Feykir - 29.04.2020, Blaðsíða 2
Þegar þessi pistill er í smíðum er ég í svo góðu skapi að ég
ætla að biðja Óla Arnar, uppsetjara Feykis, að hafa nýja
mynd af mér með pistlinum, en hann hefur haft öll völd um
það hvaða mynd fylgir hverju sinni. Móðir mín minntist
líka á það við mig í vetur að ég
þyrfti að koma með skárri mynd
af mér og ég verð að bregðast við
því.
Þess vegna talaði ég við Gunnhildi
ljósmyndara sem gerði sitt besta
við að hressa upp á kallinn og
þetta er útkoman, (henni til varnar
skal bent á að hún er ekki í
lýtaaðgerðum). Þessi nýjung á að
vera tákn um betri tíð enda framundan aflétting helstu hafta
í þjóðfélaginu á þessum fordæmalausu tímum, svo ég noti
þann gatslitna frasa.
Og talandi um fordæmalausa tíma þá verð ég að hrósa okkur
Íslendingum fyrir samstöðu og þolinmæði. Þeim verður ekki
nógsamlega þakkað sem staðið hafa í eldlínunni í þessari
baráttu okkar, þríeykið fræga og allir aðgerða- og við-
bragðsaðilar sem komið hafa að verkefninu og svo þau sem
hafa mátt dúsa í sóttkví eða einangrun. Þá eru ótaldar allar
þær sjálfskipuðu Covid löggur sem hjálpa til við að benda á
hvað betur megi fara.
Sumir hafa reyndar farið flatt á of miklum náungakærleik,
misst bæði æru sína og lifibrauð. Ung kona, sem taldi sig vera
þess umkomin að hjúkra veikum á Vestfjörðum, bíður þess
aldrei bætur, svo harkalega var farið með hana í fjölmiðlum.
Sumir telja reyndar að hún hafi átt það skilið þar sem hún
villti á sér heimildir en öðrum fannst óþarfi að slátra henni á
opinberum vettvangi. Svo var það prestur einn sem vildi vara
við téðri konu og upplýsti í viðtali gamlar syndir hennar og
fyrir það var hann sviptur starfi sínu sem héraðsprestur á
Suðurlandi.
Ótalin eru þau fjölmörgu sem hafa þurft að draga saman
seglin í sínum rekstri og jafnvel þurft að rifa þau alveg. Því
fólki og fyrirtækjum ber að þakka fyrir fórnina og vil ég í
lokin hvetja alla, sérstaklega þau sem sæmilega hafa farið út
úr samkomubanni, að hugsa til þess þegar farið verður í
sumarleyfi og geta verslað óhindrað í búðum eða litið á
íþróttaviðburði. Ferðumst innanlands, kaupum glingur og
styrkjum íþróttahreyfinguna. Senn mun byrinn fylla seglin
og þá mun geisa Gammurinn á ný.
Páll Friðriksson
ritstjóri
LEIÐARI
Bráðum kemur betri byr
Handfærabátum sem gera út frá Skaga-
strönd fjölgar þessa dagana þó grásleppu-
veiðin sé enn mest áberandi.
Á Skagaströnd var landað rúmum 154
tonnum í síðustu viku en 27 bátar lögðu þar
upp. Á Sauðárkróki lönduðu 11 skip og bátar
og var heildarafli þeirra rúm 213 tonn. Þrír
bátar lögðu upp á Hofsósi með tæp 19 tonn og
á Hvammstanga landaði einn grásleppubátur
751 kílói.
