Feykir


Feykir - 16.12.2020, Blaðsíða 4

Feykir - 16.12.2020, Blaðsíða 4
4 48/2020 Sjö tilnefndir að þessu sinni b Tilnefningar til Manns ársins 2020 á Norðurlandi vestra Feykir stendur fyrir kjöri á manni ársins á Norðurlandi vestra líkt og gert hefur verið undanfarin ár. Íbúum á svæðinu og öðrum lesendum Feykis gefst kostur á að velja úr hópi þeirra sem tilnefndir voru af lesendum. Í þetta skiptið bárust tilnefningar um sjö einstaklinga. Hægt verður að greiða atkvæði á vefnum Feyki.is eða senda atkvæði í pósti á Feykir, Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur. Kosningin hefst kl. 13 á fimmtudaginn, 17. desember, og lýkur á miðnætti á nýársdag, 1. janúar. Tilnefndir eru, í stafrófsröð: Andri Páll Guðmundsson HVAMMSTANGA Andri Páll er tilnefndur fyrir framlag sitt til íslenskrar matargerðar, þá sérstaklega fyrir laufabrauðstacoið sem hann bjó til. Andri vakti athygli á sam- félagsmiðlum á dögun- um fyrir nýstárlega útgáfu af laufabrauði sem hann bakaði í ofni til að ná fram taco-forminu. Brauðið fyllti hann svo með hangikjötshakki, heitu rauðkáli, grænbaunasalsa og uppstúf og kreisti mandarínu yfir í lokin. Bryndís Rut Haraldsdóttir SAUÐÁRKRÓKI Bryndís er fyrirliði kvennaliðs Tindastóls sem sigraði Lengju- deild kvenna með miklum glæsibrag í sumar. Þar fór Bryndís UMSJÓN Fríða Eyjólfsdóttir fyrir sínu liði í hjarta varnarinnar sem fékk aðeins á sig sjö mörk í 17 leikjum. Í tilnefningu segir að Bryndís Rut hafi verið jákvæð og hugrökk, stjórnað sínu liði með góðu fordæmi og talanda og vart stigið feilspor á vellinum. Hún er fyrsti fyrirliði knattspyrnuliðs í sögu Tindastóls sem leiðir lið sitt upp í efstu deild. Karólína Elísabetardóttir HVAMMSHLÍÐ, AUSTUR- HÚNAVATNSSÝSLU Karólína býr afskekkt upp til fjalla í Norður- árdal austan Þverár- fjalls. Karólína hefur vakið athygli fyrir að vera dugleg að bjarga sér og í tilnefningu segir að hún standi sig eins og hetja við mjög sérstakar aðstæður. Meðal þess sem Karólína hefur tekið sér fyrir hendur er að gefa út dagatöl með myndum af dýrunum á bænum í forgrunni og hafa þau notið mikilla vinsælda. Lilja Gunnlaugsdóttir ÁSHILDARHOLTI, SKAGAFIRÐI Lilja starfar sem læknaritari við HSN á Sauðárkróki. Í tilnefningu segir að Lilja hafi á aðdáunarverðan hátt byggt upp líf sitt við breyttar aðstæður eftir að hafa gengið í gegnum mikla erfiðleika undanfarin ár. Lilja skrifaði og gaf í haust út bókina Dagbókin mín sem unnin er eftir hug- myndum um jákvæða sálfræði. Einnig hefur hún skrifað blogg um það hvernig er að lifa með sorginni og hafa bæði bókin og bloggið hjálpað mörgum. Sveinn Margeirsson FRÁ MÆLIFELLSÁ Í SKAGAFIRÐI Sveinn er tilnefndur fyrir baráttu sína fyrir málefnum sauðfjárbænda og að hafa reynt að hrista upp í „algjör- lega stöðnuðu kerfi“ eins og segir í tilnefn- ingu. Sveinn var kærð- ur fyrir að selja heima- slátrað kjöt á bænda- markaði Matís á Hofsósi haustið 2018 og í kjölfar þess kærði Matvælastofnun hann og Matís sagði honum upp störfum sem forstjóra fyrirtækisins. Á haustdögum var Sveinn sýknaður í Héraðsdómi Norðurlands vestra. „Margir eru efins um að aðrir opin- berir starfsmenn hafi lagt eins mikið af mörkum til að þoka málum í rétta átt eins og Sveinn Margeirsson hefur gert. Hann á heiður skilinn fyrir dugnað sinn og elju við að berjast fyrir lífsafkomu heillar starfs- stéttar,“ segir í tilnefningu. Valdimar Guðmannsson BLÖNDUÓSI Valdimar fær tilnefningu fyrir þrotlausa og óeigingjarna vinnu hans fyrir kirkju- garðinn á Blönduósi og dugnað og hvetjandi framkomu fyrir sitt samfélag. „Valdimar hefur verið