Feykir


Feykir - 02.09.2020, Blaðsíða 4

Feykir - 02.09.2020, Blaðsíða 4
Hjalti Þórðarson skrifar | Minningar úr göngum Stuttbuxnagöngur í Deildardal Göngur eru skemmtilegur hluti sveitastarfa og árið 2010 voru verulega eftirminnilegar göngur sem hægt er með góðu móti að kalla hitagöngurnar miklu. Þessar línur voru páraðar á blað í minnispunktum um Meira og minna sannar gangnasögur. ...... Ég rölti um á fjallsbrúninni austan við Austurdalinn og var staddur við Seljaskál. Taldi mig vera í nokkuð góðum málum og búinn að fæla flest fé af brúninni og niður í kletta þar undir. Í miðri ánægju minni heyrðust hávær hróp og köll sem færðust heldur nær ef eitthvað var. Síðan kom hópur af fé hlaupandi upp á brúnina og viti menn var ekki hraðfetinn hann Magnús Jóhannesson frá Brekku- koti rétt á eftir þeim. Sá ég í fjar- lægð að Magnús var saltvondur og veifaði öllum skönkum þvílíkt að ætla mátti að hann tækist á loft á hverju augnabliki. Í framhaldinu náðum við að þvæla rollunum niður af brúninni og Magnús á eftir og á hálfri meiri ferð en áður. Nú skyldu rollurnar fara til byggða og ekkert múður. Ég hélt áfram en eftir nokkur skref birtist hópur af roll- um á ný og heldur þrjóskulegar á svipinn. Miðað við atferli, hegðun og framkomu virtust þær ekki líklegar til að fara til byggða alveg strax. Ég ætlaði nú heldur að sýna viðbragð og þjóta fyrir þær en ekki tókst betur til en svo að annar klunnafóturinn rakst í hinn og ég steyptist beint á höfuðið. Ég sá ekki betur en rollunum þætti þetta bráðfyndið, a.m.k. glottu þær við tönn, ulluðu á mig og þutu út í buskann. Ég klöngraðist á fætur, hristi hausinn svo að glamraði í tómarúminu og æddi á eftir hópnum. Nokkru seinna náðist eitthvað af hópnum og eitthvað slapp. Það sem hindraði að allar rollurnar slyppu var stórstígur maður sem leið áfram eins og hraðfara snigill á sterum. Sá ég að þetta var langfetinn Rúnar Páll Hreinsson á Grindum sem fór heldur geyst yfir auðnina á fjallinu eflaust flautandi einhvern lagstúf í leiðinni. Um síðir fóru rollurnar rétta leið, óðu niður Brunnárdalinn og þaðan niður utan við Selhóla í flasið á smalamönnum sem þar voru. Þegar ég stóð upp á svokallaðri Ófæruhyrnu, við hlið Brunnárdals, og horfði á eftir fjárhópnum niður dalinn þá rifjaðist upp fyrir mér göngutúr árið áður með þeim Páli Óskarssyni á Skuggabjörgum og Kristjáni Jónssyni frá Óslandi. Þá var stoppað á sama stað og teknar umræður um hve mikið af fé slyppi í hverjum göngum og héldi sig ofan brúna. Umræðurnar báru nokk- urn keim af orðatiltækinu „til hvers að vera ósammála ef hægt er að vera sammála“ með öfugum for- merkjum. Nánast í túngróðri vildi Páll meina en Kristján taldi landið óttalegt grjót, fleiri tugir vildi Páll meina en Kristján taldi þær örfáar, flestar úr Óslandshlíðinni vildi Páll meina en Kristján taldi þær úr Deildardalnum, meiri blessuð blíð- an vildi Páll meina en Kristján taldi vera of hlýtt. Þegar dagdraumun- um lauk skakklappaðist ég niður á láglendi og hitti á kampakátan, já vel kátan, Loft Guðmundsson á Melstað sem taldi að flestar skját- urnar væru komnar í aðalsafnið en reksturinn gengi ákaflega seint í þessum hita. Nú var mesta erfiðið að baki enda var ég hálfþreyttur og verulega þyrstur. Ekki slæmt að ég hafði vit á því að geyma tvo vel kælda í læk stutt frá..... . Dagarnir 2.