Feykir - 16.12.2020, Blaðsíða 3
48/2020 3
Þú, lesandi góður, hefur nú í höndum síðasta tölublað
Feykis á árinu 2020, ári sem brátt hefur runnið sitt skeið og
við tekur nýtt ár og nýr áratugur með nýjum viðburðum
og nýjum tækifærum.
Það er líklega að bera í bakkafullan lækinn að ætla að fara að
tíunda sérstöðu ársins sem er að
líða og læt ég það að mestu ógert
hér. Margir munu horfa á dökku
hliðarnar þegar ársins er minnst
og vissulega eiga margir um sárt
að binda vegna atburða þess,
bæði þeir sem hafa þurft að þola
fjárhagslegt tjón og ekki síður
þeir sem hafa orðið fyrir missi
eða heilsutjóni af völdum heims-
faraldursins ógurlega.
Ég er svo heppin að vera ekki
ein þeirra og kýs því að draga
upp jákvæðu hliðarnar á þessu ágæta ári sem skartar svo
fallegu númeri og vissulega er það margt sem kemur upp í
hugann. Í fljótu bragði minnist ég skemmtilegs fjölskyldu-
ferðalags um Suðurland og Austfirði, slóðir sem ég hef ekki
heimsótt lengi. Þar var margt að sjá, bæði staði sem ég hef
ekki heimsótt áður og einnig þekkta ferðamannastaði sem
hafa fengið mikla og góða andlitsupplyftingu síðan ég kom
þar síðast. Nægir þar að nefna stórbætta aðstöðu við
náttúruperlurnar Gullfoss og Geysi og bætta aðkomu við
Hjálparfoss í Þjórsárdal og Fjaðrárgljúfur.
Annað sem ég minnist með ánægju eru mun fleiri
heimsóknir vina og kunningja til okkar hjóna í sveitasæluna
á Ströndum því rétt eins og ég brugðu margir undir sig betri
fætinum og heimsóttu staði sem kannski höfðu verið á lista
lengi en aldrei komist í verk að heimsækja. Staðir eins og
Vestfirðir og Austurland sýndust mér þar ofarlega á lista,
allavega hjá mínum Facebookvinum.
Nú líður að jólum og þá berast virkilega jákvæðar fréttir
af bókaverslun landsmanna en það mun stefna í metár í
bóksölu. Það eru nú aldeilis góðar fréttir, ekki síst á tímum
þar sem óttast er um afdrif bókarinnar og ekki síður
íslenskrar tungu. Við skulum bara vona að þær bækur sem
lenda í jólapökkum landsmanna verði flestar lesnar. Þá má
nefna að mikil sprenging hefur orðið í sölu spila eins og
fjallað var um í sjónvarpsfréttum helgarinnar. Það segir
okkur að fólk kann enn að njóta samvista yfir skemmtilegri
afþreyingu sem sameinar fjölskyldur og vini. Ekki spillir svo
fyrir að nú geta vinirnir spilað margs konar spil gegnum
netið þó ekki sé gerlegt að hittast í eigin persónu.
Ég óska lesendum gleðilegra jóla
og gæfu og gengis á nýju ári.
Fríða Eyjólfsdóttir, blaðamaður
LEIÐARI
Margs er góðs að minnast Færir skólunum í Skagafirði
hátæknibúnað að gjöf
Kaupfélag Skagfirðinga
Kaupfélag Skagfirðinga færði
á dögunum grunnskólunum á
Hofsósi, í Varmahlíð og á
Sauðárkróki ásamt
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra, hátæknibúnað, til
örvunar nýsköpunar, að gjöf.
Hver skóli fékk afhenta nýjustu
útgáfu af háþróuðum þrí-
víddarprentara frá Maker-Bot
af gerðinni MakerBot Repli-
cator+ ásamt þrívíddarfor-
ritunum MakerBot Print og
MakeBot Mobile. Prentararnir
eru framleiddir í Bandaríkjun-
um en mikil framþróun hefur
átt sér stað í þróun þrívíddar-
prentara á síðustu árum.
Herdís Á. Sæmundardóttir,
varaformaður stjórnar KS,
Guðrún Sighvatsdóttir stjórnar-
maður hjá KS, Ingileif Odds-
dóttir stjórnarmaður hjá FISK
Seafood ásamt Bjarna Marons-
syni stjórnarformanni KS af-
hentu skólunum þessa höfðing-
legu gjöf.
Markmiðið með gjöfinni er
að vekja áhuga nemenda og
skapa þeim tækifæri til að vinna
með nýjustu tækni á þessu sviði.
