Feykir


Feykir - 19.08.2020, Qupperneq 6

Feykir - 19.08.2020, Qupperneq 6
Saknar íslenska viðhorfsins „þetta reddast“ Nú seilist Feykir yfir til Svíþjóðar og bankar upp á hjá Heru Birgisdóttir lækni sem býr um þessar mundir í Sävedalen sem er hverfi í bænum Partille sem telur um 38 þúsund íbúa. Partille er í næsta nágrenni við Gautaborg sem er stærsta borgin á vesturströnd Svíaríkis, í Vestur-Gautlandi, og er næststærsta borg Svíþjóðar með um 600 þúsund íbúa. „Við erum ca. 10 mínútur að keyra í miðbæ Gautaborgar,“ segir Hera. Hún hefur starfað sem læknir bæði á Sauðárkróki og á Akureyri en er nú á fjórða ári í sérnámi í heimilislækningum. Hún er gift knattspyrnuþjálf- aranum Halldóri Jóni Sigurðs- syni (Donna) og þau eiga þrjú börn; Hrafnhildi Köru 10 ára, Hilmar Rafn 5 ára og Heiðu Lovísu 3 ára. Foreldrar Heru er Króksararnir Birgir Rafn Rafnsson og Hrafnhildur Pétursdóttir. Hvenær og hvernig kom það til að þið fóruð til Svíþjóðar? Ég hafði alltaf hugsað mér að flytja erlendis tímabundið til að taka hluta af sérnáminu þar og snemma var Svíþjóð ofarlega á lista. Donni var líka spenntur að prófa að þjálfa erlendis. Svo fannst okkur þetta kjörið tækifæri fyrir börnin og okkur fjölskylduna að upplifa eitthvað nýtt og læra nýtt tungumál. Við fórum í heimsókn í ágúst í fyrra og góð vinkona mín bauð mér að vera Donni, Hilmar Rafn, Hrafnhildur Kara, Heiða Lovísa og Hera í sænsku sumri. AÐSENDAR MYNDIR ( DAGUR Í LÍFI BROTTFLUTTRA ) oli@feykir.is Hera Birgisdóttir | Króksari í sérnámi í heimilislækningum í Svíþjóð Hversu lengi ertu í kjör- búðina frá heimili þínu? 12 mínútur gangandi og 3 mínútur keyrandi. Hvað færðu þér í staðinn fyrir eina með öllu? McDonalds. Hvað kostar mjólkurlítr- inn? 11 sænskar krónur. Hver er skrítnasti mat- urinn? Verð að segja hátíðarmatur Svía, síld og með því. Hvert ferðu til að gera vel við þig? Spa (Gothia Towers). 5 á 15 sekúndum með sér í vinnunni hálfan dag og ég hitti yfirmanninn og fékk síðan í framhaldinu vinnu þar. Ég vinn á heilsugæslustöð sem heitir Capio Sävedalen og Donni þjálfar U17 ára stráka hjá Örgryte og er að byrja að þjálfa fótbolta í framhaldsskóla sem heitir Katrinelund. Hvernig myndir þú lýsa venjulegum degi hjá þér? Þar sem ég er svo heppin að búa nálægt vinnunni minni þá get ég áfram notast við skagfirska tímaskynið og vakna 7:20. Ég mæti svo í vinnuna kl. 8. Hádegishléð er 30 mínútur og hér koma allir með nesti í vinnuna, hádegismaturinn er ekki greiddur svo vinnudag- urinn er lengri, oftast frá klukkan 8–17. Hér er ég í 80% vinnu og er því stundum búin kl. 14 eða 15. Donni þjálfar seinnipartinn og ég elda kvöldmat. Síðan er börnunum komið í háttinn og næsti dagur undirbúinn. Hver er hápunktur dagsins? Þessa dagana að klára vinnu- daginn, enda dagarnir enn frekar þungir á nýju tungumáli og í nýju heilbrigðiskerfi. Hvað er best við að búa í þínu nýja landi? Klárlega veðrið. Svo er ódýrara að búa hér, barna- bætur fyrir alla (við fáum 4500 sænskar krónur á mánuði með þremur börnum), leikskólar og skólar eru ódýrari. Húsnæðis- lán hagstæð. Fyrir okkur fjöl- skylduna hefur það að flytja hingað gefið okkur meiri tíma saman þar sem við vinnum minna en við gerðum heima. Hvað gerir þú helst í frí- stundum? Við erum dugleg að Donni (efst til vinstri) ásamt strákunum sem hann þjálfar í Gautaborg. 6 31/2020

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.