Feykir - 16.12.2020, Page 22
22 48/202018
Gleðileg jól og
farsælt komandi ár
með þökk fyrir viðskiptin
á árinu sem er að líða.
Jólakveðja - Árni og Sigga
Starfsfólk á
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
semdir Norðlendingum og
landsmönnum öllum
hugheilar óskir um gleðileg jól,
góðu heilsu og farsæld á nýju ári.
ný
pr
en
t e
hf
|
1
12
02
0
Styrkjum búsetu á landsbyggðinni
AÐSENT | Ásmundur Einar Daðason skrifar
Árið 2020 hefur verið mjög sérstakt
fyrir okkur öll og sennilega eru margir
fegnir því að það renni nú bráðum sitt
skeið. Ég er sannfærður um að 2021
verði okkur betra og það eru mjög
jákvæð teikn á lofti að svo verði.
Þegar ég horfi yfir árið 2020 og þau
verkefni sem við í félagsmálaráðu-
neytinu höfum verið að vinna, horfi ég
til baka stoltur
en árið litaðist
að mörgu leyti
af viðbrögðum
við heimsfar-
aldri Covid-19.
Ég er hins
vegar mjög
ánægður og
stoltur af því
að hafa náð að
koma þremur
stórum bar-
áttumálum mínum á dagskrá þrátt
fyrir aðstæður í heiminum en þau eiga
það öll sameiginlegt að styrkja búsetu á
landsbyggðinni.
Aukinn kraftur í húsnæðismál á
landsbyggðinni
Í byrjun september var frumvarp
mitt um hlutdeildarlán samþykkt
en þar erum við að stíga myndarlegt
skref til þess að aðstoða ungt fólk og
tekjulága inn á fasteignamarkaðinn.
Hlutdeildarlánin munu hafa mikil og
jákvæð áhrif á fasteignamarkað á lands-
byggðinni sem hefur víða verið nálægt
frostmarki undanfarna áratugi, en eitt að
markmiðunum með þeim er að styrkja
það sem kallað hefur verið köld markaðs-
svæði. Þá er gaman að sjá kraftinn í
framkvæmdum víða um land sem fjár-
magnaðar eru með stofnframlögum,
sérstöku byggðarframlagi og lánum frá
HMS, aðgerðir sem samþykktar voru í
fyrra. Mér telst til að alls séu 89 íbúðir í
byggingu eða undirbúningi víða um land
þar sem byggingaraðilar nýta sér þessi
úrræði, má þar nefna tólf íbúðir á Húsa-
vík, tíu íbúðir í Bolungarvík, átta íbúðir á
Vopnafirði og fjórar á Borgarfirði eystri.
Sérstakur styrkur til
barnshafandi einstaklinga
sem búa fjarri þjónustu
Annað stórt mál sem ég er stoltur af eru ný
lög um fæðingarorlof en samkvæmt nýju
lögunum er fæðingarorlofið lengt í tólf
mánuði, en lögin taka gildi 1. janúar 2021.
Sjálfstæður réttur hvors foreldris um sig
verður sex mánuðir en foreldrum verður
heimilt að framselja einn mánuð sín á
milli, og því getur annað foreldrið tekið
fæðingarorlof í sjö mánuði en hitt í fimm.
Ég er mjög ánægður með aukin réttindi
fyrir fólk á landsbyggðinni sem býr oftar
en ekki fjarri þjónustunni og þarf oft að
dvelja fjarri heimili sínu, fyrir áætlaðan
fæðingardag, í tengslum við nauðsynlega
þjónustu vegna fæðingar barnsins. Með
nýju lögunum komum við til móts við
þessa hópa og barnshafandi foreldri verð-
ur veittur sérstakur styrkur vegna skerts
aðgengis að fæðingarþjónustu í þeim
tilvikum þegar það þarf að mati sérfræði-
læknis að dvelja fjarri heimili sínu.
Breyting í þágu barna
Síðast en ekki síst er ég gríðarlega stoltur
af þremur frumvörpum sem ég hef lagt
fram á Alþingi og miða að því að breyta
kerfinu okkar í þágu barna. Allt frá
því ég tók við ráðherraembætti hefur
forgangsverkefni mitt verið að bæta
enn frekar hvernig við þjónustum börn
og fjölskyldur þeirra. Í víðtæku samráði
og samstarfi fjölmargra aðila, leikinna,
lærðra, innan þings og utan, hefur verið
unnið að því í hartnær þrjú ár að smíða
undirstöður undir kerfi sem tryggir að
börn og fjölskyldur þeirra falli ekki á
milli kerfa. Verkefnið er risavaxið og
felur sennilega í sér einhverjar mestu
breytingar sem gerðar hafa verið á
umhverfi barna á Íslandi í áratugi.
Að lokum óska ég ykkur öllum
gleðilegra jóla og farsældar á komandi
ári og vona að þið njótið hátíðanna með
ykkar nánustu.
Ásmundur Einar Daðason
félags- og barnamála ráðherra
Rakel Ósk Sævarsdóttir 4 ára
Hvað getur þú sagt mér um jólasveina? Þeir eru stundum að syngja í
fjöllunum. Hvað langar þig að fá í jólagjöf? Amma ætlar að gefa mér
Barbiedúkku. Ef þú myndir hitta jólasveininn hvað myndirðu segja
honum? Ég er búin að gefa einum jólasveini snudduna mína, ég man
ekki hvað hann heitir. Hvað gerir þú í jólafríinu? Fer til ömmu og afa
í Mývatnssveit og hitta jólasveina. Hvað heldur þú að jólasveininn
langi að fá í jólagjöf? Playmo.
Gaf sveinka snudduna
b Krakkarnir í Ársölum svara jólaspurningum
Kristberg Máni Jónasson 4 ára
Hvað getur þú sagt mér um jólasveina? Þeir gefa kartöflur ef
maður er óþekkur en ef maður er ekki óþekkur þá fær maður
eitthvað dót í skóinn. Af hverju höldum við jólin? Nú af því
þá koma jólasveinar. Hvað langar þig að fá í jólagjöf? Bara
eitthvað... eina vélkisu og vélgröfu og með fjarstýringu og ég veit
ekki hvað meira. Ef þú myndir hitta jólasveininn hvað myndirðu
segja honum? Ég heiti Kristberg og ég ætla að kaupa mér gröfu
með enga fjarstýringu.