Heildarafli vikunnar á Norðurlandi vestra í
vikunni sem leið var 386.987 kíló. /FE
Aflatölur 19.– 25. apríl 2020 á Norðurlandi vestra
Handfærabátum fjölgar
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
SAUÐÁRKRÓKUR
Badda SK 113 Grásleppunet 13.500
Drangey SK 2 Botnvarpa 155.291
Fannar SK 11 Grásleppunet 3.216
Hafey SK 10 Grásleppunet 12.621
Kaldi SK 121 Grásleppunet 3.529
Kristín SK 77 Grásleppunet 330
Kristín SK 77 Handfæri 363
Maró SK 33 Handfæri 369
Már SK 90 Grásleppunet 4.192
Steini G SK 14 Grásleppunet 10.832
Straumur EA 18 Grásleppunet 8.946
Alls á Sauðárkróki 213.189
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Handfæri 2.105
Arndís HU 42 Grásleppunet 7.314
Auður HU 94 Grásleppunet 10.167
Bergur sterki HU 17 Grásleppunet 20.681
Blíðfari HU 52 Handfæri 3.313
Blær HU 77 Handfæri 729
Bragi Magg HU 70 Handfæri 5.451
Dagrún HU 121 Grásleppunet 8.319
Elfa HU 191 Grásleppunet 6.698
Fengsæll HU 56 Grásleppunet 11.392
Geir ÞH 150 Þorskfiskinet 13.677
Hafdís HU 85 Grásleppunet 6.998
Hjalti HU 313 Grásleppunet 5.591
Hjördís KU 16 Handfæri 375
Hrund HU 15 Handfæri 1.038
Húni HU 62 Handfæri 4.208
Ísak Örn HU 151 Grásleppunet 3.484
Jenný HU 40 Handfæri 1.220
Kambur HU 24 Grásleppunet 7.910
Kópur HU 118 Handfæri 346
Loftur HU 717 Handfæri 1.346
Már HU 545 Grásleppunet 8.622
Smári HU 7 Handfæri 466
Svalur HU 124 Handfæri 1.730
Sæfari HU 212 Grásleppunet 6.068
Sæunn HU 30 Handfæri 2.095
Þristur BA 36 Plógur 13.000
Alls á Skagaströnd 154.343
HOFSÓS
Njáll ÓF 275 Dragnót 628
Von SK 21 Grásleppunet 11.023
Þorgrímur SK 27 Grásleppunet 7.053
Alls á Hofsósi 18.704
HVAMMSTANGI
Steini HU 45 Grásleppunet 751
Alls á Hvammstanga 751
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Auglýsingastjóri:
Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 585 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 720 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Lærdómssamfélag í skólum í Skagafirði
1.350.000 úr Sprotasjóði
Verkefnið Lærdómssamfélag í skólum í
Skagafirði fékk úthlutað 1.350.000 krónum
úr Sprotasjóði, en honum er ætlað að styðja
við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik-,
grunn- og framhaldsskólum í samræmi við
stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkom-
andi skólastiga. Alls munu 26 verkefni
víðsvegar á landinu hljóta styrki að þessu
sinni en heildarupphæð styrkjanna er
rúmlega 56 milljónir kr. Alls bárust 46
umsóknir um styrki þegar auglýst var fyrr í
vetur og var heildarupphæð þeirra rúmar 155
milljónir kr.
„Umsóknirnar bera vott um þá grósku sem
einkennir íslenskt skólastarf, þarna eru fjölmörg
spennandi verkefni sem án efa munu auðga nám
og tækifæri bæði nemenda og kennara,“ er haft
eftir Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningar-
málaráðherra, á vef ráðuneytisins.
Herdís Á. Sæmundardóttir, sviðsstjóri fjöl-
skyldusviðs Svf. Skagafjarðar, segir styrkinn
tengjast gerð nýrrar menntastefnu sveitar-
félagsins. „Við fórum í mikla vinnu við að gera
nýja menntastefnu sem nær til fleiri en þeirra
skóla sem sveitarfélagið rekur, þ.e Fjölbrauta-
skólans og frístundastarfsins,“ segir Herdís en
víðtækt samráð hafi verið haft við alla aðila
skólasamfélagsins í héraðinu. Menntastefnan
nær til allra barna og ungmenna í Skagafirði frá
upphafi skólagöngu í leikskóla til loka náms í
framhaldsskóla. Áhersla er lögð á að nám barna
og ungmenna eigi sér stað bæði innan skólans
sem og í frístundastarfi og aukna samvinnu
ólíkra skólastiga, skólagerða og frístundar til að
tryggja samfellu í námi.
Við gerð menntastefnunnar voru haldnir
opnir íbúafundir í Sæluviku 2019 þar sem mótun
menntastefnunnar var m.a. unnin. „Við erum að
ljúka vinnunni núna og búið að prenta út en við
ætlum ekki að dreifa henni fyrr en í haust
meðfram innleiðingu hennar í skólana.“ /PF
COVID-19 | Breytingar eftir 4. maí
Heimsóknir leyfðar aftur á HSN
Heimsóknir verða leyfðar á hjúkrunardeildir
HSN á Sauðárkróki og hjúkrunar- og sjúkra-
deild HSN á Blönduósi frá og með næst-
komandi mánudegi, 4. maí, þó með
ákveðnum takmörkunum.
Í tilkynningu til aðstandenda á heimasíðu
stofnunarinnar segir að þó mikið hafi áunnist í
baráttunni gegn COVID-19 sé enn full þörf á að
sýna ýtrustu varkárni og virða sóttvarnaráðstaf-
anir í heimsóknum. Þá er einnig nauðsynlegt að
takmarka þann fjölda sem kemur inn í heimilin
á hverjum tíma. Vonir eru bundnar við að
heimsóknir verði rýmkaðar enn frekar í júní
2020.
Nánari upplýsingar varðandi heimsóknir má
finna á undirsíðum starfsstöðvanna á Blönduósi
og á Sauðárkróki. /FE
2 17/2020