Feykir


Feykir - 16.12.2020, Blaðsíða 22

Feykir - 16.12.2020, Blaðsíða 22
22 48/202018 Gleðileg jól og farsælt komandi ár með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða. Jólakveðja - Árni og Sigga Starfsfólk á Heilbrigðisstofnun Norðurlands semdir Norðlendingum og landsmönnum öllum hugheilar óskir um gleðileg jól, góðu heilsu og farsæld á nýju ári. ný pr en t e hf | 1 12 02 0 Styrkjum búsetu á landsbyggðinni AÐSENT | Ásmundur Einar Daðason skrifar Árið 2020 hefur verið mjög sérstakt fyrir okkur öll og sennilega eru margir fegnir því að það renni nú bráðum sitt skeið. Ég er sannfærður um að 2021 verði okkur betra og það eru mjög jákvæð teikn á lofti að svo verði. Þegar ég horfi yfir árið 2020 og þau verkefni sem við í félagsmálaráðu- neytinu höfum verið að vinna, horfi ég til baka stoltur en árið litaðist að mörgu leyti af viðbrögðum við heimsfar- aldri Covid-19. Ég er hins vegar mjög ánægður og stoltur af því að hafa náð að koma þremur stórum bar- áttumálum mínum á dagskrá þrátt fyrir aðstæður í heiminum en þau eiga það öll sameiginlegt að styrkja búsetu á landsbyggðinni. Aukinn kraftur í húsnæðismál á landsbyggðinni Í byrjun september var frumvarp mitt um hlutdeildarlán samþykkt en þar erum við að stíga myndarlegt skref til þess að aðstoða ungt fólk og tekjulága inn á fasteignamarkaðinn. Hlutdeildarlánin munu hafa mikil og jákvæð áhrif á fasteignamarkað á lands- byggðinni sem hefur víða verið nálægt frostmarki undanfarna áratugi, en eitt að markmiðunum með þeim er að styrkja það sem kallað hefur verið köld markaðs- svæði. Þá er gaman að sjá kraftinn í framkvæmdum víða um land sem fjár- magnaðar eru með stofnframlögum, sérstöku byggðarframlagi og lánum frá HMS, aðgerðir sem samþykktar voru í fyrra. Mér telst til að alls séu 89 íbúðir í byggingu eða undirbúningi víða um land þar sem byggingaraðilar nýta sér þessi úrræði, má þar nefna tólf íbúðir á Húsa- vík, tíu íbúðir í Bolungarvík, átta íbúðir á Vopnafirði og fjórar á Borgarfirði eystri. Sérstakur styrkur til barnshafandi einstaklinga sem búa fjarri þjónustu Annað stórt mál sem ég er stoltur af eru ný lög um fæðingarorlof en samkvæmt nýju lögunum er fæðingarorlofið lengt í tólf mánuði, en lögin taka gildi 1. janúar 2021. Sjálfstæður réttur hvors foreldris um sig verður sex mánuðir en foreldrum verður heimilt að framselja einn mánuð sín á milli, og því getur annað foreldrið tekið fæðingarorlof í sjö mánuði en hitt í fimm. Ég er mjög ánægður með aukin réttindi fyrir fólk á landsbyggðinni sem býr oftar en ekki fjarri þjónustunni og þarf oft að dvelja fjarri heimili sínu, fyrir áætlaðan fæðingardag, í tengslum við nauðsynlega þjónustu vegna fæðingar barnsins. Með nýju lögunum komum við til móts við þessa hópa og barnshafandi foreldri verð- ur veittur sérstakur styrkur vegna skerts aðgengis að fæðingarþjónustu í þeim tilvikum þegar það þarf að mati sérfræði- læknis að dvelja fjarri heimili sínu. Breyting í þágu barna Síðast en ekki síst er ég gríðarlega stoltur af þremur frumvörpum sem ég hef lagt fram á Alþingi og miða að því að breyta kerfinu okkar í þágu barna. Allt frá því ég tók við ráðherraembætti hefur forgangsverkefni mitt verið að bæta enn frekar hvernig við þjónustum börn og fjölskyldur þeirra. Í víðtæku samráði og samstarfi fjölmargra aðila, leikinna, lærðra, innan þings og utan, hefur verið unnið að því í hartnær þrjú ár að smíða undirstöður undir kerfi sem tryggir að börn og fjölskyldur þeirra falli ekki á milli kerfa. Verkefnið er risavaxið og felur sennilega í sér einhverjar mestu breytingar sem gerðar hafa verið á umhverfi barna á Íslandi í áratugi. Að lokum óska ég ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og vona að þið njótið hátíðanna með ykkar nánustu. Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamála ráðherra Rakel Ósk Sævarsdóttir 4 ára Hvað getur þú sagt mér um jólasveina? Þeir eru stundum að syngja í fjöllunum. Hvað langar þig að fá í jólagjöf? Amma ætlar að gefa mér Barbiedúkku. Ef þú myndir hitta jólasveininn hvað myndirðu segja honum? Ég er búin að gefa einum jólasveini snudduna mína, ég man ekki hvað hann heitir. Hvað gerir þú í jólafríinu? Fer til ömmu og afa í Mývatnssveit og hitta jólasveina. Hvað heldur þú að jólasveininn langi að fá í jólagjöf? Playmo. Gaf sveinka snudduna b Krakkarnir í Ársölum svara jólaspurningum Kristberg Máni Jónasson 4 ára Hvað getur þú sagt mér um jólasveina? Þeir gefa kartöflur ef maður er óþekkur en ef maður er ekki óþekkur þá fær maður eitthvað dót í skóinn. Af hverju höldum við jólin? Nú af því þá koma jólasveinar. Hvað langar þig að fá í jólagjöf? Bara eitthvað... eina vélkisu og vélgröfu og með fjarstýringu og ég veit ekki hvað meira. Ef þú myndir hitta jólasveininn hvað myndirðu segja honum? Ég heiti Kristberg og ég ætla að kaupa mér gröfu með enga fjarstýringu.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.