Feykir - 16.12.2020, Qupperneq 26
26 48/2020
Það er óhætt að segja að
þetta ár sem nú er að renna
sitt skeið hefur heldur betur
sett okkur öll á annan stað í
lífinu, stað sem að minnsta
kosti ég hefði aldrei getað
ímyndað mér að ég ætti
eftir að upplifa.
Fyrir nákvæmlega ári
síðan var ég, ásamt
nokkrum góðum
vinkonum úr Kvenfélagi
Svínavatnshrepps, að spóka
mig í Crawley á Englandi,
svo hamingjusöm og
grunlaus um hvað myndi
bíða okkar er heim kæmi.
Þetta var dásamleg ferð,
en við rétt komumst heim
þegar skall á óveðrið sem
byrjaði 10. desember og
olli afar miklum skaða,
bæði hér og annars staðar.
Þetta gerðist eins og hendi
væri veifað og í blessuðum
Blöndudalnum, þar sem
er alltaf gott veður eins og
allir vita, varð allt alveg
spinnigal. Það fauk allt sem
fokið gat, skepnur fenntu og
rafmagnið fór svo hræðilegt
ástand skapaðist í fjósunum.
Hjá okkur á Löngumýri
fauk fjárhússtafn og hluti
af þaki, við misstum kindur
í fönn, fé sem við höfðum
ekki fundið. (Þess ber að
geta að eiginmaðurinn var
leitandi að kindum á meðan
ég spókaði mig í útlandinu).
Kýrnar fóru auðvitað illa út
úr rafmagnsleysinu. Þetta
var víða svona, við höfðum
það alls ekki verra en aðrir.
Þetta var ömurlegur tími og
við vorum auðvitað alveg í
áfalli, gjörsamlega útúrþreytt
að skríða milli fjóss og bæjar
í blindhríð og stormi. Ég bara
veit ekki hvað ég hefði gert
ef mig hefði órað fyrir að
loksins (eftir áramót) þegar
veðrið fór að skána skylli
á heimsfaraldur. Covid 19
dreifðist um heimsbyggðina
og bókstaflega lokaði okkur
inni heima hjá okkur og
stoppaði félagslíf, alls kyns
vinnutækifæri og gerði
það að verkum að allt
skólastarf fór úr skorðum.
Framhaldsskólanemar
þurftu að koma heim og
læra í gegnum tölvuna sína.
Stelpan okkar var ein af
þeim sem var að klára námið
sitt hjá FNV á vorönn og
varð stúdent sl. vor. Þetta
gekk samt allt ótrúlega vel
eins og alltaf þegar allir gera
sitt besta.
Það sem mér finnst samt
standa upp úr á þessu ári er
allt það góða. Fyrst og fremst
hve rosalega tæknivædd við
erum. Börn geta lært heima
og við sitjum við tölvuna
og kveðjum vini sem við
getum ekki á annan hátt
fylgt síðasta spölinn. Þetta
ber sannarlega að þakka.
Það virðast allir leggjast
á eitt með að gera hlutina
sem auðveldasta. Mig
langar að nefna starfsfólk
Fjölbrautaskólans á
Sauðárkróki sem á einum
morgni á síðustu vorönn
græjaði allt svo nemendur
gætu haldið sínu striki, mætt
í tíma heima í tölvunni sinni
og fengið alla þá aðstoð
sem hægt var. Það var
ómetanlegt. Það var dálítið
skrýtið að vera viðstödd
útskrift dótturinnar þar sem
hver nemandi mátti taka tvo
með sér, en mikið rosalega
var ég samt þakklát fyrir að
við foreldrarnir gátum verið
þarna.
Það var líka dásamlegt að
upplifa alla hjálpina í vonda
veðrinu, hjálparsveitin
flutti bæði fólk og fé
og gerði allt sem hægt
var að gera. Nágrannar
hjálpuðust að og smiðir
hentu frá sér verkefnum
til að hjálpa bændum. Enn
einu sinni fann ég hvað ég
á dásamlega nágranna, bý
í góðu samfélagi og hvað
okkar ágæta Norðurland
vestra er gott landsvæði.
Mér finnst líka aðdáunarvert
hve fólk hefur staðið sig í
sóttvörnum og er duglegt
að fara eftir reglum. Ég er
mjög þakklát. Ég vona að við
höldum þessu striki, förum
varlega, hjálpumst að og
sendum kærleika hvert til
annars, áfram. Við þurfum
að halda út. Ég er samt
svo þakklát fyrir árið 2020
og allan lærdóminn en ég
hlakka til að fá árið 2021. Ég
er viss um að það á eftir að
koma okkur á óvart, á góðan
hátt.
- - - - - -
Ég skora á Þórdísi Evu
Einarsdóttur frá Grænuhlíð
að taka við pennanum.
ÁSKORENDAPENNINN | palli@feykir
Birgitta H. Halldórsdóttir A-Hún.
Litið til baka
Birgitta H. Halldórsdóttir.
MYND ÚR EINKASAFNI
Finnur Freyr M.
Gústavsson
3 ára
Hvað finnst þér um jólin?
Þau eru skemmtileg. Ég
ætla fá mér kerru fyrir
jólin. Ég ætla að segja
pabba mínum það. Hvað
getur þú sagt mér um
jólasveina? Þeir eru í
svona rauðum galla. Þeir eru svona
pínuponku litlir. Einn er alveg svona pínulítill
(sýnir með höndum), hann borðar sko alltaf
morgunmat. Svo er einn mjööög stór (sýnir
með höndum). Af hverju höldum við jólin?
Út af því að það eru jólin heima hjá mér. Ég á
jólapeysu. Hvað langar þig að fá í jólagjöf?
Ís. Ef þú myndir hitta jólasvein hvað myndir
þú segja honum? Að það má ekki setja sand í
sófann. Þeir eiga að fara í gröfuna með mér. Og
ég ætla að fara í gröfuna með þeim. Pabbi ætlar
að grafa með þeim af því að þeir kunna það
ekki. Við mokum stóra holu með gröfunni og
tökum upp mölina. Hvað gerir þú í jólafríinu?
Ég ætla fara í gröfuna með pabba mínum og
jólasveinarnir eiga að fara í bílinn minn, í
hvíta bílinn Cruiser-inn. Hvað heldur þú að
jólasveinana langi að fá í jólagjöf? Þá langar
líka í ís eins og mig. En heldurðu að ísinn
bráðni ekki? Nei hann bráðnar sko ekki.
Langar í ís í jólagjöf
b Krakkarnir í Ársölum á
Sauðárkróki svara jólaspurningum
Jökla Magnúsdóttir
2 ára
Hvað segir jólasveinn-
inn? Halló. Hvar á
jólasveinninn heima?
Hann á heima úti hjá
Önnu og Elsu. Hvað
borðar jólasveinninn?
Graut, rúsínur, epli og
svo meiri graut.
Hvað langar þig í frá
jólasveininum? Bát, fugl og bíl.
Samtölin við krakkana voru tekin
saman af starfsfólki Ársala. Takk fyrir!