Feykir - 16.12.2020, Blaðsíða 4
4 48/2020
Sjö tilnefndir að þessu sinni
b Tilnefningar til Manns ársins 2020 á Norðurlandi vestra
Feykir stendur fyrir kjöri á manni
ársins á Norðurlandi vestra líkt og
gert hefur verið undanfarin ár. Íbúum
á svæðinu og öðrum lesendum Feykis
gefst kostur á að velja úr hópi þeirra
sem tilnefndir voru af lesendum. Í
þetta skiptið bárust tilnefningar um
sjö einstaklinga.
Hægt verður að greiða atkvæði á
vefnum Feyki.is eða senda atkvæði í
pósti á Feykir, Borgarflöt 1, 550
Sauðárkrókur. Kosningin hefst kl. 13 á
fimmtudaginn, 17. desember, og lýkur
á miðnætti á nýársdag, 1. janúar.
Tilnefndir eru, í stafrófsröð:
Andri Páll Guðmundsson
HVAMMSTANGA
Andri Páll er tilnefndur fyrir framlag sitt
til íslenskrar matargerðar, þá sérstaklega
fyrir laufabrauðstacoið
sem hann bjó til. Andri
vakti athygli á sam-
félagsmiðlum á dögun-
um fyrir nýstárlega
útgáfu af laufabrauði
sem hann bakaði í ofni
til að ná fram taco-forminu. Brauðið fyllti
hann svo með hangikjötshakki, heitu
rauðkáli, grænbaunasalsa og uppstúf og
kreisti mandarínu yfir í lokin.
Bryndís Rut Haraldsdóttir
SAUÐÁRKRÓKI
Bryndís er fyrirliði
kvennaliðs Tindastóls
sem sigraði Lengju-
deild kvenna með
miklum glæsibrag í
sumar. Þar fór Bryndís
UMSJÓN
Fríða Eyjólfsdóttir
fyrir sínu liði í hjarta varnarinnar sem
fékk aðeins á sig sjö mörk í 17 leikjum. Í
tilnefningu segir að Bryndís Rut hafi verið
jákvæð og hugrökk, stjórnað sínu liði með
góðu fordæmi og talanda og vart stigið
feilspor á vellinum. Hún er fyrsti fyrirliði
knattspyrnuliðs í sögu Tindastóls sem
leiðir lið sitt upp í efstu deild.
Karólína
Elísabetardóttir
HVAMMSHLÍÐ, AUSTUR-
HÚNAVATNSSÝSLU
Karólína býr afskekkt
upp til fjalla í Norður-
árdal austan Þverár-
fjalls. Karólína hefur
vakið athygli fyrir að
vera dugleg að bjarga
sér og í tilnefningu
segir að hún standi sig eins og hetja við
mjög sérstakar aðstæður. Meðal þess sem
Karólína hefur tekið sér fyrir hendur er að
gefa út dagatöl með myndum af dýrunum
á bænum í forgrunni og hafa þau notið
mikilla vinsælda.
Lilja Gunnlaugsdóttir
ÁSHILDARHOLTI, SKAGAFIRÐI
Lilja starfar sem læknaritari við HSN á
Sauðárkróki. Í tilnefningu segir að Lilja
hafi á aðdáunarverðan hátt byggt upp líf
sitt við breyttar aðstæður eftir að hafa
gengið í gegnum mikla
erfiðleika undanfarin
ár. Lilja skrifaði og
gaf í haust út bókina
Dagbókin mín sem
unnin er eftir hug-
myndum um jákvæða
sálfræði. Einnig hefur hún skrifað blogg
um það hvernig er að lifa með sorginni og
hafa bæði bókin og bloggið hjálpað
mörgum.
Sveinn Margeirsson
FRÁ MÆLIFELLSÁ Í SKAGAFIRÐI
Sveinn er tilnefndur fyrir baráttu sína fyrir
málefnum sauðfjárbænda og að hafa reynt
að hrista upp í „algjör-
lega stöðnuðu kerfi“
eins og segir í tilnefn-
ingu. Sveinn var kærð-
ur fyrir að selja heima-
slátrað kjöt á bænda-
markaði Matís á
Hofsósi haustið 2018 og í kjölfar þess
kærði Matvælastofnun hann og Matís
sagði honum upp störfum sem forstjóra
fyrirtækisins. Á haustdögum var Sveinn
sýknaður í Héraðsdómi Norðurlands
vestra. „Margir eru efins um að aðrir opin-
berir starfsmenn hafi lagt eins mikið af
mörkum til að þoka málum í rétta átt eins
og Sveinn Margeirsson hefur gert. Hann á
heiður skilinn fyrir dugnað sinn og elju við
að berjast fyrir lífsafkomu heillar starfs-
stéttar,“ segir í tilnefningu.
Valdimar Guðmannsson
BLÖNDUÓSI
Valdimar fær tilnefningu fyrir þrotlausa og
óeigingjarna vinnu hans fyrir kirkju-
garðinn á Blönduósi og dugnað og
hvetjandi framkomu
fyrir sitt samfélag.
