Feykir - 09.09.2020, Page 6
en sumarið eftir er þeir ætluðu
að freista þess að handsama
Jón en gripu þá í tómt. Hins
vegar var Helgu Sigurðardóttur
ekki vært heima að Hólum og
flýði til fjalla ásamt föruneyti.
Í Byggðasögu Skagafjarðar, bls.
159, IV bindi, segir líkur benda
til að hún hafi í fyrstu flúið upp
á Vindárdal á Tjaldeyrum (Sjá
Axlarhaga, bls. 68.) en flutt sig
þaðan í Húsgilsdrag þar sem
engra mannaferða var von og
vel skjólgott. „Espólín segir í
árbókum sínum að með Helgu
hafi verið sonardóttir hennar,
Guðrún Magnúsdóttir, og
höfðu tjald moslitað og voru
með leynd í fjalli nærri Ökrum
er Glóðafeykir heitir. Þangað
var þeim fært það er þær
þurftu og tekið höfðu þær með
sér það sem þær gátu fémætt í
silfri.“
Tíminn afstæður
Sigurður Hansen, menningar-
bóndi á Kringlumýri, hafði
samband við greinarhöfund
og bauð honum með í fyrir-
hugaðan leiðangur og taldi gott
ef svæðismiðillinn væri með
Fylgikona Jóns Arasonar skákaði
dönsku konungsmönnunum
Eins og margir vita urðu örlög
Jóns Arasonar, síðasta kaþólska
biskupsins á Íslandi fyrir
siðaskipti, á þann veg að hann
var tekinn af lífi haustið 1550,
ásamt tveimur sonum sínum í
Skálholti og eru siðaskiptin á
Íslandi gjarnan miðuð við þann
atburð. Á Wikipediu segir að
siðbreytingin hafi þó byrjað
töluvert fyrir líflát Jóns, en
aftakan markað þáttaskil vegna
þess að biskupinn hafði verið
helsti andstæðingur hennar á
Íslandi og þegar hann var úr
sögunni varð miklu auðveldara
að koma breytingum í kring.
„Við siðaskiptin fluttust eignir
kirkjunnar í hendur Dana-
konungs sem tók við stöðu
æðsta manns innan hennar í
stað páfa, ítök Dana á Íslandi
jukust og löggjöf varð strangari,
ekki síst í siðferðismálum,“
segir þar ennfremur.
Forsaga þessa atburðar að
þeir feðgar voru gerðir höfðinu
styttri er margslungin og
merkileg en verður ekki rakin
nánar hér. Lesendur eru hvattir
til að kynna sér þá sögu betur
annars staðar, en þó ber að
nefna að þar sem aftaka Jóns fór
fram svo seint um haust voru
öll skip Danakonungs farin af
landi brott og menn hans því
ekki upplýstir um málið fyrr
Plattinn kominn upp ásamt kassanum góða sem hýsir gestabókina. Kempurnar þrjár, Þórólfur Pétursson, Sigurður Hansen og Ingimar Ingimarsson glaðbeittir
eftir gott dagsverk. MYNDIR: PF
Minningarplatta um Helgu Sigurðardóttur komið fyrir í Húsgilsdragi og skrásetti þann viðburð sem
fram átti að fara í Húsgilsdragi.
Það var auðsótt mál og mætti
ritstjóri með sína frú og tvo
reiðskjóta í Flugumýri, en
þaðan var ferðinni heitið, á
fyrirfram ákveðnum tíma. Satt
best að segja hafði undirritaður
eitthvað misskilið umfang
leiðangursins því hann bjóst
við fleira fjölmiðlafólki og
dágóðum hópi áhugamanna
verkefnisins. Þegar á Flugu-
mýri var komið var engan
mann að finna og runnu á
ritstjóra tvær grímur. Hafði
hann haft samband við Sigurð
fyrr um morguninn til að
fá brottfararstað og -tíma
staðfestan. „Já, við förum
um hádegið,“ segir Sigurður
í símann. „Er það þá tólf eða
eitt?“ „Já, eitthvað svoleiðis,“
var svarið. Ég þorði ekki að
spyrja nánar.
Þar sem ég er nú ekki
þekktur fyrir að mæta of
snemma á fundi eða aðra
viðburði sagði ég við mína
fylgdarkonu, að við skyldum
reyna að vera tímanlega svo
liðið þyrfti ekki að bíða ef
ferðin skyldi hefjast fyrir
klukkan eitt. En þarna vorum
við mætt rétt fyrir áætlaða
brottför og enginn á staðnum
svo ég ályktaði að leiðangurinn
væri farinn af stað. Ég tók
upp símann á ný og hringdi
í Sigurð og spurði frétta. „Nú
ertu kominn?“ spyr hann.
„Við Þórólfur erum enn að
útbúa okkur og Ingimar fór
eftir klyfberatöskunum í Dýr-
finnustaði.“ „Jæja, gott að þið
eruð ekki farnir, við Guðný
dokum eftir ykkur.“
Eftir hálftíma bið áttaði
ég mig á því hve tíminn er
afstæður. Þá renndi Ingimar
Ingimarsson á Ytra-Skörðugili
í hlað og teymdi tvö hross
úr kerru og inn í hesthús og
sagðist svo þurfa að skreppa
til að sækja töskurnar. Það var
þarna sem ég uppgötvaði svo
ekki var um villst að klukka
er ekki látin skaða skemmtun
í þessari sveit. Skömmu síðar
rennur annar bíll í hlað, með
stóra hestakerru í eftirdragi,
og út stíga þeir Sigurður
Hansen og Þórólfur Pétursson
á Hjaltastöðum. Báðir komnir
af léttasta skeiði og miðað við
göngulagið ályktaði ég að ekki
yrði mikið né langt gengið í
þessum leiðangri. Ekki fríkkaði
göngulagið þegar Ingimar
bættist svo í hópinn nokkru
síðar með töskurnar góðu. Með
honum í för var hundurinn Búi
sem lét undarlega á köflum, og
var skýringin sú að hann var
Föstudaginn 28. ágúst var gerður út leiðangur fámenns
hóps áhugamanna um sögu og afdrif Helgu Sigurðar-
dóttur, fylgikonu Jóns Arasonar á Hólum, í Húsgilsdrag
sem staðsett er suðvestur af Flugumýrardal, við suður-
enda Glóðafeykis í Blönduhlíð í Skagafirði. Markmið
leiðangursmanna var að setja upp minningarplatta og
málmkassa fyrir gestabók á stóran stein og gera staðinn
að áhugaverðum viðkomustað.
FRÁSÖGN & MYNDIR
Páll Friðriksson
Klyftöskurnar hengdar á klakka áður en haldið var af stað.
6 34/2020