gríðarlega öflugur og í fararbroddi í endur- bótum við kirkjugarð- inn á Blönduósi og lagt fram mikla vinnu og óeigingjarna. Auk þess hefur hann staðið fyrir geysivinsælum kótilettukvöldum og stutt góð samfélags- verkefni í samfélaginu,“ segir í tilnefningu. Þórólfur Gíslason SAUÐÁRKRÓKI Þórólfur er kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga og hefur staðið í stafni sístækkandi skútu Kaupfélags Skagfirð- inga undanfarin ár en rekstur KS hefur verið með eindæmum góð- ur í langan tíma. „Í ár á Þórólfur skilið tilnefn- ingu sem maður ársins sökum einstakrar gjafar KS og dótturfyrirtækja þess til Fjölskylduhjálpar Íslands sem nú fyrir jólin gefur sem nemur 50 þúsund mál- tíðum,“ segir í tilnefningu. - - - - - Tökum þátt í skemmtilegri kosningu og kjósum mann ársins á Norðurlandi vestra! Kosningin fer fram líkt og vanalega á vefnum góða – Feykir.is Maður ársins á Norðurlandi vestra árið 2019 var Sigurður Hansen frá Kringlumýri í Skagafirði. Kosið var á milli þeirra sex aðila sem tilnefndir voru á Feykir.is. Í tilnefningu sagði að Sigurður væri vel að því kominn að vera valinn maður ársins á Norðurlandi vestra. „Uppbyggingin á Kakalaskála er stórmerkilegt þrekvirki og ekki síður eitt merkasta og mesta úti- listaverk landsins, til minningar um Haugsnesbardaga.“ Sumarið 2019 opnaði hann einnig sýningu fjórtán alþjóðlegra listamanna sem sköp-uðu margbrotin verk um hina stórkostlegu sögu Sturlunga, í Kakala-skála og á haustdögum gaf hann út ljóðabókina Glóðir. /ÓAB Sigurður Hansen Kringlumýri í Skagafirði Maður ársins á Norðurlandi vestra 2019 Dregið hefur verið úr réttum lausnum í myndagátunni sem birtist í jólablaði Feykis. Líkt og fyrri ár var fín þátttaka meðal lesenda sem voru ekki í vandræðum með lausnina að þessu sinni. Rétt er að geta þess að vandræðaleg málvilla leyndist í upphafi gátunnar. Þar hefði réttilega átt að standa „Ársins“ í stað Árið, eins og margir gerðu athugasemd við. Lausnin er eftirfarandi (með villunni): Árið sem er að líða mun líklega verða minnst um ókomna tíð fyrir erfiðleika og almenn leiðindi. Þrír bókavinningar frá Bókaútgáfunni Hólum eru í verðlaun og vinningshafar eftirfarandi: Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson Sauðárkróki :: Íslensku fuglarnir og þjóðtrúin – Sigurður Ægisson skráði. Elva Þórisdóttir Litla-Felli Skagaströnd :: Látra-Björg, eftir Helga Jónsson. Sigurður Árnason Hrafnabjörgum Blönduósi :: Siddi gull - Æviminningar Sigmars Ó. Maríussonar gullsmiðs. Feykir þakkar þátttakendum fyrir inn- sendar lausnir og vinningshöfum til ham- ingju. /PF Verðlaunahafar jólamyndagátu Bókavinningar til þriggja hepp- inna þátttakenda Hlutskarpastir í stuttmyndakeppni Nemendur í Höfðaskóla Í nóvember stóð yfir stuttmynda- keppni á landsvísu fyrir 8. -10. bekkinga og var þemað kvikindi í hvaða formi sem er. Nemendur unglingastigs í Höfðaskóla á Skaga- strönd unnu með ævintýraþema í nóvember og þótti því tilvalið að hafa eitt verkefnið sem stuttmynd sem væri þá hægt að skila inn í keppnina. Sagt er frá þessu á vef Höfðaskóla. Nemendur Höfðaskóla sendu alls fjórar stuttmyndir í keppnina. Úrslit voru kynnt sl. föstudag og þær Arnrún Hildur, Helga Margrét, Ísabella Líf, Karen Líf og Sóley Sif unnu til fyrstu verðlauna með myndinni Gilitrutt. Í umsögn dómnefnd- ar segir að myndin sé heildstæð og í henni vel hugað að mismunandi þáttum kvikmyndagerðar s.s. búningum og sviðs- mynd, leik, kvikmyndatöku og klippingu auk þess sem sagan sé skemmtilega útfærð og skili sér vel til áhorfenda. /FE

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.