-5. september 2010 voru veðurlega alveg einstakir. Logn, sólskin og um og yfir 20 stiga hiti dag eftir dag. Á veðurathug- unarstöðinni á Möðruvöllum í Hörgárdal fór hitinn í 24,9 stig gangnadaginn 4. sept. Það voru því ekki vandræði að vera á stuttbuxum í göngum daginn þann. Ristarhlið á Þjóðvegi 1 ekki fjarlægð Misskilningur um ristarhlið Þau ristarhlið sem Vegagerðin hugðist fjarlægja af Þjóðvegi 1 í Skagafirði og Húnavatnssýslum munu áfram þjóna hlutverki sínu í búfjárveikivörnum landsins. Sigurborg Daðadóttir, yfir- dýralæknir, sagði í samtali við Feyki að um misskilning hefði verið að ræða er starfs- maður MAST heimilaði Vegagerðinni að fjarlægja umrædd ristarhlið. Farið verði í það að fjármagna ný hlið svo hægt verði að uppfylla umferðaröryggi og sjúkdómavarnir. Sigurborg segir að málið eigi dálítinn aðdraganda en Vegagerðin telur, og hafi góð rök fyrir því, að endurnýja þurfi þessi ristarhlið, eins og gert hefur verið í gegnum árin en það kosti peninga sem ekki liggja fyrir. „Þeir viðhaldspeningar, sem fara í varnar- girðingar, hafa ekki verið settir í þessi ristarhlið enda hefur í gegnum tíðina Vegagerðin endurnýjað þessi ristarhlið án þess að við höfum komið að því. En það á samt sem áður ekki að hindra það að þetta sé gert. Þegar Vegagerðin fer að tala um það að fara að fjarlægja þessi hlið þá leggjumst við eindregið gegn því fyrir einu eða tveimur árum síðan með formlegum hætti. Síðan er málið tekið upp aftur núna í vor, og þá er þriðja hliðinu reyndar bætt við sem er við Héraðsvötn, og Vegagerðin setur sig í sam- band við starfsmann sem sér um peninga- málin, greiðslu reikninga. Af einhverjum ástæðum skrifar viðkomandi póst þar sem kemur fram að Vegagerðinni sé heimilað að gera þetta á eigin kostnað, sem er alls ekki álit okkar fagfólksins á því. Það varð þarna ein- hver misskilningur og ég get ekki annað en beðist afsökunar á því,“ segir Sigurborg. Hún fullyrðir að hliðin verði ekki fjarlægð og bætir við að fjórða ristarhliðið sem staðsett er við austurós Héraðsvatna, og til stóð að fjarlægja líka, verði endurnýjað og girðing sem að því liggur verði bætt. „Þannig að það stendur ekki til að fjarlægja nein ristarhlið. Við viljum hafa þetta fjárhelt og munum funda með Vegagerðinni um þessi mál og hvernig best sé að standa að þessu og að fjármunir séu ekki að standa í vegi fyrir umferðaröryggi og sjúkdóma- vörnum.“ /PF Séð inn Austurdal, annan tveggja dala sem tekur við af Deildardal í Skagafirði austanverðum. Hinn dalurinn heitir eðlilega Vesturdalur en á milli þeirra er Tungufjall, hátt og hvasst eins og fleygur. Um dalinn rennur Deildará, sem breytir um nafn er neðar kemur og heitir þá Grafará. Í botni dalsins er Deildardalsjökull. Hjalti Þórðarson rifjar upp göngur sem hann tók þátt í fyrir áratug. Ristarhlið og búfjárveikivarnagirðing við austurós Héraðs- vatna í Skagafirði fyrir um viku síðan. Eins og sést vantar talsvert upp á að hér sé fjárheld girðing en það stendur allt til bóta, að sögn Sigurborgar Daðadóttur, yfirdýralæknis. MYND: PF 4 33/2020

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.