Að mati forsvarsmanna KS og
Frá afhendingu gjafanna í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Frá vinstri: Ingileif
Oddsdóttir, skólameistari FNV, Kristján B. Halldórsson, áfangastjóri, Guðrún Sig-
hvatsdóttir sem afhenti gjöfina f.h. stjórnar KS, Þorkell V. Þorsteinsson, aðstoðar-
skólameistari, Gunnar Gestsson og Hjörtur Geirmundsson, stjórnarmenn KS. MYND: FE
Tveir í einangrun á Norðurlandi vestra
COVID-19 | Höldum vöku okkar áfram
Fjögur ný kórónuveirusmit greindust
innanlands sl. sunnudag og voru allir
einstaklingarnir í sóttkví við greiningu.
Tveir þeirra greindust við sóttkvíarskimun
og tveir við einkennaskimun. Allir voru í
sóttkví við greiningu.
Á upplýsingafundi almannavarna sl. mánudag
sagði Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, að
útlit sé fyrir að við séum að komast út úr þessari
bylgju en lítið megi þó út af bregða til að ekki
komi afturkippur í faraldurinn. Hann segir enn-
fremur ástæðu til að hvetja alla sem finni fyrir
minnstu einkennum til að fara í sýnatöku og
halda sig heima þar til niðurstaða fæst úr henni.
Í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna
á Norðurlandi vestra kemur fram að nú eru tveir
aðilar í einangrun á svæðinu og tveir eru í sóttkví.
Tekið er fram að báðir aðilar voru í sóttkví er þeir
greindust og hvorugt tilfellið er tilkomið vegna
smits í umdæminu. /PF
skólayfirvalda er mikilvægt að
gefa nemendum færi á að vinna
með og læra á tækni sem er hluti
af fjórðu iðnbyltingunni.
Óskar Björnsson, skólastjóri
Árskóla, sagði við þetta tækifæri:
„Þessi höfðinglega gjöf gefur
okkur gríðarlega marga mögu-
leika. Þetta tæki mun efla fjöl-
breytni í námi, nýsköpun, skap-
andi vinnu, tæknilausnir,
smíðar o.fl.
Það verður áskorun til okkar
sem störfum í Árskóla að læra á
tækið þannig að það nýtist
nemendum okkar sem best.
Þetta gerir okkur vonandi kleift
að búa nemendur okkar betur
fyrir framtíðina. Fyrir hönd
skólasamfélagsins í Árskóla færi
ég Kaupfélagi Skagfirðinga og
dótturfyrirtækjum bestu þakkir
fyrir þessa einstöku gjöf sem og
stuðninginn gegnum árin.“
Sveitarstjóri Sveitarfélagsins
Skagafjarðar, Sigfús Ingi Sigfús-
son, svo og skólastjórnendur
færa Kaupfélagi Skagfirðinga
sérstakar þakkir fyrir stórhöfð-
inglega gjöf sem ber vott um
framsýni forsvarsmanna fyrir-
tækisins, en Kaupfélag Skagfirð-
inga hefur stutt skólasamfélag-
ið í Skagafirði myndarlega á
undangengnum árum með
ýmsum hætti, sem vakið hefur
verðskuldaða athygli, bæði í
héraði og utan héraðs. /FE
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Sigríður Garðarsdóttir siggag@nyprent.is
Klara Björk Stefánsdóttir klara@nyprent.is
Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 585 kr. hvert tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 720 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Silver Bergen með rúm 888 tonn af rækju
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Viðey RE 50 Botnvarpa 199.254
Alls á Sauðárkróki 1.512.515
SKAGASTRÖND
Addi afi GK 97 Landbeitt lína 14.171
Auður HU 94 Landbeitt lína 7.513
Bergur Sterki HU 17 Landbeitt lína 6.163
Dagrún HU 121 Handfæri 2.766
Hafrún HU 12 Dragnót 27.280
Onni HU 36 Dragnót 23.282
Sæfari HU 212 Landbeitt lína 10.079
Viktoría HU 10 Handfæri 654
Alls á Skagaströnd 91.908
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 2.201
Alls á Hvammstanga 2.201
SAUÐÁRKRÓKUR
Akurey AK 10 Botnvarpa 143.513
Drangey SK 2 Botnvarpa 121.894
Málmey SK 1 Botnvarpa 143.852
Onni HU 36 Dragnót 13.205
Silver Bergen NO 999 Rækjuvarpa 887.737
Skvetta SK 7 Handfæri 1.359
Steini G SK 14 Þorskfisknet 1.701
Í síðustu viku var 1.606.624 kílóum af fiski landað á Norðurlandi vestra. Á Skagaströnd
lönduðu átta bátar samtals rúmum 92 tonnum og var Hafrún HU 12 aflahæst með tæp 27 tonn.
Tæpum 1.513 tonnum var landað á Sauðárkróki og þar munaði mestu um að Silver Bergen kom
með tæp 888 tonn af rækju. Enginn bátur landaði á Hofsósi en á Hvammstanga landaði einn
bátur, Harpa HU 4, 2,2 tonnum. /SG
AFLATÖLUR | Dagana 6. til 12. desember 2020 á Norðurlandi vestra