„Valdimar hefur verið
gríðarlega öflugur og í
fararbroddi í endur-
bótum við kirkjugarð-
inn á Blönduósi og lagt
fram mikla vinnu og óeigingjarna. Auk
þess hefur hann staðið fyrir geysivinsælum
kótilettukvöldum og stutt góð samfélags-
verkefni í samfélaginu,“ segir í tilnefningu.
Þórólfur Gíslason
SAUÐÁRKRÓKI
Þórólfur er kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Skagfirðinga og hefur staðið í stafni
sístækkandi skútu
Kaupfélags Skagfirð-
inga undanfarin ár en
rekstur KS hefur verið
með eindæmum góð-
ur í langan tíma. „Í ár á
Þórólfur skilið tilnefn-
ingu sem maður ársins sökum einstakrar
gjafar KS og dótturfyrirtækja þess til
Fjölskylduhjálpar Íslands sem nú fyrir
jólin gefur sem nemur 50 þúsund mál-
tíðum,“ segir í tilnefningu.
- - - - -
Tökum þátt í skemmtilegri kosningu
og kjósum mann ársins á
Norðurlandi vestra!
Kosningin fer fram
líkt og vanalega
á vefnum góða
– Feykir.is
Maður ársins á Norðurlandi vestra
árið 2019 var Sigurður Hansen frá
Kringlumýri í Skagafirði. Kosið var á
milli þeirra sex aðila sem tilnefndir
voru á Feykir.is.
Í tilnefningu sagði að Sigurður
væri vel að því kominn að vera
valinn maður ársins á Norðurlandi
vestra. „Uppbyggingin á Kakalaskála
er stórmerkilegt þrekvirki og ekki
síður eitt merkasta og mesta úti-
listaverk landsins, til minningar um
Haugsnesbardaga.“ Sumarið 2019
opnaði hann einnig sýningu fjórtán alþjóðlegra listamanna
sem sköp-uðu margbrotin verk um hina stórkostlegu sögu Sturlunga, í
Kakala-skála og á haustdögum gaf hann út ljóðabókina Glóðir. /ÓAB
Sigurður Hansen
Kringlumýri í Skagafirði
Maður ársins á Norðurlandi vestra 2019
Dregið hefur verið úr réttum lausnum í
myndagátunni sem birtist í jólablaði
Feykis. Líkt og fyrri ár var fín þátttaka
meðal lesenda sem voru ekki í
vandræðum með lausnina að þessu
sinni. Rétt er að geta þess að
vandræðaleg málvilla leyndist í upphafi
gátunnar. Þar hefði réttilega átt að
standa „Ársins“ í stað Árið, eins og
margir gerðu athugasemd við.
Lausnin er eftirfarandi (með villunni):
Árið sem er að líða mun líklega verða
minnst um ókomna tíð fyrir erfiðleika og
almenn leiðindi.
Þrír bókavinningar frá Bókaútgáfunni
Hólum eru í verðlaun og vinningshafar
eftirfarandi:
Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson
Sauðárkróki ::
Íslensku fuglarnir og þjóðtrúin –
Sigurður Ægisson skráði.
Elva Þórisdóttir
Litla-Felli Skagaströnd ::
Látra-Björg, eftir Helga Jónsson.
Sigurður Árnason
Hrafnabjörgum Blönduósi ::
Siddi gull - Æviminningar
Sigmars Ó. Maríussonar gullsmiðs.
Feykir þakkar þátttakendum fyrir inn-
sendar lausnir og vinningshöfum til ham-
ingju. /PF
Verðlaunahafar jólamyndagátu
Bókavinningar
til þriggja hepp-
inna þátttakenda
Hlutskarpastir í
stuttmyndakeppni
Nemendur í Höfðaskóla
Í nóvember stóð yfir stuttmynda-
keppni á landsvísu fyrir 8. -10.
bekkinga og var þemað kvikindi í
hvaða formi sem er. Nemendur
unglingastigs í Höfðaskóla á Skaga-
strönd unnu með ævintýraþema í
nóvember og þótti því tilvalið að hafa
eitt verkefnið sem stuttmynd sem
væri þá hægt að skila inn í keppnina.
Sagt er frá þessu á vef Höfðaskóla.
Nemendur Höfðaskóla sendu alls
fjórar stuttmyndir í keppnina. Úrslit voru
kynnt sl. föstudag og þær Arnrún Hildur,
Helga Margrét, Ísabella Líf, Karen Líf og
Sóley Sif unnu til fyrstu verðlauna með
myndinni Gilitrutt. Í umsögn dómnefnd-
ar segir að myndin sé heildstæð og í
henni vel hugað að mismunandi þáttum
kvikmyndagerðar s.s. búningum og sviðs-
mynd, leik, kvikmyndatöku og klippingu
auk þess sem sagan sé skemmtilega útfærð
og skili sér vel til áhorfenda. /FE