensk
plöntunöfn.
Stephanie Faber, Nýja snyrtihandbókin.
Náttúrusnyrtivörur.
Ritgerð: Lífræn ræktun eftir Jónínu
Kristjánsdóttur.