Feykir


Feykir - 16.12.2020, Qupperneq 17

Feykir - 16.12.2020, Qupperneq 17
48/2020 17 Holt. „Hennar fjölskyldusaga á því rætur hér,“ segir Arnar Þór. Hversu langan tíma tók að gera upp og hvað var erfiðast eða skemmtilegast? „Við fjár- festum í húsinu haustið 2015, gerðum það smám saman gróflega íbúðarhæft fyrir okkur og nýttum tímann í að kynnast Fljótunum og Trölla- skaga betur. Endurbyggingar- starfið hófst svo 2017. Það var auðvitað ýmislegt sem kom upp á og ekki hægt að segja annað en að ferlið hafi verið lærdómsríkt en skemmti- legast fannst okkur að fá tækifæri til að njóta þess að vera í Fljótum og svo að sjá afraksturinn – sveitahótel sem við erum virkilega stolt af,“ segir Ólöf. Tröllaskaginn er skíðahöfuðborg Íslands Eru Fljótin paradís? „Strax og við sáum húsið auglýst á sínum tíma kallaði svæðið á okkur. Við vorum farin að velta fyrir okkur hvað okkur langaði að gera í framtíðinni og upp- bygging staðbundinnar ferða- þjónustu heillaði. Við höfum verið mikið á skíðum og í útivist og Ólöf veiddi um tíma árlega með vinkvennahópi í Fljótaá, þannig að svæðið höfðaði sterklega til okkar eigin áhugamála, “ segir Arnar Þór og heldur áfram: „Fljótin eru auðvitað paradís útivistar- fólks; hér eru göngu- og hjóla- leiðir um allt, hestamennska, veiðiár, vötn og berjamór að sumri og á veturna er Trölla- skaginn skíðahöfuðborg Ís- lands og skiptir þá engu hvort um er að ræða gönguskíði, alpaskíði eða fjallaskíði. Eftir fyrstu skoðun á húsinu og umhverfi þess varð ekki aftur snúið – við vorum bara heilluð af svæðinu eins og allir sem það heimsækja.“ Bjóðið þið upp á afþreyingu og veitingar fyrir gesti? „Við seljum alla gistingu með morgunverði og þriggja rétta kvöldverði og veitum alla þjónustu í drykkjarföngum. Við erum svo heppin að gest- gjafar okkar á staðnum hafa sýnt fádæma natni við að tryggja gæði matar, veitinga og þjónustu þannig að gestir okkar njóti dvalarinnar í hví- vetna,“ segir Ólöf. Arnar Þór minnir á að þau séu með ferðaskrifstofuleyfi og bjóði margskonar ferðapakka með mismunandi áherslum. „En við leggjum líka áherslu á að kynna nágrennið fyrir gestum, bjóðum dagsferðir, bæði gönguferðir og ferðir á raf-fjallahjólum, sem opna víddir og tinda fyrir öllum sem vilja stíga á hjólhest. Hann Gestur er reyndur og vand- virkur leiðsögumaður sem tryggir að allar ferðir séu gestum til gleði. Við erum líka í góðu samstarfi við nágranna okkar, þ.á.m. Langhús hesta- leigu og Brúnastaði, en þar hefur á undanförnum árum m.a. verið rekinn húsdýra- garður sem gleður yngstu gestina.“ Hvernig gestir eru það sem heimsækja Sóta og hver er markhópurinn? „Við höfum einbeitt okkur að markaðs- setningu og kynningarstarfi á netinu og samfélagsmiðlum, erum vel sýnileg á Facebook og Instagram og erum með öfl- uga vefsíðu (www.sotisummits. is). Við beinum kynningar- starfsemi okkar að gestum sem vilja njóta dásamlegrar og stórbrotinnar náttúru, frið- semdar og ævintýra og höfum reynt að höfða til þeirra sem vilja njóta hvers kyns útivistar.“ Hefur Covid-faraldurinn sett strik í reikninginn hjá ykkur? „Vissulega settu faraldurinn og sóttvarnaraðgerðir allt úr skorðum hjá okkur en á móti kom að okkur gafst tækifæri til að einbeita okkur að íslenska markaðinum og það hefur verið mjög gaman. Við vitum að við erum frábær kostur fyrir Íslendinga sem eru að leita að afþreyingu, notalegheitum og góðri þjón- ustu og munum áfram byggja okkar starfsemi á að sinna heimalandinu vel. Það olli svo viðbótarerfið- leikum að við féllum milli skips og bryggju í aðgerðum stjórnvalda, þar sem okkar starfsemi byrjaði í raun þegar allt skall í lás í vor og allar aðgerðir stjórnvalda miðuðust við samanburð við rekstur fyrra árs, en vonandi sjáum við til sólar í ferðaþjónust- unni með vorinu. Við höldum ótrauð áfram og hlökkum til að bjóða gestum okkar áfram upp á fjölbreytta dagskrá og gæðaþjónustu,“ segja Ólöf og Arnar Þór. Sveitahótelið er opið allan ársins hring og þau eru alltaf með eitthvað á döfinni. Nú í vetrarbyrjun settu þau í loftið tilboð á gistingu og buðu sér- sniðna dagskrá fyrir ýmsa litla hópa, en eftir áramót stendur til að keyra upp í skíðaver- tíðina, með gönguskíðaferð- um, fjallaskíðadagskrá og námskeið sem auka öryggi í fjallaferðamennsku að vetrum. Þau hvetja fólk til að fylgjast með á vefsíðunni og skrá sig á póstlistann til að missa ekki af tækifærum til upplifunar. Myndir frá Sóta Lodge á Sólgörðum og ferðaþjónustu í Fljótunum. 48/2020

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.