Feykir - 16.12.2020, Page 11
48/2020 11
Eftirminnilegasta jólagjöfin
Kristín Halla Bergsdóttir Grænumýri í Blönduhlíð
Pakkinn var sérstakur í laginu
Ég á margar góðar minningar um gjafir því mér finnst
svo yndislegt þegar fólk tekur sér tíma og velur eitthvað
fallegt eða eitthvað með notagildi með mig í huga. Ég á
margar góðar barnaminningar um jólagjafir sem ylja
þegar líða fer að jólum. Einnig þykir mér einstaklega
vænt um gjafirnar frá börnunum mínum. Ein sú gjöf
sem allra mest hefur komið mér á óvart var gjöf sem
mér barst 1998 þegar ég var 18 ára. Ég átti þá kærasta
sem ákvað að senda mér stóra gjöf úr Skagafirðinum,
innpakkaða í svartan plastpoka með stórri rauðri
slaufu. Pakkinn var svo sérstakur í laginu að ég gat með
engu móti áttað mig á innihaldinu, hvað þá norðan af
landi. Á Þorláksmessukvöld sat ég og starði á þennan
stóra pakka og allt í einu rann það upp fyrir mér..... fiðlukassinn sem mig langaði svo
í! Rándýr kassi í besta gæðaflokki og hann var og er sérstakur í laginu. Og ég sem
hafði bara keypt handa honum skyrtu! Þessi ágiskun reyndist rétt því í pakkanum var
fiðlukassinn góði sem hefur verið mikið notaður síðan og meira að segja dóttirin tekin
við að nota þessa „antík”. Og já, kærastanum giftist ég svo tíu árum seinna svo hann
heillaði mig greinilega með þessari gjöf. /FE
JRJ Jeppaferðir 25 ára
Lá beint við að fara
að vinna við áhugamálið
Fyrirtækið JRJ
Jeppaferðir var stofnað
þann 16. desember 1995
og eru því nákvæmlega
25 ár liðin frá stofnun
þess. Eigandi og
stofnandi fyrirtækisins
er Jóhann R. Jakobsson
sem hefur stýrt því frá
upphafi. Feykir náði tali
af Jóhanni í því skyni að
forvitnast um starfsemi
fyrirtækisins og tilurð
þess.
JRJ Jeppaferðir voru
stofnaðar með það að
tilgangi að kynna ferða-
mönnum Ísland. „Ég
hafði rekið JRJ Bifreiða-
smiðju frá árinu 1978 til
1995 í Varmahlíð en þá
var sú iðngrein að líða
undir lok vegna innflutn-
ings á fullbúnum bílum,“
segir Jóhann. „Ferða-
mennskan er baktería
sem fylgdi mér úr föður-
húsum. Fyrsta jeppann,
rússajeppa, eignaðist ég
17 ára, árið 1967. Þá
byrjaði það ævintýri að
ferðast fyrir alvöru, hver
stund var notuð. Það
voru kannski teknar 2–3
vikur á hálendinu að
sumarlagi með félögun-
um og vetrarferðir inn á
Hveravelli, inn í Þórs-
mörk og páskaferðir í
Öræfasveit, sem voru
ógleymalegir túrar. Á
þessum tímum voru
aðstæður til ferðalaga allt
aðrar en í dag. Það er dýr-
mætt nesti í reynslu-
bankann að hafa kynnst
landinu ósnortnu. Á
þessum tímum voru fáir
Jóhann og Stóri Boris á hlaðinu á Egilsá. Í dag á fyrirtækið þrjá Superjeppa, sjö manna Patrol og tvo Ford Ek,
11 og 14 manna. AÐSENDAR MYNDIR
segir að það að geta sýnt
ferðamönnum hálendi
Íslands séu mikil for-
réttindi. „Það tekur tíma
að vinna markað í þess-
um bransa. Ég ákvað í
upphafi að markaðssetja
eingöngu á netinu og hef
haldið mig við það, vissi
að það væri framtíðin í
ferðabransanum.“
Rekur einng
gistiheimili
Jóhann segir að hann hafi
snemma farið að bjóða
upp á ferðir fyrir Íslend-
inga sem hafi verið vel
tekið þar sem ekki eigi
allir þess kost að ferðast
um hálendið á eigin
vegum. Í dag býður
fyrirtækið upp á fjórar
dagsferðir frá Reykjavík
og fjórar dagsferðir frá
Egilsá og Akureyri. „Við
hönnuðum sér ferð fyrir
íslenskan markað, há-
lendisferð, þar sem farið
er úr Skagafirði upp í
Laugarfell, um Sprengi-
sand, Gæsavatnaleið og
Holuhraun í Öskju og
Herðubreið og þaðan í
Mývatnssveit. Þetta er
langvinsælasta ferðin
okkar og í júlí á næsta ári
verður ferð númer 60
farin.“
JRJ Jeppaferðir bjóða
ekki eingöngu upp á
ferðalög heldur rekur
Jóhann gistiheimili sem
hefur verið vel tekið af
viðskiptavinum. „Árið
2010 ákvað ég að bæta í
og fyritækið flutti starf-
semina að Egilsá í Akra-
hreppi. Nú er þar Gisti-
húsið Himnasvalir sem
hefur fengið frábærar
viðtökur frá upphafi.
Síðasta sumar opnuðum
við svo tjaldsvæði. Ennig
trússum við gönguhópa
um allt land og bjóðum
upp á sérferðir fyrir hópa
og fyrirtæki eftir þeirra
óskum og aðstoðum við
skipulagningu. Við lítum
björtum augum til fram-
tíðarinnar og erum með í
undirbúningi að stofna
JRJ Ferðaskrifstofu til að
eiga meiri tækifæri næstu
árin,“ segir Jóhann að
lokum.
Allar upplýsingar um
þjónustu fyrirtækisins
má nálgast á
www.jeppaferdir.is og
www.jrjsuperjeep.is fyrir
erlendan markað.
VIÐTAL
Fríða Eyjólfsdóttir
Við rætur Hofsjökuls.
að ferðast og maður varð
bara að bjarga sér ef
eitthvað kom fyrir.“
Jóhann segir að þegar
hann hafi hætt með bif-
reiðasmiðjuna hafi því
legið beint við að fara að
vinna við áhugamálið og